Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 6. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 6  —  6. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum.

Flm.: Össur Skarphéðinsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir,


Ágúst Ólafur Ágústsson, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir,
Björgvin G. Sigurðsson, Bryndís Hlöðversdóttir, Einar Már Sigurðarson,
Guðmundur Árni Stefánsson, Guðrún Ögmundsdóttir, Helgi Hjörvar, Jón Gunnarsson, Jóhann Ársælsson, Katrín Júlíusdóttir, Kristján L. Möller, Lúðvík Bergvinsson,
Margrét Frímannsdóttir, Mörður Árnason, Þórunn Sveinbjarnardóttir.


1. gr.

    Í stað hlutfallstölunnar „14%“ í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur: 7%.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Matvælaverð á Íslandi er með því hæsta sem þekkist, enda allt of hátt. Hlutur ráðstöfunartekna meðalfjölskyldunnar til að standa straum af matarinnkaupum er að sama skapi allt of mikill. Neyslukönnun sem Hagstofan gerði árið 1995 sýndi að meðalfjölskyldan notar 17,4% ráðstöfunartekna sinna til matvælakaupa. Athygli vekur að nýrri kannanir liggja ekki fyrir. Flutningsmenn telja að ráða þurfi bót á því, og jafnframt, að nauðsynlegt sé að fyrir liggi hvernig hlutfall ráðstöfunartekna sem varið er til matarkaupa breytist eftir tekjuflokkum og fjölskyldugerðum. Þingmenn Samfylkingarinnar munu því í upphafi þings leggja fram fyrirspurn um það. Þrátt fyrir skort á nægilega ítarlegum upplýsingum má þó færa sterk rök fyrir því að tekjulágar fjölskyldur og ungt fólk með mörg börn á framfæri verji hærra hlutfalli ráðstöfunartekna sinna til matarútgjalda. Fátt er því jafnbrýnt til að bæta fjárhagslega afkomu barnafólks, og þeirra sem hafa lágar tekjur, en finna leiðir til að lækka verð á matvælum. Samfylkingin hefur því lagt mikla áherslu á að stjórnvöld grípi til aðgerða sem duga til þess. Alþingi samþykkti á síðasta löggjafarþingi tillögu frá þremur þingmönnum Samfylkingarinnar, Rannveigu Guðmundsdóttur, Bryndísi Hlöðversdóttur og Össuri Skarphéðinssyni, um athugun á orsökum fyrir háu matvælaverði hér landi miðað við önnur Norðurlönd og ríki Evrópusambandsins. Niðurstöðurnar liggja ekki enn fyrir.
