Stjórn fiskveiða

Miðvikudaginn 10. desember 2003, kl. 18:26:22 (3057)

2003-12-10 18:26:22# 130. lþ. 47.1 fundur 428. mál: #A stjórn fiskveiða# (línuívilnun o.fl.) frv. 147/2003, KHG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 130. lþ.

[18:26]

Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):

Herra forseti. Í fyrsta lagi varðandi málefni dagabátanna þá verður það mál rætt í nefndinni. Ég get fullvissað þingmanninn um að við munum gefa okkur tíma til að fara yfir það.

Í öðru lagi varðandi skerðingu á byggðakvóta, hvort um hana sé að ræða í frv., þá er það ekki alveg ljóst. Það er ekki víst að svo sé, en vegna þess að það er ekki alveg ljóst var settur við það ákveðinn fyrirvari af hálfu míns þingflokks við yfirferð málsins og það verður skoðað í nefndinni.

Ef við leggjum saman þau lagaákvæði sem á að fella brott og hafa að geyma sérstakar úthlutanir, þá eru það 1.500 tonn frá 1999 sem Byggðastofnun hefur ráðstafað, 2.300 tonn í krókaaflamarkskerfinu og síðan önnur 1.500 tonn sem eru inni í 9. gr. Ef við leggjum þetta saman þá eru þetta 5.300 tonn. Inni í 9. gr. eru 12.000 þorskígildistonn. Fyrst er ráðstafað til þess að mæta áföllum vegna aflabrests í einstökum tegundum og eftir því sem mig minnir, er ráðstafað í það núna innan við 6.000 tonnum, 5.700 ef ég man rétt, með fyrirvara. Miðað við það eru eftirstöðvarnar meiri eða svipaðar og það sem verið er að fella niður. Í sjálfu sér má því komast að þeirri niðurstöðu að þetta sé sambærilegt, a.m.k. miðað við síðustu tölur.

Varðandi beitninguna er ýmislegt í þeirri framkvæmd sem við skoðum í nefndinni en ég vek athygli á því að það er dálítið velt fyrir sér túlkun og menn hljóta auðvitað að skoða málefni þeirra sem ekki beinlínis beita í landi heldur leggja línu með trekt. Það er ekki alveg ljóst af frumvarpstextanum hvort slíkir bátar falla undir regluna eða ekki. Það er eitthvað sem við hljótum að skoða.