Beint millilandaflug frá Akureyri

Miðvikudaginn 10. desember 2003, kl. 10:45:04 (2978)

2003-12-10 10:45:04# 130. lþ. 46.3 fundur 396. mál: #A beint millilandaflug frá Akureyri# fsp. (til munnl.) frá samgrh., ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 130. lþ.

[10:45]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Hv. þm. Hlynur Hallsson hefur stofnað til mjög mikilvægrar umræðu um samgöngur á Íslandi og samgöngur við útlönd. Það vakti athygli mína að hæstv. ráðherra sagði að ríkisstyrkir í millilandaflugi tíðkuðust ekki í Evrópu. Það má hins vegar styrkja samgöngur með ýmsu móti og ég vek athygli á því að stuðningur og niðurgreiðslur við samgöngur eru miklu meiri en menn gera sér almennt grein fyrir. Ég minnist þess þegar ríkisstyrkir voru nánast afnumdir í sjóflutningum hér á landi, þá færðist þessi stuðningur einfaldlega upp á landið og liggur í vegakerfinu. Út á það ganga, eftir því sem mér skilst, spurningar hv. þm. Hlyns Hallssonar, með hvaða hætti stjórnvöld geta komið að stuðningi með beinum og óbeinum hætti. Út á það ganga þessar spurningar og væri fróðlegt að heyra nánari skýringar hæstv. ráðherra í svari hans hér á eftir.