    Ýmsar leiðir eru færar til að lækka matvælaverð. Bent hefur verið á þá augljósu staðreynd að verð á matvælum er miklu lægra innan Evrópusambandsins en á Íslandi og í Noregi, en bæði ríkin standa utan sambandsins. Samkvæmt könnun norsku Hagstofunnar var matvælaverð hér á landi 69% hærra árið 2000 en í Evrópusambandslöndunum, og 62% hærra í Noregi. Þetta er furðulega mikill munur. Sláandi dæmi komu jafnframt fram um illskiljanlegan verðmun milli einstakra matvælategunda á Íslandi og annars staðar í Evrópu. Hver hefði til dæmis trúað að fiskur, helsta framleiðsluvara Íslendinga, væri 12% dýrari á Íslandi en í 15 löndum Evrópusambandsins? Það var þó ein af niðurstöðum norsku könnunarinnar. Ein leið til að lækka matvælaverð kann því að vera að ganga í Evrópusambandið. Reynsla Norðurlandanna hefur sýnt að innganga getur leitt til umtalsverðrar lækkunar matvælaverðs. Íslenskir neytendur hljóta m.a. að taka þá staðreynd til hliðsjónar þegar þeir meta framtíðartengsl Íslands og annarra Evrópulanda. Afstaða Samfylkingarinnar liggur fyrir í því efni. Hún hefur skilgreint sig sem Evrópuflokk.
    Önnur leið til að lækka matarverð er að minnka skattlagningu á mat. Sú leið er í samræmi við áherslur Samfylkingarinnar í sl. kosningabaráttu. Samfylkingin lagði þá til helmingslækkun virðisaukaskatts á þeim matvælum sem eru í lægra virðisaukaskattsþrepi. Það jafngildir lækkun úr 14% í 7%. Sú tillaga er einmitt efni þessa frumvarps. Rökin fyrir skattalækkun af þessu tagi eru augljós. Lækkun virðisaukaskatts á matvælum kemur öllum til góða, einnig þeim sem hafa úr svo litlu að spila að þeir greiða ekki tekjuskatt, og mundu því ekki njóta góðs af lækkun tekjuskattshlutfalls sem stjórnarflokkarnir hafa boðað. Þeir sem minnstar tekjur hafa eyða hlutfallslega mestum parti ráðstöfunartekna sinna til matvælakaupa. Lækkun virðisaukaskatts á matvælum kemur sér því hlutfallslega best fyrir þá sem hafa lágar tekjur eða millitekjur, ekki síst barnafólk sem þarf að verja miklum hluta tekna sinna til að kaupa mat. Í skattalækkun af þessu tagi felst því réttlæti sem vantar í of miklum mæli í skattkerfi okkar Íslendinga.
    Neyslukönnunin frá 1995 sýnir að það ár fóru að meðaltali 17,4% af útgjöldum íslenskra heimila til kaupa á matvælum. Lækkun virðisaukaskatts úr 14 í 7% á þeim matvælum sem telja má í flokki brýnustu nauðþurfta skiptir því verulega miklu máli í útgjöldum íslenskra heimila, ekki síst þeirra sem lægstar hafa ráðstöfunartekjur. Líklegt er að matarreikningur Íslendinga muni lækka um ríflega fimm milljarða króna verði frumvarpið samþykkt. Heildarkostnaður hins opinbera er þó snöggtum minni vegna aukinnar veltu, og má gera ráð fyrir að hann verði undir fjórum milljörðum króna.
    Í meðfylgjandi reglugerð er að finna upptalningu á þeim vörutegundum sem eru í lægra virðisaukaskattsþrepinu, og lækka því enn í verði samkvæmt frumvarpi þessu.


