Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 137. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 137  —  137. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um bætta stöðu þolenda kynferðisbrota.

Flm.: Jóhanna Sigurðardóttir, Guðrún Ögmundsdóttir, Einar Már Sigurðarson,
Þórunn Sveinbjarnardóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir.


    Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að skipa nefnd sérfræðinga sem hafi það verkefni að kanna og gera tillögur um bætta stöðu þolenda kynferðisbrota, einkum barna og unglinga.
    Verkefni nefndarinnar verði að gera ítarlega úttekt á stöðu þolenda kynferðisbrota og ferli kærumála í réttar- og dómskerfinu. Sérstaklega verði skoðuð lagaákvæði er varða starfshætti dómstóla og hvort þörf er á að herða refsiúrræði. Einnig leggi nefndin fram tillögur um hvernig bæta megi stuðning og meðferðarúrræði sem fórnarlömb kynferðisbrota eiga kost á.
    Í úttektinni verði jafnframt kannað hvaða fyrirbyggjandi aðgerðum hægt er að beita, m.a. gagnvart gerendum, til að koma í veg fyrir kynferðislega áreitni og ofbeldi. Jafnframt leitist nefndin við að benda á leiðir sem eru færar til að hvetja þá sem beittir eru kynferðislegu ofbeldi til að kæra verknaðinn.
    Tillögur nefndarinnar og úrbætur verði lagðar fyrir Alþingi eigi síðar en á haustþingi árið 2004.

Greinargerð.


