Einar K. Guðfinnsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Eitt markmið með umræðum af þessu tagi er að skýra afstöðu manna til þeirra mála sem við erum að fjalla um hverju sinni. Það er auðvitað það sem við erum m.a. að reyna að gera með því að skiptast á skoðunum í þinginu, bæði í ræðum okkar og andsvörum.
Ég átti ekki von á því í sjálfu sér þegar ég gekk til þessarar umræðu að örlög mín yrðu þau að reyna að fá að skýra svolítið stefnu Samf. í málinu en mér leikur hins vegar óskapleg forvitni á að vita hver afstaða Samf. er. Mér finnst málið þess eðlis að eftir 1. umr. verði að liggja fyrir hver afstaða flokkanna er. Það er búið að ræða málið svo mikið í þessu samhengi að ég hélt að það ætti að liggja nokkuð ljóst fyrir. Nokkrir þingmenn Samf. hafa rætt það og núna heyrðist mér reyndar í frammíkalli, loksins, sem stefnan væri skýr. Ef ég heyrði hv. þm. Mörð Árnason rétt sagði hann: ,,Við erum auðvitað á móti þessu rugli.`` Var ekki svo? (MÁ: Jú, á móti þessu rugli.) Á móti þessu rugli, já, þá liggur það loksins fyrir. Ef þetta hefði legið fyrir fyrr hefði ég getað sparað mér þessa ferð hér upp. Þá liggur það fyrir að hv. þm. Mörður Árnason talar fyrir hönd Samf. og segir að þau séu á móti þessu rugli og gerir þá í þessum töluðu orðum hv. þm. Jóhann Ársælsson að algerum ómerkingi en hann lýsti því yfir að Samf. styddi línuívilnun. Ég ætlaði hins vegar (Gripið fram í.) að spyrja hv. þm. Lúðvík Bergvinsson hvort eitthvað hefði breyst, hvað það væri þá sem hefði breyst, frá því að hv. þm. lýsti því yfir að Samf. styddi línuívilnun. Ég hef verið að reyna að fá það upp úr krafsinu hver afstaða Samf. væri, hvort hún væri enn þá sú sama eða hvort hún hefði breyst vegna þess að mér hefur fundist umræðan af þeirra hálfu vera frekar gagnrýnin gagnvart línuívilnuninni og þess vegna hef ég í huga mér verið að draga þá ályktun að líklega væru þau orðin frekar andsnúin þessu. Hv. þm. Mörður Árnason hefur staðfest það en nú vildi ég gjarnan að hv. þm. Lúðvík Bergvinsson, hann getur svarað í þessu andsvari, upplýsti okkur um hvort er hið sanna.