Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 111. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 111  —  111. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 76/1970, um lax- og silungsveiði, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 130. löggjafarþingi 2003–2004.)



I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 76/1970, um lax- og silungsveiði, með síðari breytingum.
1. gr.

    Við 1. gr. laganna bætist eftirfarandi orðskýring í réttri stafrófsröð:
     Eldisdýr: lifandi fiskur, krabbadýr eða lindýr frá eldisstöð, óháð þroskastigi, að meðtöldum dýrum sem lifa upprunalega villt en eru ætluð fyrir eldisstöð.

2. gr.

    Við 76. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Við inn- og útflutning eldisdýra er heimil notkun erlendra flutningstækja, svo sem brunnbáta, og búnaðar sem tengdur er þeim, enda skal flutningurinn háður skilyrðum reglugerðar sem landbúnaðarráðherra setur.

3. gr.

    Fyrri málsliður 79. gr. laganna orðast svo: Heimilt er að flytja til landsins lifandi laxfisk eða annan fisk, er lifir í ósöltu vatni, enda skal innflutningurinn háður skilyrðum reglugerðar sem landbúnaðarráðherra setur.

II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, með síðari breytingum.
4. gr.

    Við 2. gr. laganna bætist ný málsgrein sem verður 2. mgr. og orðast svo:
    Þrátt fyrir innflutningsbann skv. 1. mgr. er heimilt að flytja til landsins lifandi fisk, krabbadýr eða lindýr frá eldisstöð, óháð þroskastigi, að meðtöldum dýrum sem lifa upprunalega villt en eru ætluð til eldis í eldisstöð, enda skal innflutningurinn háður skilyrðum reglugerðar sem landbúnaðarráðherra setur. Við innflutning skal framvísa skriflegri staðfestingu yfirdýralæknis á að uppfyllt séu skilyrði samkvæmt þessu ákvæði.

5. gr.

    1. mgr. 9. gr. laganna orðast svo:
    Einangra skal öll innflutt dýr og erfðaefni, að undanskildum eldisdýrum skv. 2. mgr. 2. gr., á sóttvarnastöð svo lengi sem yfirdýralæknir telur þörf á undir stöðugu eftirliti sóttvarnardýralæknis stöðvarinnar.

III. KAFLI
Breyting á lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og
varnir gegn þeim, með síðari breytingum.

6. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:
     a.      Við 1. tölul. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: bann við innflutningi eða útflutningi.
     b.      Við 2. tölul. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: bann við innflutningi eða útflutningi.

7. gr.

    Við 11. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Landbúnaðarráðherra er í samráði við embætti yfirdýralæknis jafnframt heimilt að takmarka eða banna inn- og útflutning tiltekinna dýra og afurða þeirra, til lengri eða skemmri tíma, til tiltekins lands eða landsvæðis telji hann að slíkur flutningur valdi eða sé líklegur til að valda útbreiðslu sjúkdóma.

8. gr.

    Við 29. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Landbúnaðarráðherra skal setja sérstaka reglugerð um innflutning og útflutning eldisdýra og afurða þeirra til að hindra útbreiðslu smitsjúkdóma.

9. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi. Þrátt fyrir ákvæði 1. málsl. er óheimilt að flytja inn lifandi fisk, krabbadýr og lindýr skv. 3. og 4. gr. fyrr en reglugerð sem landbúnaðarráðherra setur um innflutninginn hefur öðlast gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Um frumvarp þetta, sem lagt er fyrir Alþingi skv. 28. gr. stjórnarskrárinnar, vísast að öðru leyti til fylgiskjals I.



Fylgiskjal I.


BRÁÐABIRGÐALÖG
um breytingu á lögum nr. 76/1970 um lax- og silungsveiði, lögum nr.
54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma
og varnir gegn þeim með síðari breytingum.


FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Landbúnaðarráðherra hefur tjáð mér að stjórnvöld í Skotlandi og á Írlandi hafi nýlega lagt bann við innflutningi eldisdýra og afurða þeirra héðan með skírskotun til þess að Ísland og fiskeldisstöðvar hér á landi hafi ekki sambærilegar viðbótartryggingar fyrir heilbrigðisástandi eldisdýra og gilda í þessum löndum. Komi það til af því að Eftirlitsstofnun EFTA hafi ekki talið sér heimilt að gefa út slíkar tryggingar fyrir Ísland fyrr en löggjöf hér á landi hefur verið aðlöguð ákvæðum tilskipunar nr. 91/67/EBE, um skilyrði á sviði heilbrigðis eldisdýra, eins og henni hafi verið breytt með tilskipunum nr. 93/54/EB, 95/22/EB, 97/79/EB og 98/45/EB, sem allar séu hluti af EES-samningnum skv. I. viðauka við hann og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/98 frá 17. júlí 1998.
    Íslensk fyrirtæki hafi að undanförnu flutt út eldisfisk og hrogn til Skotlands, Írlands og annarra aðildarríkja Evrópusambandsins í ört vaxandi mæli. Viðskiptabann þetta tefli í tvísýnu rekstrargrundvelli þessara fyrirtækja og valdi þeim og íslensku fiskeldi miklum álitshnekki. Í húfi séu miklir fjárhagslegir hagsmunir og tugir starfa, enda blasi uppsagnir við ef ekkert verði að gert.
    Brýna nauðsyn beri því til þess að breyta nú þegar lögum á þann veg að lögleiða megi ákvæði áðurnefndra tilskipana og gera allar viðeigandi ráðstafanir til að hnekkja þessum hindrunum. Fyrir því eru hér með sett svofelld bráðabirgðalög samkvæmt 28. gr. stjórnarskrárinnar:

