Kristján L. Möller:
Virðulegi forseti. Hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson, formaður iðnn., hefur gert grein fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á ýmsum lögum á orkusviði, eins og það heitir. Hann hefur farið vel í gegnum það nál. sem fyrir liggur og brtt. sem því fylgja, þar sem í stað orðsins ,,húseign`` komi ,,fasteign``. Hann hefur farið ágætlega yfir það sem rætt var í nefndinni, m.a. við fjölmarga gesti svo sem frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og aðra. Við, fulltrúar Samf. í iðnn., erum á þessu nál. og þarf ekki að orðlengja um það. Við stöndum að brtt. og erum þeim sammála.