Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 138. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 138 — 138. mál.
um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum.
Rannveig Guðmundsdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir.
Hver sem sendir barni kynferðislegt eða klámfengið efni með atbeina hvers konar tölvu- eða fjarskiptatækni skal sæta fangelsi allt að 6 mánuðum. Þegar slíkt efni sýnir börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt getur refsing þó orðið fangelsi allt að 2 árum.
Með þeirri tækniþróun sem átt hefur sér stað undanfarin ár hafa möguleikarnir á því að miðla ýmiss konar efni milli manna aukist til muna. Klámefni af ýmsum toga er fyrirferðarmikið á veraldarvefnum, sbr. frétt á vefnum mbl.is 23. september sl., en þar kemur fram að klámsíður á netinu sé taldar vera í kringum 260 milljónir, eða 1.800% fleiri en fyrir fimm árum þegar þær voru 14 milljónir. Klámiðnaðurinn virðist því sterkari en nokkru sinni fyrr eftir tilkomu veraldarvefsins.
Nú á dögum hafa flest börn greiðan aðgang að tölvum og farsímum og könnun SAFT, rannsóknar- og fræðsluverkefnis um örugga netnotkun frá vorinu 2003, sýnir að börn nota veraldarvefinn mun meira en foreldrar þeirra gera sér grein fyrir. Í könnuninni sem náði til 10.000 barna og foreldra þeirra á Íslandi og Írlandi og í Svíþjóð, Noregi og Danmörku kemur fram að helmingur barna sem nota vefinn hefur heimsótt klámsíður fyrir slysni eða ásetning og einn fjórði hluti barnanna hefur fengið sent klámfengið efni á netinu.
Frumvarpi þessu er ætlað að veita börnum aukna vernd gegn efni af kynferðislegum eða klámfengnum toga sem þau fá sent með atbeina tölvu- eða fjarskiptatækni. Með tölvu- og fjarskiptatækni er t.d. átt við tölvuskeyti, spjallrásir, heimasíður á veraldarvefnum, myndir á stafrænu formi og smáskilaboð sem send eru í farsíma. Gert er ráð fyrir því að slík háttsemi af hálfu geranda/brotamanns verði refsiverð og geti varðað allt að 6 mánaða fangelsi, en allt að 2 ára fangelsi þegar efnið sýnir börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt.
Samtökin Barnaheill hafa haldið úti mjög góðri heimasíðu með leiðbeiningum og fræðslu til að vinna gegn barnaklámi. Þar kemur fram að samtökin hafa skorið upp herör gegn kynferðislegri misnotkun á netinu. Þar segir orðrétt: „Þessa stundina vafra barnaníðingar um Netið. Sumir þeirra nota það til að eiga samskipti sín á milli og til að komast í samband við börn. Á Netinu skiptast þeir á myndum af börnum, kaupa og selja barnaklám. Oft fara viðskiptin fram milliliðalaust, undir nafnleynd. Stundum er heilum myndasöfnum komið fyrir á leynilegum stöðum, í öðrum tilvikum er þeim dreift um Netið þrátt fyrir að það sé bannað í flestum löndum heims. Dreifing barnakláms er víðast hvar bönnuð, hvort heldur er í prentuðu eða á rafrænu formi – líka á Íslandi. Barnaklám getur verið kvikmyndir, ljósmyndir eða myndskeið sem sýna kynferðislegt ofbeldi á börnum. Ofbeldið heldur áfram þegar barnaklámi er dreift á Netinu eða það er vistað í tölvu. Svo lengi sem menn stunda það að komast yfir barnaklám og dreifa því, hvort heldur er í atvinnuskyni eða af öðrum hvötum, munu saklaus börn verða niðurlægð. Niðurlægingin heldur áfram á meðan eftirspurnin er fyrir hendi og á meðan við lokum augunum fyrir vandanum“. Einnig kemur fram eftirfarandi: „Á Netinu má finna mörg þúsund gígabæt (terabyte) efnis