[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 130. lþ.
Jón Gunnarsson:
Virðulegi forseti. Það kom fram í framsögu hv. þm. Kristins H. Gunnarssonar fyrir nál. sjútvn. sem hér liggur fyrir, að fulltrúar Samf. í nefndinni skrifuðu undir það með fyrirvara. Ég ætla að gera grein fyrir þeim fyrirvara í stuttu máli.
Hér er lagt til að stofnaður verði sérstakur sjóður sem nefnist Verkefnasjóður sjávarútvegsins. Þegar frv. kom fram var ekki kveðið á um með hvaða hætti ætti að kjósa þessum sjóði stjórn eða eftir hvaða reglum hann ætti í raun að vinna og sammæltust sjávarútvegsnefndarmenn um að flytja brtt. eins og hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson gerði grein fyrir, sem hljóðar svo:
,,Ráðherra skal skipa stjórn Verkefnasjóðsins sem skilar tillögum til ráðherra um ráðstöfun fjárins. Ráðherra setur reglur um stjórn sjóðsins og úthlutun úr honum.``
Um þetta urðu talsverðar umræður, hvort rétt væri að kveða skýrar að orði og ganga á einhvern hátt betur frá því hvernig þessi stjórn yrði skipuð og hvaða reglur ættu að gilda. En niðurstaðan varð sú að sett var í nál. það mat nefndarinnar að nauðsynlegt væri að skýrar reglur giltu um úthlutun úr sjóðnum og eðlilegt þætti að skipuð yrði yfir hann stjórn sem gerði tillögur til ráðherra um úthlutun. Nefndin leggur til í brtt. að þetta verði gert. En í nál. mælumst við jafnframt til þess að þegar reglur hafi verið settar um stjórn sjóðsins og úthlutun úr honum verði þær kynntar fyrir sjútvn. áður en þær taka gildi.
Í trausti þessa skrifum við, fulltrúar Samf. í nefndinni, undir nál. Við skrifum undir með þessum fyrirvara, í trausti þess að þetta verði gert og leggjum til að frv. verði samþykkt.