Almannatryggingar

Fimmtudaginn 11. desember 2003, kl. 11:41:14 (3162)

2003-12-11 11:41:14# 130. lþ. 48.2 fundur 418. mál: #A almannatryggingar# (aldurstengd örorkuuppbót) frv. 130/2003, ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 130. lþ.

[11:41]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Herra forseti. Sagt var í þessum ræðustól fyrir nokkrum dögum að það væri óskandi að almættið hjálpaði öryrkjum og talsmönnum þeirra, þeir vissu ekki hvað þeir gerðu. Ég vona að almættið hjálpi Framsfl. Því miður óttast ég að flokkurinn og talsmenn hans viti hvað þeir eru að gera og það finnst mér óhuggulegt.