Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 21. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 21 — 21. mál.
um aðgerðir gegn fátækt.
Helgi Hjörvar, Bryndís Hlöðversdóttir, Rannveig Guðmundsdóttir,
Guðrún Ögmundsdóttir, Jón Gunnarsson, Ásta R. Jóhannesdóttir,
Þórunn Sveinbjarnardóttir, Einar Már Sigurðarson, Björgvin G. Sigurðsson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að grípa til aðgerða til að sporna gegn fátækt og treysta öryggisnet velferðarkerfisins. Í því skyni verði skipuð nefnd með aðild Sambands íslenskra sveitarfélaga og heildarsamtaka launafólks. Nefndin skal gera tillögur til úrbóta sem miði við að enginn hafi sér til framfærslu tekjur undir skilgreindum framfærslumörkum.
Sérstaklega skal höfð hliðsjón af þeim aðgerðum til að vinna bug á fátækt sem lagðar eru til í skýrslu ASÍ Velferð fyrir alla frá mars 2003, einkum hækkun atvinnuleysisbóta og lægstu samsettu bóta lífeyrisþega.
Niðurstöðu nefndarinnar ásamt nauðsynlegum lagabreytingum skal leggja fyrir Alþingi á haustþingi 2004.
Á 128. löggjafarþingi var lögð fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um könnun á umfangi fátæktar. Lagt var til að félagsmálaráðherra yrði falið að láta fara fram úttekt á umfangi, orsökum og afleiðingum fátæktar á Íslandi, félagslegum og fjárhagslegum, með það að markmiði að leggja fram tillögur um úrbætur sem treystu öryggisnet velferðarkerfisins. Skilgreina átti lágmarksframfærslukostnað eftir fjölskyldugerð og gera tillögur til úrbóta sem miðuðu við að enginn hefði sér til framfærslu tekjur undir skilgreindum framfærslumörkum.
Flutningmenn tillögu þeirrar sem nú er lögð fram telja rétt, í ljósi þeirra upplýsinga sem þegar liggja fyrir um umfang og orsakir fátæktar á Íslandi, að stjórnvöld einbeiti sér strax að aðgerðum sem sporni gegn fátækt og treysti öryggisnet velferðarkerfisins.
Þegar hafa komið fram upplýsingar, m.a. frá hjálparstofnunum, stéttarfélögum og félagsþjónustu sveitarfélaga, sem benda til að fátækum hafi fjölgað verulega. Benda má einnig á nýlega rannsókn Hörpu Njálsdóttur félagsfræðings, sem rannsakað hefur fátækt í íslensku þjóðfélagi. Þar kemur fram að miðað við lágmarksframfærslu vantar 40 þús. kr. mánaðarlega upp á fullan lífeyri frá Tryggingastofnun til þess að bótaþegar sem ekki hafa aðrar tekjur en bætur frá ríkinu geti framfleytt sér. Mæðrastyrksnefnd hefur upplýst þeir sem sem leituðu sér aðstoðar og matargjafa hafi verið 40% fleiri á síðasta ári en árið 2001. Fram kom líka hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík að á síðasta ári þurfti að auka fé til fjárhagsaðstoðar um 150 millj. kr. og að fjárhagsaðstoðin jókst um 48% milli áranna 2001 og 2002. Ef skoðaður er norræn samanburður á fátækt kemur fram að þeir sem búa við fátækt eru hlutfallslega flestir á Íslandi. Mæling1997–98 sýndi að um 6,8% búa við fátæktarmörk á Íslandi, í Danmörku eru það 5,3%, í Finnlandi 4,1%, í Noregi 3,5% og í Svíþjóð 4,9%. Skýringin á vaxandi fátækt er m.a. sú að jöfnunarmarkmið velferðarkerfisins hafa vikið, kerfið er fullt af fátæktargildrum og mikil tekjutenging hefur breytt kerfinu nánast í ölmusukerfi.
