Eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara

Laugardaginn 13. desember 2003, kl. 12:34:13 (3387)

2003-12-13 12:34:13# 130. lþ. 50.2 fundur 447. mál: #A eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara# frv. 141/2003, MS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 130. lþ.

[12:34]

Magnús Stefánsson (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, ég skal alveg virða það sem hv. þm. sagði, að hann hafi gert mistök og kennir þar um reynsluleysi. Ég skal alveg virða það og tek það bara eins og það er. Hins vegar liggur veruleikinn á borðinu og honum verður ekki breytt.

Hvað varðar kostnaðarmat frv. er það auðvitað rétt að það ber að leggja fram kostnaðarmat og það er gert við stjórnarfrv., alltaf gert þegar stjórnarfrv. eru lögð fram. Hv. þm. Bjarni Benediktsson hefur farið yfir málið og hæstv. forsrh. hefur gert það einnig og ég hef engu við það að bæta og tek þær skýringar sem þeir hafa lagt upp með í málinu góðar og gildar og ætla ekki að fara að ræða það nánar.