Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 44. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 44 — 44. mál.
um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum.
Ef opinber starfsmaður tekur þátt í embættis- eða sýslunarbroti annars opinbers starfsmanns, sem undir hann er gefinn, eða leitast við að koma honum til að fremja slíkt brot, þá skal hann sæta þeirri refsingu, sem við því broti liggur.
Núgildandi 138. gr. almennra hegningarlaga heimilar að bæta allt að helmingi við refsingu ef brot er framið í opinberu starfi og ekki mælt fyrir um sérstaka refsingu við því að fremja slíkt brot sem opinber starfsmaður. Greinin er svohljóðandi: „Nú hefur opinber starfsmaður gerst sekur um refsilagabrot með verknaði, sem telja verður misnotkun á stöðu hans, og við því broti er ekki lögð sérstök refsing sem broti í embætti eða sýslan, þá skal hann sæta þeirri refsingu, sem við því broti liggur, en þó svo aukinni, að bætt sé við hana allt að helmingi hennar.“
Í frumvarpinu er lagt til að greinin falli niður, og þar með sú refsihækkunarheimild gagnvart opinberum starfsmönnum sem þar er að finna. Til samræmis er lagt til að refsihækkunarheimild í hlutdeildarbroti opinbers starfsmanns skv. 135. gr. verði felld niður. Ástæðan fyrir flutningi frumvarpsins er sú að flutningsmenn telja að framangreind ákvæði stangist á við jafnræðisreglu stjórnarskrár og ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.
Í 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins segir í 1. mgr.: „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.“ Flutningsmenn telja að orðalagið „stöðu að öðru leyti“ leiði til að framangreind lagaákvæði feli í sér óheimila mismunun, eftir því hvort starfsmaður, sem gerist brotlegur, er starfsmaður hins opinbera eða starfar á almennum vinnumarkaði. Í 14. gr. laga nr. 62/1994, um mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. samningsviðauka nr. 11, 2. gr., er sömuleiðis að dómi flutningsmanna frumvarpsins lagt bann við slíkri mismunun. Greinin hljóðar svo: „Réttindi þau og frelsi, sem lýst er í samningi þessum, skulu tryggð án nokkurs manngreinarálits, svo sem vegna kynferðis, kynþáttar, litarháttar, tungu, trúarbragða, stjórnmála- eða annarra skoðana, þjóðernis eða þjóðfélagsstöðu, tengsla við þjóðernisminnihluta, eigna, uppruna eða annarrar stöðu.“ Flutningsmenn telja að sömu röksemdir gildi um þetta ákvæði og raktar eru varðandi jafnræðisákvæði 65. gr. stjórnarskrárinnar. Það, að ríki eða sveitarfélag greiði laun einstaklings, getur ekki réttlætt þyngri refsingu. Því eiga framangreind ákvæði ekki við.
Flutningsmenn benda jafnframt á að þrátt fyrir niðurfellingu refsihækkunarheimildar gæti refsimat dómstóla að einhverju leyti tekið mið af því hvort sakborningur hefur misnotað vald sitt eða stöðu, sbr. 70. gr. almennra hegningarlaga, og þannig tekið tillit til alvarleika brota opinberra starfsmanna þegar það á við.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 44 — 44. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum.
Flm.: Össur Skarphéðinsson, Guðmundur Árni Stefánsson,
Katrín Júlíusdóttir, Anna Kristín Gunnarsdóttir.
1. gr.
Ef opinber starfsmaður tekur þátt í embættis- eða sýslunarbroti annars opinbers starfsmanns, sem undir hann er gefinn, eða leitast við að koma honum til að fremja slíkt brot, þá skal hann sæta þeirri refsingu, sem við því broti liggur.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
Greinargerð.