Í áðurnefndri rannsókn, sem Harpa Njálsdóttir félagsfræðingur stóð fyrir, er til að skýra og mæla fátækt notað lágmarksframfærsluviðmið sem byggist á opinberum skilgreiningum, þ.e. lágmarkstekjum sem hið opinbera ákvarðar lífeyrisþegum og skilgreindum framfærsluþáttum sem hið opinbera telur að séu nauðsynlegir til að komast af. Harpa bendir m.a. á að í leiðbeiningum félagsmálaráðuneytisins frá 1996 komi skýrt fram hvaða þættir séu álitnir nauðsynlegir einstaklingum til að framfleyta sér. Í leiðbeiningunum er gert ráð fyrir að lágmarksfjárþörf fólks miðist við þann lágmarksframfærslukostnað sem ætlaður er einstaklingum eða fjölskyldum til að lifa af. Sömuleiðis er bent á að árið 2001 hafi verið gerðar breytingar á lögum um almannatryggingar þar sem lágmarksframfærsla var ítrekuð og að hlutverk almannatrygginga væri að vera öryggisnet sem byggðist ekki á skilgreindum réttindum heldur tæki mið af framfærslu.
Á undanförnum mánuðum og missirum hefur líka komið glöggt fram að vinnandi fólk þarf í auknum mæli að leita sér aðstoðar. Í hópi fátækra eru einkum öryrkjar og aldraðir, einstæðir foreldrar, einstæðingar og barnmargar fátækar fjölskyldur. Það sýnir líka glöggt að öryggisnet velferðarkerfisins er brostið að stöðugt fjölgar í hópi þeirra sem ekki hafa efni á að leita til læknis eða leysa út lyfin sín. M.a. er það orðið áberandi að læknar vísi fólki til sérfræðinga eða í rannsóknir en það skili sér ekki þangað. Svo langt hefur verið gengið að fólki sem hvorki á fyrir lyfjum né mat, t.d. mörgum þeirra sem lifa þurfa af lífeyri almannatrygginga eða sambærilegum tekjum, er gert að greiða skatt til samfélagsins sem samsvarar mánaðarlífeyrisgreiðslum þeirra.
Hér er lagt til að ríkisstjórnin skipi þegar nefnd með aðild Sambands íslenskra sveitarfélaga og heildarsamtökum launafólks sem hafi það verkefni að gera tillögur til úrbóta til að sporna gegn fátækt. Ástæða er einnig til að benda á að nauðsynlegt er að leita samráðs við samtök lífeyrisþega, samtök einstæðra foreldra, samtök gegn fátækt og önnur þau félagasamtök sem vel þekkja til stöðu og aðbúnaðar fátækra á Íslandi. Mikilvægt er líka að við þetta verkefni verði höfð til hliðsjónar áfangaskýrsla Alþýðusambands Íslands, Velferð fyrir alla, en þar er að finna áherslu og framtíðarsýn Alþýðusambands Íslands í velferðarmálum. Þar er að finna sérstaka greinargerð vinnuhóps um fátækt og áhersluatriði sem ASÍ telur mikilvægt að víðtæk samstaða verði um til að koma í veg fyrir fátækt á Íslandi. Helstu ástæður fátæktar sem ASÍ bendir á eru eftirfarandi:
1. Hár húsnæðiskostur og skortur á félagslegu húsnæði.
2. Skortur á menntun, m.a. mikið brottfall úr framhaldsskólum. Auk þess er bent á mikinn skólakostnað.
3. Hátt verðlag á nauðsynjavörum, svo og lyfjum og heilbrigðisþjónustu.
4. Uppsafnaðan fjárhagsvanda, sem leiðir til þess að margir missa fótanna og lenda í vítahring fátæktar.
5. Lágar atvinnuleysisbætur, sérstaklega þeirra sem búa við langtímaatvinnuleysi.
6. Félagsleg staða margra einhleypra karla, en þeir eru stærsti hópur þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna, eru oft atvinnulausir og skulda margir hverjir meðlög sem eru meiri en þeir ráða við að greiða.
7. Lágar bætur og miklar tekjutengingar valda því að þeir sem að öllu eða mestu leyti þurfa að treysta á bætur sér til framfærslu, búa við mjög kröpp kjör. Kaupmáttaraukning bóta hefur verið minni en almennra launa á liðnum árum. Hluti af þeim kaupmáttarauka hefur farið í greiðslu á tekjuskatti þar sem skattleysismörk hafa ekki haldið í við hækkun bóta.
Í skýrslunni eru settar fram leiðir til úrbóta og fylgja þær hér í fylgiskjali.
Von flutningsmanna er að um þessa þingsályktunartillögu geti náðst víðtæk samstaða á Alþingi. Það hlýtur að vera forgangsverkefni í þjóðfélaginu að treysta á nýjan leik öryggisnet velferðarkerfisins, þannig að hægt sé að losa fólk úr fjötrum fátæktarinnar sem verður sífellt sýnilegri í þjóðfélaginu.