Fylgiskjal.

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 554/1993, um virðisaukaskattskylda
sölu á vörum til manneldis o.fl., með síðari breytingum.


1. gr.

    1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
    Sala á matvörum og öðrum vörum til manneldis ber 14% virðisaukaskatt samkvæmt nánari afmörkun í 2. gr. þessarar reglugerðar.

2. gr.

    2. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
    Af vörum til manneldis í eftirgreindum tollskrárnúmerum skal greiða 14% virðisaukaskatt:
0201.1000–0210.9990    Kjöt og ætir hlutar af dýrum.
0302.1101–0307.9920    Fiskur, krabbadýr, lindýr og aðrir vatna- og sjávarhryggleysingjar.
0401.1000–0401.3000    Mjólk og rjómi. Þó skal greiða 24,5% virðisaukaskatt af ógerilsneyddum vörum í þessum tollflokkum.
0402.1000–0410.0000    Mjólkurafurðir, fuglaegg, náttúrulegt hunang og ætar vörur úr dýraríkinu, ót.a.
0504.0001–0504.0009    Þarmar, blöðrur og magar úr dýrum (þó ekki úr fiski), heilt og í stykkjum.
0511.9901    Dýrablóð.
0701.1000–0714.9000    Matjurtir og tilteknar rætur og hnýði.
0801.1100–0814.0000    Ætir ávextir, hnetur og hýði af sítrusávöxtum eða melónum.
0901.1100–0910.9900    Kaffi, te, maté og krydd.
1001.1001–1004.0009    Hveiti, meslín, rúgur, bygg og hafrar.
1005.9001–1008.2009    Maís (annar en fræ), rís, dúrra, bókhveiti og hirsi.
1008.9009    Annað korn, ót.a.
1101.0010–1105.2009    Malaðar vörur (korn, mjöl, bögglar og flögur).
1106.1000    Mjöl úr þurrkuðum belgávöxtum.
1106.2009    Mjöl úr sagó, rótum eða hnýðum.
1106.3000    Mjöl úr ávöxtum og hnetum.
1107.1000–1202.2000    Malt, sterkja, inúlín, hveitiglúten, sojabaunir og jarðhnetur.
1204.0000    Línfræ (hörfræ).
1206.0000–1208.9000    Sólblómafræ, önnur olíufræ, olíurík aldin og mjöl úr þeim vörum.
1211.9001–1211.9002    Plöntur og plöntuhlutar til manneldis (basilíkum, borasurt, mynta, rósmarín, rúturunni, salvía og malurt).
1212.1000    Fuglatrésbaunir (jóhannesarbrauð).
1212.2009    Sjávargróður og þörungar (söl o.fl.).
1302.2001 og 1302.2009    Pektínefni, pektínöt, pektöt, jurtaslím og hleypiefni.
1501.0011 og 1501.0021    Svína- og alifuglafeiti.
1502.0011 og 1502.0021    Fita af dýrum af nautgripaætt, kindum eða geitum.
1503.0001    Svínafeitisterín, svínaolía, tólgarsterín, oleóolía og tólgarolía.
1504.1001 og 1504.1002    Þorskalýsi.
1504.1004    Lýsi úr fisklifur, ót.a.
1507.1001 og 1507.9001    Sojabaunaolía.
1508.1001 og 1508.9001    Jarðhnetuolía.
1509.1001 og 1509.9001    Ólívuolía.
1510.0001    Aðrar olíur.
1511.1001 og 1511.9001    Pálmaolía.
1512.1101 og 1512.1901    Olía úr fræi sólblóma eða körfublóma.
1512.2101 og 1512.2901    Olía úr fræi baðmullar.
1513.1101 og 1513.1901    Kókoshnetuolía.
1513.2101 og 1513.2901    Pálmakjarna- eða babassúolía.
1514.1101 og 1514.1901    Repju-, kolsa- eða mustarðsolía.
1514.9101 og 1514.9901    Repju-, kolsa- eða mustarðsolía.
1515.2101, 1515.2901,
1515.5001 og 1515.9001    Maísolía, sesamolía og önnur olía eða feiti, ót.a.
1516.1001–1516.2002,
1516.2009    Feiti eða olíur, hertar.
1517.1001–1517.9009    Smjörlíki og blöndur eða framleiðsla til manneldis úr jurtafeiti eða -olíum.
1601.0010–1605.9029    Framleiðsla úr kjöti, fiski eða krabbadýrum, lindýrum eða öðrum vatnahryggleysingjum.
1701.1100–1702.9009    Sykur (þó ekki skrautsykur).
1703.1002 og 1703.1009    Reyrmelassi.
1703.9009    Melassi, ót.a.
1801.0000–1804.0000    Kakaóvörur, svo sem kakaóbaunir, kakaódeig og kakaósmjör (þó ekki kakaóduft).
1806.2002 og 1806.9021    Búðingsduft, búðingar og súpur sem innihalda kakaó.
1806.9011–1806.9019    Efni til framleiðslu á drykkjarvörum sem innihalda kakaó.
