Stjórn fiskveiða

Miðvikudaginn 10. desember 2003, kl. 18:36:40 (3063)

2003-12-10 18:36:40# 130. lþ. 47.1 fundur 428. mál: #A stjórn fiskveiða# (línuívilnun o.fl.) frv. 147/2003, KHG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 130. lþ.

[18:36]

Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):

Ég tek alveg undir það hjá hv. þm., og á því vakti ég athygli í minni ræðu, að eins og 9. gr. er og gert er ráð fyrir að hún verði eftir breytinguna er meginþunginn á að bregðast við samdrætti í afla einstakra tegunda. Þess vegna lagði ég áherslu á að við skoðuðum þetta mál með því hugarfari að draga ekki saman það magn sem ætlað er til byggðakvótaaðgerða. Það verður auðvitað að tryggja að þar sé ekki verið að draga saman seglin.

Hvað varðar tegundatilfærsluna þá hef ég ekki skoðað það nægilega mikið til að ég geti gefið afdráttarlaust álit á því. Við munum skoða það í nefndinni. Ég vonast til að við getum sameinast um að gera það vandlega og tryggja að þar verði engar þær breytingar sem ekki eru æskilegar.