Fylgiskjal.
Leiðir til úrbóta.
Hér verður fjallað um nauðsynlegar aðgerðir til að vinna bug á fátækt. Ekki er um tæmandi upptalningu að ræða, til þess er vandamálið allt of stórt, viðamikið og flókið.
Húsnæðismál.
Afar brýnt er að auka framboð á félagslegu leiguhúsnæði og ennfremur að tryggja niðurgreiðslu á kostnaði í formi vaxtaniðurgreiðslu, stofnstyrkja og eða með auknum húsaleigubótum þannig að leigukjörin verði viðráðanleg. Þessu til viðbótar er mikilvægt að bæta stöðu þeirra sem eru á almennum leigumarkaði með því að hækka húsaleigubætur og hækka jafnframt tekjuviðmið þeirra sem geta fengið húsaleigubætur.
Menntun.
Mikilvægt er að fjölga námstilboðum í framhaldsskólum og efla sérstaklega starfstengt nám. Samhliða þarf að vinna slíku námi viðurkenningu á vinnumarkaði. Efla þarf símenntun og starfsendurhæfingu þeirra sem eru á vinnumarkaði. Slíkt verði gert í samvinnu aðila vinnumarkaðarins, ríkisvaldsins og sveitarfélaga. Taka þarf upp skólastyrki til framhaldsskólanema úr tekjuminni fjölskyldum til að gera þeim kleift að stunda nám til jafns við aðra. Þetta gætu t.d. verið styrkir til bóka- og tölvukaupa. Æskilegt er að kenna nemendum um fjármál í skólakerfinu og gera þá þannig færari að takast á við eigin fjármál.
Barnafjölskyldur/einstæðir foreldrar.
Til að koma til móts við barnafólk er nauðsynlegt að barnabætur verði hærri en nú er, ótekjutengdar og nái til barna allt að 18 ára aldri. Til að koma til móts við börn tekjuminni foreldra og til að koma í veg fyrir stéttaskiptingu meðal barna er mikilvægt að sveitarfélög dragi umtalsvert úr gjaldtöku vegna skólagöngu, hvort sem um er að ræða fyrir gæslu yngri barna eftir skóla, aðstoð við heimanám, skólamáltíðir eða tónlistarskóla. Einnig þurfa sveitarfélög að gera börnum kleift að stunda íþróttir og æskulýðsstörf án tilltis til efnahags foreldra. Til að koma til móts við kostnað fjölskyldna í dreifbýli af því að senda börn í framhaldsskóla er mikilvægt að hækka styrki til jöfnunar á námskostnaði (dreifbýlisstyrki) og greiða þá oftar og jafnar út.
Öryrkjar.
Hækka þarf bætur öryrkja og taka sérstakt tillit til þeirra sem eru á örorkubótum lengi og þá jafnvel alla starfsæfina. Þeir eiga þess lítinn kost að mynda eignir, s.s. eigið húsnæði. Búa þarf þannig um hnútana að kerfi bóta hvetji fólk til sjálfshjálpar og ýti undir þátttöku í atvinnulífinu. Hér þarf sérstaklega að huga að þætti tekjutenginga. Vegna hárra jaðarskerðinga sem tekjutengingar og skattar hafa í för með sér, eiga margir öryrkjar erfitt með að bæta fjárhagsstöðu sína, jafnvel þó að þeir hafi einhverja starfsgetu. Einnig þarf að efla starfsendurhæfingu öryrkja og þannig aðstoða þá betur til að taka þátt í atvinnulífinu.
Eldri borgarar.
Staða þeirra eldri borgara sem hafa litlar eða engar greiðslur úr lífeyrissjóði eru óviðunandi. Greiðslur af eigin húsnæði fara illa með marga tekjulitla eldri borgara. Lækka þarf álögur hins opinbera á húsnæði eldri borgara og gera þeim þannig kleift að búa sem lengst í eigin íbúð. Þetta á bæði við um fasteignagjöld sveitarfélaga og eignaskatta. Bæta þarf stöðu eldri borgara sem eru í leiguhúsnæði á amentum leigumarkaði. Þetta má t.d. gera með því að veita þeim forgang að félagslegu leiguhúsnæði. Fjölga þarf bæði þjónustuíbúðum aldraðra og hjúkrunarrýmum.