    Kynferðisbrot gegn börnum er einn alvarlegasti glæpur sem hægt er að fremja, enda er ljóst að slíkt getur eyðilagt líf þolenda um alla framtíð.
    Það er alvarlegt áfall fyrir þjóðina ef 17% barna eru misnotuð fyrir 18 ára aldur eins og kom fram í rannsókn um umfang kynferðislegrar misnotkunar á börnum. Þegar í stað þarf að bregðast við þessu, en í rannsókninni kemur fram að fjórðungur þolenda er sex ára börn eða yngri og að í 67% tilvika sé misnotkunin gróf eða mjög gróf. Jafnframt þarf að leita skýringa á því hvers vegna hér er um hærri tölur að ræða en komið hafa fram í rannsóknum annars staðar á Norðurlöndum. Mikilvægt er því að kalla til færustu sérfræðinga í þá nefnd sem hér er gerð tillaga um að skipa.
    Fyrir fimm árum komu líka fram hrikalegar tölur um kynferðislega misnotkun á börnum þegar félagsmálaráðherra svaraði fyrirspurn fyrsta flutningsmanns um þetta efni. Þar kom fram að á árunum 1992–1996 hefðu barnaverndarnefndir fengið til meðferðar 465 mál vegna meintrar kynferðislegrar áreitni eða ofbeldis gegn börnum og áttu þar hlut að máli 560 börn yngri en 16 ára. Í einhverjum tilvikum voru þolendur fleiri en einn af völdum sama ofbeldismanns. Athyglisvert var að aðeins var birt ákæra í 45 málum af 465 eða í um 10% þeirra mála sem barnaverndarnefndir fengu til meðferðar. Ástæður þess verður að brjóta til mergjar og fara yfir allan kæruferil í réttar- og dómskerfinu allt frá því að kæra berst og þar til úrskurður dómstóla liggur fyrir. Sömuleiðis verður að finna markvissar leiðir til að hvetja þá sem beittir eru kynferðislegu ofbeldi til að kæra glæpinn. Fram hefur komið að ákærum ríkissaksóknara vegna kynferðisbrota gegn börnum hefur fjölgað mikið á þessu og síðasta ári. Nýja rannsóknin sem sýnir hve óhugnanlega mikill fjöldi barna er beittur kynferðislegri misnotkun staðfestir að stjórnvöld verða að veita meira fjármagn til stuðnings- og meðferðarúrræða fyrir þolendur kynferðisbrota. Framtíð fjölda barna er þar í húfi.
    Í fyrrnefndu svari ráðherra kom fram að búast mætti við að árlega þyrftu ekki færri en 50 börn á sérhæfðri meðferð að halda vegna kynferðisofbeldis. Væru fjölskyldur þeirra teknar með mætti áætla að á annað hundrað manns þyrfti á stuðningi og meðferð að halda á ári hverju. Engin hópmeðferð stæði þessum börnum til boða og áfallahjálp og langtímameðferð væri sjaldnast skipulögð af barnaverndarnefndum enda væru lagaskyldur á því sviði óljósar. Búast má við að sá hópur sem þarf á sérhæfðum meðferðar- og stuðningsúrræðum að halda hafi stækkað verulega frá því að svör við framangreindri fyrirspurn komu fram. Fyrirspurnin leiddi síðan til stofnunar Barnahúss, en starfsemi þess hefur vakið mikla athygli erlendis.
    Alþingi kemst ekki hjá því að taka upp alvarlega umræðu um herta refsingu fyrir kynferðislega misnotkun á börnum og skoða sérstaklega hvernig fyrningu í þessum málum er háttað. Sérstaklega þarf að skoða aðgerðir sem varða stöðu brotaþola kynferðisofbeldis í réttar- og dómskerfinu og hvort herða þurfi refsiúrræði og þá hvernig. Sömuleiðis er brýn þörf á að bæta stuðning og meðferðarúrræði fyrir fórnarlömb kynferðisbrota. Þá þarf að benda á mögulegar leiðir til að hvetja þá sem beittir eru kynferðislegu ofbeldi til að kæra glæpinn. Ástæða er til að endurskoða lagaákvæði um kynferðisbrot gagnvart börnum. Í þeim er engin lágmarksrefsing en hámarksrefsing er allt að 12 ára fangelsi allt eftir aldri barns og skyldleika geranda við barnið. Aftur á móti er lágmarksrefsingu beitt fyrir nauðgun og er hún eitt ár og hámarksrefsing 16 ár, en því ákvæði er beitt ef ofbeldi eða hótun um það er beitt burtséð frá aldri þolanda. Erfitt er að sjá af hverju ekki er hér á landi sambærilegt lágmarksákvæði vegna kynferðislegrar misnotkunar gegn börnum. Í Noregi er lágmarksrefsing eitt ár og í Svíþjóð er fangelsisvist að lágmarki tvö ár vegna kynferðislegrar misnotkunar á börnum. Það skýrir væntanlega að einhverju leyti að dómar hér á landi eru mun vægari, að hér er engin lágmarksrefsing vegna kynferðisbrota gegn börnum.
    Einnig verður að huga að fyrirbyggjandi aðgerðum svo að börn verði ekki þolendur. Í því sambandi hlýtur staða gerenda eða kynferðisbrotamanna að verða skoðuð og þau meðferðarúrræði sem þeim gefst kostur á, en oftar en ekki er um mjög sjúka einstaklinga að ræða.
    Enn fremur verður að athuga refsiákvæði og starfshætti dómstóla, m.a. meta hvort skylt ætti að vera að kveðja til meðdómendur með sérfræðikunnáttu þegar fjallað er um kynferðisbrot gegn börnum. Jafnframt þarf að kanna hvernig betur er hægt að tryggja aðbúnað og aðstöðu þeirra sem leita réttar síns vegna kynferðisbrota, enda ljóst að hér er um mjög vandmeðfarin tilfinningamál að ræða og ber opinberum aðilum skylda til að auðvelda þolendum kæru- og dómsferilinn eins og kostur er.
    Mikilvægt er að í nefndinni, sem skipa á samkvæmt tillögunni, verði sérfræðingar á sviði kynferðisbrota. Flutningsmenn leggja áherslu á að í nefndina verði m.a. skipaðir fulltrúar stéttarfélaga geðlækna, félagsráðgjafa og sálfræðinga, auk fulltrúa Barnaverndarstofu, Stígamóta og lögregluyfirvalda.
    Skoðun flutningsmanna þessarar tillögu er að víðtæk sátt ætti að nást á Alþingi um að láta gera slíka úttekt, enda ætti hún að leiða til úrbóta í kynferðisbrotamálum og bættrar stöðu þolenda.
    Mál þetta var áður flutt á 125. og 128. löggjafarþingi.