Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 62. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 62  —  62. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um Árósasamninginn.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hvað líður skoðun stjórnvalda á áliti réttarfarsnefndar frá 2001 um mögulegar lagabreytingar sem gera þyrfti áður en Ísland gæti staðfest Árósasamninginn frá 25. júní 1998, um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og réttláta málsmeðferð í umhverfismálum?
     2.      Hver er afstaða annarra Norðurlandaríkja til sömu álitamála og hvað líður staðfestingu þeirra á Árósasamningnum?