Atvinnulausir.
Nauðsynlegt er að hækka atvinnuleysisbætur. Atvinnuleysisbætur eru nú um kr. 77.000 á mánuði og hafa ekki haldið í við launaþróun á liðnum árum. Sérstaklega þarf að huga að vanda langtímaatvinnulausra, þ.e. þeirra sem hafa verið án atvinnu lengur en 6 mánuði. Nauðsynlegt er að fjölga námstilboðum fyrir þennan hóp og gera atvinnulausum kleift að stunda nám án þess að missa bæturnar. Einnig þarf að efla starfsendurhæfingu. Brýnt er að auka atvinnuframboð víða í dreifbýli.
Einhleypir karlar.
Vanda þessa hóps verður að leysa með margvíslegum hætti. Til skemmri tíma má m.a.:
* Veita húsaleigubætur vegna leigu á herbergjum.
* Styrkja fjárhagsstöðu þeirra feðra sem eru það illa staddir fjárhagslega að þeir eiga erfitt með að umgangast börn sín með sómasamlegum hætti.
* Veita þeim feðrum sem eru með sameiginlegt forræði aukna möguleika á félagslegri aðstoð, t.d. í formi leiguhúsnæðis og ráðgjafar.
Til að taka á málefnum þessa hóps til lengri tíma er æskilegt að myndaður verði þverfaglegur vinnuhópur sem geri úttekt á aðstæðum hópsins og komi með tillögur til úrbóta.
Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga.
Sveitarfélögin byggja fjárhagsaðstoð sína á lögum nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga. Lögin eru almennt orðuð og ekki tryggt að einstaklingar geti sótt svipaðan rétt óháð því hvar þeir búa. Mikilvægt er að samræma og útfæra skyldur sveitarfélaga í lögunum eða setja ákveðnar viðmiðunarreglur. Hækka þarf viðmið sveitarfélaganna um fjárhagsaðstoð en þau eru hjá flestum sveitarfélögum um kr. 70.000 á mánuði fyrir einstakling.
Einnig þarf að afnema ýmsar íþyngjandi reglur sem sveitarfélög hafa sett varðandi aðstoð. Þetta á sérstaklega við um skilyrði fyrir búsetu í lágmarkstíma í sveitarfélagi áður en einstaklingur getur sótt um félagslegt leiguhúsnæði.
Tillögur um bráðaaðgerðir.
Starfshópur um fátækt hefur í vinnu sinni fjallað um vísbendingar um umfang fátæktarvandans, ástæður fátæktar og leiðir til úrbóta. Að mati hópsins er eftirfarandi brýnast:
* Húsnæðismál:
. Húsaleiga verði niðurgreidd umfram það sem nú er gert og framboð á félagslegu leiguhúsnæði aukið.
* Menntun:
. Koma þarf sérstaklega til móts við ungt fólk úr tekjuminni fjölskyldum þannig að það geti stundað nám til jafns við aðra.
* Heilbrigðismál:
. Brýnt er að draga úr kostnaði sjúklinga vegna lyfja og heilbrigðisþjónustu.
* Afkomuvandi:
. Barnabætur verði hærri en nú er, ótekjutengdar og nái til barna allt að 18 ára aldri. Sveitarfélögin dragi úr gjaldtöku vegna skólaþjónustu og tómstunda og geri börnum kleift að stunda íþróttir og æskulýðsstörf án tillits til efnahags foreldra.
. Lægstu samsettu bætur öryrkja verði a.m.k. kr. 110.000 á mánuði auk barnalífeyris.
. Draga þarf úr álögum hins opinbera á húsnæði eldri borgara og gera þeim þannig kleift að búa sem lengst í eigin húsnæði.
. Lagt er til að atvinnuleysisbætur verði nú þegar hækkaðar úr kr. 77.452 í kr. 93.000 á mánuði.
. Mótuð verði atvinnustefna sem hefur það að markmiði að auka atvinnuframboð í dreifbýli.
. Sveitarfélög hækki tekjumarki einstaklinga fyrir fjárhagsaðstoð.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 21 — 21. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um aðgerðir gegn fátækt.
