Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 95. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 95  —  95. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um flutning veiðiheimilda fiskveiðiárin 2001/2002 og 2002/2003.

Frá Jóhanni Ársælssyni.



     1.      Hverjir voru heildarflutningar annars vegar aflamarks og hins vegar aflahlutdeilda í botnfisktegundum frá og til einstakra sveitarfélaga á fiskveiðiárunum 2001/2002 og 2002/2003, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hverjir voru heildarflutningar annars vegar aflamarks og hins vegar aflahlutdeilda í botnfisktegundum frá og til þeirra 100 fyrirtækja og einstaklinga á landinu öllu sem mest viðskipti höfðu með aflaheimildir á fiskveiðiárunum 2001/2002 og 2002/2003, sundurliðað eftir árum, fyrirtækjum og einstaklingum?


Skriflegt svar óskast.