I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 76/1970 um lax- og silungsveiði með síðari breytingum.
1. gr.

    Við 1. gr. laganna bætist eftirfarandi orðskýring í réttri stafrófsröð:
    Eldisdýr: lifandi fiskur, krabbadýr eða lindýr frá eldisstöð, óháð þroskastigi að meðtöldum dýrum sem lifa upprunalega villt en eru ætluð fyrir eldisstöð.

2. gr.

    Við 76. gr. laganna bætist ný málsgrein, 2. mgr. svohljóðandi:
    Við inn- og útflutning eldisdýra er heimil notkun erlendra flutningstækja, svo sem brunnbáta, og búnaðar sem tengdur er þeim, enda skal flutningurinn háður skilyrðum reglugerðar sem landbúnaðarráðherra setur.

3. gr.

    Fyrri málsliður 79. gr. laganna orðast svo:
    Heimilt er að flytja til landsins lifandi laxfisk eða annan fisk, er lifir í ósöltu vatni, enda skal innflutningurinn háður skilyrðum reglugerðar sem landbúnaðarráðherra setur.

II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra með síðari breytingum.
4. gr.

    Við 2. gr. laganna bætist ný málsgrein sem verður 2. mgr. og orðast svo:
    Þrátt fyrir innflutningsbann skv. 1. mgr. er heimilt að flytja til landsins lifandi fisk, krabbadýr eða lindýr frá eldisstöð, óháð þroskastigi, að meðtöldum dýrum sem lifa upprunalega villt en eru ætluð til eldis í eldisstöð, enda skal innflutningurinn háður skilyrðum reglugerðar sem landbúnaðarráðherra setur. Við innflutning skal framvísa skriflegri staðfestingu yfirdýralæknis á að uppfyllt séu skilyrði samkvæmt þessu ákvæði.

5. gr.

    1. mgr. 9. gr. laganna orðast svo:
    Einangra skal öll innflutt dýr og erfðaefni, að undanskildum eldisdýrum skv. 2. mgr. 2. gr., á sóttvarnastöð svo lengi sem yfirdýralæknir telur þörf á undir stöðugu eftirliti sóttvarnardýralæknis stöðvarinnar.

III. KAFLI
Breytingar á lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og
varnir gegn þeim með síðari breytingum.

6. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:
     a.      Við 1. tölul. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: bann við innflutningi eða útflutningi.
     b.      Við 2. tölul. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: bann við innflutningi eða útflutningi.

7. gr.

    Við 11. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Landbúnaðarráðherra er í samráði við embætti yfirdýralæknis jafnframt heimilt að takmarka eða banna inn- og útflutning tiltekinna dýra og afurða þeirra, til lengri eða skemmri tíma, til tiltekins lands eða landsvæðis telji hann að slíkur flutningur valdi eða sé líklegur til að valda útbreiðslu sjúkdóma.

8. gr.

    Við 29. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Landbúnaðarráðherra skal setja sérstaka reglugerð um innflutning og útflutning eldisdýra og afurða þeirra til að hindra útbreiðslu smitsjúkdóma.

9. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi. Þrátt fyrir ákvæði 1. málsliðar er óheimilt að flytja inn lifandi fisk, krabbadýr og lindýr samkvæmt 3. og 4. gr. fyrr en reglugerð sem landbúnaðarráðherra setur um innflutninginn hefur öðlast gildi.

Gjört á Bessastöðum 1. júlí 2003.


Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

_______________
Guðni Ágústsson.


Fylgiskjal II.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 76/1970, um lax- og silungsveiði, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum.

    Markmiðið með frumvarpinu er að staðfesta bráðabirgðalög, nr. 103/2003, um sama efni sem sett voru 1. júlí 2003. Bráðabirgðalögin voru sett í kjölfar þess að útflutningur eldisfisks og hrogna til Skotlands og Írlands stöðvaðist þar sem Íslendingar og fiskeldisstöðvar hér á landi höfðu ekki sambærilegar viðbótartryggingar fyrir heilbrigðisástandi eldisdýra og gilda í þessum löndum. Var bráðabirgðalögunum ætlað aðlaga löggjöf hér á landi ákvæðum tilskipana EBE.
    Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það hafi kostnaðarauka í för með sér fyrir ríkissjóð.