[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 130. lþ.
Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):
Herra forseti. Þetta er ákaflega skýrt mál. Formaður Vinstri grænna studdi málið og styður væntanlega enn --- eða hvað? Málið er lagt fram á þeirri forsendu að allir stjórnmálaflokkar standi að því. Öðruvísi hefði það ekki verið lagt fram með öllum þessum flm. Það þarf enginn að telja þingheimi trú um að Vinstri hreyfingin -- grænt framboð hafi ekki stutt þetta mál. Það er ekki hægt að vera flm. að máli á þeim grundvelli að menn styðji ekki einstök ákvæði frv. ef gagnrýni kemur fram á þau opinberlega. Það er ekki hægt. (ÖJ: Enn ein framsóknarósvífnin.) Það er ekki hægt. Það sem mér virðist, í ljósi þessara skýringa sem hér hafa komið fram, vera á ferðinni er einhver togstreita eða valdabarátta milli formanns flokksins, hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar, og hv. þm. Ögmundar Jónassonar. Það virðist eins og hann hafi barist heiftarlega gegn því innan flokksins að hv. formaður flokksins, Steingrímur J. Sigfússon, fái 50% álag á þingfararkaup sitt eins og ég tel eðlilegt að formenn stjórnmálaflokka fái ef þeir eru ekki ráðherrar. Það hefur lengi verið rætt í hópi þingmanna að bæta kjör formanna stjórnmálaflokkanna og löngum verið stuðningur við það viðhorf. En það virðist vera eins og hv. þm. Ögmundur Jónasson sé sérstakur baráttumaður gegn bættum kjörum formanns Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs og það má ætla að það séu sömu vandamál innan Vinstri grænna og eru innan Samf. og við sáum koma fram í umræðum fyrr á þessum morgni. (ÖJ: Ósatt.)