1806.9022    Fæða sem inniheldur kakaó, sérstaklega tilreidd fyrir sjúka.
1806.9027 og 1806.2007    Morgunverðarkorn sem inniheldur kakaó.
1901.1000–1904.9009    Framleiðsla úr korni, fínmöluðu mjöli, sterkju eða mjólk.
1905.1000    Hrökkbrauð.
1905.3122    Sætakex og smákökur sem innihalda minna en 20% af sykri.
1905.4000    Tvíbökur, ristað brauð og áþekkar ristaðar vörur.
1905.9011 og 1905.9019    Brauð.
1905.9020    Ósætt kex.
1905.9030    Saltkex og kryddkex.
1905.9040    Kökur og konditorstykki.
1905.9051 og 1905.9059    Bökur, þ.m.t. pítsur (pizza).
1905.9060    Nasl (snack), ót.a.
1905.9090    Brauðvörur, ót.a.
2001.1000–2008.9909    Framleiðsla úr matjurtum, ávöxtum, hnetum eða öðrum plöntuhlutum.
2101.1100–2101.3009    Kjarni, kraftur og seyði úr kaffi, tei eða maté.
2102.1001–2102.2002    Ger og bökunarduft.
2102.2009–2102.3009    Ger og bökunarduft.
2103.1000–2104.2009    Sósur, súpur og seyði og framleiðsla í það, blönduð bragðefni og bragðbætiefni, jafnblönduð samsett matvæli.
2105.0011–2105.0029    Rjómaís og annar ís til manneldis.
2106.1000    Próteinseyði og textúruð próteinefni.
2106.9023    Blöndur jurta eða jurtahluta til lögunar á seyði.
2106.9024    Drykkjarvara, sérstaklega tilreidd fyrir börn og sjúka.
2106.9025    Tilreidd drykkjarvöruefni sem innihalda prótein o.fl.
2106.9026    Tilreidd drykkjarvöruefni úr gingsengkjörnum o.fl.
2106.9041–2106.9049    Búðingsduft, ót.a.
2106.9051    Blöndur úr kemískum efnum og fæðu, svo sem sakkaríni og laktósa, notaðar sem sætuefni.
2106.9059    Létt smjörlíki o.fl. að meginstofni úr feiti og vatni.
2106.9062    Ávaxtasúpur og -grautar.
2106.9064    Búðingsduft með kjötinnihaldi sem að magni til er 3%, til og með 20%, miðað við þyngd.
2106.9069    Ýmis matvælaframleiðsla, ót.a.
2201.9011–2201.9029    Drykkjarvatn, annað en ölkelduvatn.
2202.1021–2202.1029    Drykkjarvara, sérstaklega tilreidd fyrir börn og sjúka.
2202.9011–2202.9019    Blönduð mjólk (25% eða minna blönduð miðað við rúmmál).
2202.9021–2202.9029    Drykkjarvara, sérstaklega tilreidd fyrir börn og sjúka.
2501.0001    Matarsalt í smásöluumbúðum, 5 kg eða minna.
2836.1001    Ammoníumkarbónat (hjartarsalt) í smásöluumbúðum, 1 kg eða minna.
2836.3001 og 2836.4001    Karbónöt í smásöluumbúðum, 1 kg eða minna.
2836.9902    Pottaska í smásöluumbúðum, 1 kg eða minna.
2918.1200–2918.1300    Vínsýra.
2922.4201    Glútamínsýra í smásöluumbúðum, 1 kg eða minna.
2925.1101    Sakkarín og sölt þess í smásöluumbúðum, 1 kg eða minna.
3203.0001    Matarlitur.
3302.1010    Blöndur af ilmandi efnum til matvælaiðnaðar.
3501.9001    Kaseínöt.
3502.1101 og 3502.1901    Albúmín.
3502.2001 og 3502.9001    Albúmín.
3503.0011 og 3503.0021    Matarlím (gelatín o.fl.).
3824.9008    Blanda úr sakkaríni og kemískum efnum í smásöluumbúðum, 1 kg eða minna.

3. gr.

    2. málsl. 1. mgr. 5. gr. orðast svo: Endurgreiðslutímabil fyrir rekstraraðila sem gera upp virðisaukaskatt skv. 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 667/1995, um framtal og skil á virðisaukaskatti, skal þó vera almanaksárið.

4. gr.

    Við 6. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein er verður 3. mgr. og orðast svo:
    Réttur til endurgreiðslu samkvæmt reglugerð þessari fellur niður ef umsókn um endurgreiðslu berst viðkomandi skattstjóra eftir að sex ár eru liðin frá því að réttur til endurgreiðslu stofnaðist.

5. gr.

    Reglugerð þessi er sett með stoð í 14., 42. og 49. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast gildi þegar í stað.

Fjármálaráðuneytinu, 15. júlí 2002.


F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.

Ingvi Már Pálsson.