Flm.: Jóhanna Sigurðardóttir, Össur Skarphéðinsson, Margrét Frímannsdóttir,
Helgi Hjörvar, Bryndís Hlöðversdóttir, Rannveig Guðmundsdóttir,
Guðrún Ögmundsdóttir, Jón Gunnarsson, Ásta R. Jóhannesdóttir,
Þórunn Sveinbjarnardóttir, Einar Már Sigurðarson, Björgvin G. Sigurðsson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að grípa til aðgerða til að sporna gegn fátækt og treysta öryggisnet velferðarkerfisins. Í því skyni verði skipuð nefnd með aðild Sambands íslenskra sveitarfélaga og heildarsamtaka launafólks. Nefndin skal gera tillögur til úrbóta sem miði við að enginn hafi sér til framfærslu tekjur undir skilgreindum framfærslumörkum.
Sérstaklega skal höfð hliðsjón af þeim aðgerðum til að vinna bug á fátækt sem lagðar eru til í skýrslu ASÍ Velferð fyrir alla frá mars 2003, einkum hækkun atvinnuleysisbóta og lægstu samsettu bóta lífeyrisþega.
Niðurstöðu nefndarinnar ásamt nauðsynlegum lagabreytingum skal leggja fyrir Alþingi á haustþingi 2004.
Greinargerð.
Á 128. löggjafarþingi var lögð fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um könnun á umfangi fátæktar. Lagt var til að félagsmálaráðherra yrði falið að láta fara fram úttekt á umfangi, orsökum og afleiðingum fátæktar á Íslandi, félagslegum og fjárhagslegum, með það að markmiði að leggja fram tillögur um úrbætur sem treystu öryggisnet velferðarkerfisins. Skilgreina átti lágmarksframfærslukostnað eftir fjölskyldugerð og gera tillögur til úrbóta sem miðuðu við að enginn hefði sér til framfærslu tekjur undir skilgreindum framfærslumörkum.
Flutningmenn tillögu þeirrar sem nú er lögð fram telja rétt, í ljósi þeirra upplýsinga sem þegar liggja fyrir um umfang og orsakir fátæktar á Íslandi, að stjórnvöld einbeiti sér strax að aðgerðum sem sporni gegn fátækt og treysti öryggisnet velferðarkerfisins.
Þegar hafa komið fram upplýsingar, m.a. frá hjálparstofnunum, stéttarfélögum og félagsþjónustu sveitarfélaga, sem benda til að fátækum hafi fjölgað verulega. Benda má einnig á nýlega rannsókn Hörpu Njálsdóttur félagsfræðings, sem rannsakað hefur fátækt í íslensku þjóðfélagi. Þar kemur fram að miðað við lágmarksframfærslu vantar 40 þús. kr. mánaðarlega upp á fullan lífeyri frá Tryggingastofnun til þess að bótaþegar sem ekki hafa aðrar tekjur en bætur frá ríkinu geti framfleytt sér. Mæðrastyrksnefnd hefur upplýst þeir sem sem leituðu sér aðstoðar og matargjafa hafi verið 40% fleiri á síðasta ári en árið 2001. Fram kom líka hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík að á síðasta ári þurfti að auka fé til fjárhagsaðstoðar um 150 millj. kr. og að fjárhagsaðstoðin jókst um 48% milli áranna 2001 og 2002. Ef skoðaður er norræn samanburður á fátækt kemur fram að þeir sem búa við fátækt eru hlutfallslega flestir á Íslandi. Mæling1997–98 sýndi að um 6,8% búa við fátæktarmörk á Íslandi, í Danmörku eru það 5,3%, í Finnlandi 4,1%, í Noregi 3,5% og í Svíþjóð 4,9%. Skýringin á vaxandi fátækt er m.a. sú að jöfnunarmarkmið velferðarkerfisins hafa vikið, kerfið er fullt af fátæktargildrum og mikil tekjutenging hefur breytt kerfinu nánast í ölmusukerfi.
Í áðurnefndri rannsókn, sem Harpa Njálsdóttir félagsfræðingur stóð fyrir, er til að skýra og mæla fátækt notað lágmarksframfærsluviðmið sem byggist á opinberum skilgreiningum, þ.e. lágmarkstekjum sem hið opinbera ákvarðar lífeyrisþegum og skilgreindum framfærsluþáttum sem hið opinbera telur að séu nauðsynlegir til að komast af. Harpa bendir m.a. á að í leiðbeiningum félagsmálaráðuneytisins frá 1996 komi skýrt fram hvaða þættir séu álitnir nauðsynlegir einstaklingum til að framfleyta sér. Í leiðbeiningunum er gert ráð fyrir að lágmarksfjárþörf fólks miðist við þann lágmarksframfærslukostnað sem ætlaður er einstaklingum eða fjölskyldum til að lifa af. Sömuleiðis er bent á að árið 2001 hafi verið gerðar breytingar á lögum um almannatryggingar þar sem lágmarksframfærsla var ítrekuð og að hlutverk almannatrygginga væri að vera öryggisnet sem byggðist ekki á skilgreindum réttindum heldur tæki mið af framfærslu.
