Eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara

Laugardaginn 13. desember 2003, kl. 16:18:40 (3457)

2003-12-13 16:18:40# 130. lþ. 50.2 fundur 447. mál: #A eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara# frv. 141/2003, ÞBack (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 130. lþ.

[16:18]

Þuríður Backman (andsvar):

Herra forseti. Ég vil fá að svara hérna nokkru sem kom fram í ræðu hv. þm. og láta það koma alveg skýrt fram að formaður Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs samþykkti að leggja málið fram. Hann þekkti hugmyndafræðina á bak við málið og vildi að það fengi þinglega meðferð.

Hann gerði í aðdraganda málsins grein fyrir því að það væri alveg ljóst að innan Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs, þingflokksins, væri ekki fullur stuðningur við málið og að ljóst væri að það væri andstaða við málið. Á undirbúningsstiginu og þegar búið var að kynna málið í þingflokkunum var því alveg ljóst og kom skýrt fram að andstaða væri innan Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs við málið þannig að við erum ekkert að hlaupa frá einu eða neinu. Ég er búin að gera grein fyrir því hvers vegna ég studdi það með því að vera meðflutningsmaður málsins. Ég ætla ekki að endurtaka það hér enda er tíminn búinn.