Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 36. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 36  —  36. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 96/1995, um gjald af áfengi og tóbaki, með síðari breytingum.

Flm.: Steingrímur J. Sigfússon, Kolbrún Halldórsdóttir, Þuríður Backman.



1. gr.

    Í stað 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. laganna koma tveir nýir málsliðir sem orðast svo: Af innheimtu áfengisgjaldi þeirra sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr. skal 1% renna í Forvarnasjóð. Á tímabilinu 1. nóvember til 31. desember árið 2003 skal þetta hlutfall vera 2% og síðan 4% frá og með 1. janúar árið 2004.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarp þetta er flutt sem fylgifrumvarp með tillögu til þingsályktunar um eflingu félagslegs forvarnastarfs. Hækkun þess hluta áfengisgjalds sem rennur til Forvarnasjóðs er ætluð til að standa straum af kostnaði við sérstakt átak í þeim efnum. Áætlað er að hækkunin skili um 10 millj. kr. viðbótartekjum á tveimur síðustu mánuðum ársins 2003 og um 180 millj. kr. á ári eftir það. Um frekari rökstuðning vísast í greinargerð með áðurnefndri tillögu til þingsályktunar um eflingu félagslegs forvarnastarfs.