Á undanförnum mánuðum og missirum hefur líka komið glöggt fram að vinnandi fólk þarf í auknum mæli að leita sér aðstoðar. Í hópi fátækra eru einkum öryrkjar og aldraðir, einstæðir foreldrar, einstæðingar og barnmargar fátækar fjölskyldur. Það sýnir líka glöggt að öryggisnet velferðarkerfisins er brostið að stöðugt fjölgar í hópi þeirra sem ekki hafa efni á að leita til læknis eða leysa út lyfin sín. M.a. er það orðið áberandi að læknar vísi fólki til sérfræðinga eða í rannsóknir en það skili sér ekki þangað. Svo langt hefur verið gengið að fólki sem hvorki á fyrir lyfjum né mat, t.d. mörgum þeirra sem lifa þurfa af lífeyri almannatrygginga eða sambærilegum tekjum, er gert að greiða skatt til samfélagsins sem samsvarar mánaðarlífeyrisgreiðslum þeirra.
Hér er lagt til að ríkisstjórnin skipi þegar nefnd með aðild Sambands íslenskra sveitarfélaga og heildarsamtökum launafólks sem hafi það verkefni að gera tillögur til úrbóta til að sporna gegn fátækt. Ástæða er einnig til að benda á að nauðsynlegt er að leita samráðs við samtök lífeyrisþega, samtök einstæðra foreldra, samtök gegn fátækt og önnur þau félagasamtök sem vel þekkja til stöðu og aðbúnaðar fátækra á Íslandi. Mikilvægt er líka að við þetta verkefni verði höfð til hliðsjónar áfangaskýrsla Alþýðusambands Íslands, Velferð fyrir alla, en þar er að finna áherslu og framtíðarsýn Alþýðusambands Íslands í velferðarmálum. Þar er að finna sérstaka greinargerð vinnuhóps um fátækt og áhersluatriði sem ASÍ telur mikilvægt að víðtæk samstaða verði um til að koma í veg fyrir fátækt á Íslandi. Helstu ástæður fátæktar sem ASÍ bendir á eru eftirfarandi:
1. Hár húsnæðiskostur og skortur á félagslegu húsnæði.
2. Skortur á menntun, m.a. mikið brottfall úr framhaldsskólum. Auk þess er bent á mikinn skólakostnað.
3. Hátt verðlag á nauðsynjavörum, svo og lyfjum og heilbrigðisþjónustu.
4. Uppsafnaðan fjárhagsvanda, sem leiðir til þess að margir missa fótanna og lenda í vítahring fátæktar.
5. Lágar atvinnuleysisbætur, sérstaklega þeirra sem búa við langtímaatvinnuleysi.
6. Félagsleg staða margra einhleypra karla, en þeir eru stærsti hópur þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna, eru oft atvinnulausir og skulda margir hverjir meðlög sem eru meiri en þeir ráða við að greiða.
7. Lágar bætur og miklar tekjutengingar valda því að þeir sem að öllu eða mestu leyti þurfa að treysta á bætur sér til framfærslu, búa við mjög kröpp kjör. Kaupmáttaraukning bóta hefur verið minni en almennra launa á liðnum árum. Hluti af þeim kaupmáttarauka hefur farið í greiðslu á tekjuskatti þar sem skattleysismörk hafa ekki haldið í við hækkun bóta.
Í skýrslunni eru settar fram leiðir til úrbóta og fylgja þær hér í fylgiskjali.
Von flutningsmanna er að um þessa þingsályktunartillögu geti náðst víðtæk samstaða á Alþingi. Það hlýtur að vera forgangsverkefni í þjóðfélaginu að treysta á nýjan leik öryggisnet velferðarkerfisins, þannig að hægt sé að losa fólk úr fjötrum fátæktarinnar sem verður sífellt sýnilegri í þjóðfélaginu.
Fylgiskjal.
Velferð fyrir alla.
Úr skýrslu ASÍ.
(Mars 2003.)