Einar K. Guðfinnsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Hv. 9. þm. Reykv. s. fór ekki mjög mikið efnislega í frv. í þessari umræðu. Meðal þeirra mála sem hefur þó borið hvað hæst í gagnrýninni á frv. er ákvæði sem snýr að lífeyrisgreiðslum til forsrh. þar sem gert er ráð fyrir að þær verði gerðar sambærilegar og á við um forseta Íslands, þó með þeirri undantekningu að sjálfsögðu að um yrði að ræða helmingi lægri greiðslur en eftirlaunahlutfallið sambærilegt.
Nú langar mig til að spyrja hv. þingmann hver sé skoðun hans á þessu, hvort hann telji óeðlilegt að eftirlaunagreiðslur til forsrh. séu með þessum hætti sambærilegar við eftirlaunagreiðslur til forsetans, hvort hann telji eðlilegt að þær séu á margan hátt lakari en gilda um hæstaréttardómara.
Ég held að það væri gott fyrir umræðuna --- hv. þm. hefur verið mjög gagnrýninn á þetta frv. svo vægt sé til orða tekið --- að afstaða hans til þessara þátta liggi fyrir við þessa umræðu.