með barnaklámi. Sumt af því efni er gamalt, annað nýtt. Spjallrásir og beinar tengingar (Instant Messenger, ICQ) eru notaðar til að ná athygli barna og ungmenna, í því skyni að misnota þau. Vitað er um beinar útsendingar á Netinu þar sem börn eru áreitt kynferðislega og þau beitt ofbeldi. Þá er að finna á Netinu svokölluð nethótel, þar sem börn geta leikið sér og þóst stunda vændi. Barnaníðingar beita nýjustu tækni til að nýta sér kosti Netsins. Eftir því sem Netið verður öflugra, aukast möguleikar barnaníðinga á því að stunda iðju sína óheftir. Ekki bætir úr skák að víða um heima virðist lögreglu og löggjafa skorta bæði fjármagn og mannafla til þess að takast á við vandann.“
Ástæða er líka til að benda á að nýlega kom fram í fréttum að spjallrásum á vegum Microsoft-fyrirtækisins verður víða lokað eða aðgangur takmarkaður. Forráðamenn fyrirtækisins segja þetta gert til að draga úr líkum á að barnaníðingar misnoti rásirnar. Í skýrslu nefndar um úrbætur vegna kláms og vændis er lagt til að sett verði lög sem geri þá sem reka netþjóna ábyrga fyrir því efni sem þar er að finna. Lögð er áhersla á að forða börnum frá greiðum aðgangi að klámefni á veraldarvefnum. Í því skyni er mælt með notkun hugbúnaðar sem gerir fólki kleift að loka fyrir aðgang að ákveðnum slóðum.
Ljóst er að hér á landi er barnaklám á netinu vaxandi eins og annars staðar en nýverið var upplýst um umfangsmesta barnaklámsmál sem komið hefur upp hér á landi. Notaði barnaníðingurinn spjallrásir á netinu til að tæla til sín börn og ungmenni.
Í 2. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, segir að það varði fangelsi allt að 6 mánuðum „að búa til eða flytja inn í útbreiðsluskyni, selja, útbýta eða dreifa á annan hátt út klámritum, klámmyndum eða öðrum slíkum hlutum [...] Þegar slíkt efni sýnir börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt getur refsing þó orðið fangelsi allt að 2 árum.“ Í 3. mgr. sömu greinar segir að það varði fangelsi allt að 6 mánuðum að „láta af hendi við unglinga, yngri en 18 ára, klámrit, klámmyndir eða aðra slíka hluti.“ Í H 1992:1704 var maður til að mynda sakfelldur samkvæmt þessu ákvæði fyrir að hafa sýnt nokkrum unglingsstúlkum klámmyndir, en í því tilviki var um að ræða kvikmyndir á myndbandsspólum. Ákvæði 2. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga er óbreytt frá því að lögin voru sett árið 1940. Með hliðsjón af tækniþróun undanfarin ár og klámvæðingu samfélagsins telja flutningsmenn rétt að skerpa á þeirri vernd sem börnum er sérstaklega veitt með þessu ákvæði þannig að enginn vafi geti leikið á refsinæmi þess að láta börnum í té klámfengið efni á annan hátt en í formi kvikmynda og tímarita. Við vinnslu frumvarpsins komu þau sjónarmið víða fram að þetta væri skynsamlegt til að taka af öll tvímæli um refsinæmi þess að senda börnum kynferðislegt og klámfengið efni, sama í hvaða formi eða hvernig það væri sent.
Í XXII. kafla almennra hegningarlaga er ýmist talað um börn, ungmenni eða unglinga sem stafar af því að áður var sjálfræðisaldurinn 16 ár en fjárræðisaldurinn 18 ár. Með hugtakinu „barn“ í frumvarpinu er átt við barn samkvæmt skilgreiningu lögræðislaga eins og þau eru hverju sinni, en í 1. gr. núgildandi lögræðislaga, nr. 71/1997, segir að lögráða verði menn 18 ára og að lögráða maður sé sjálfráða og fjárráða.
Flutningsmenn leggja einnig til í öðru þingmáli að ábyrgð þeirra sem reka netþjóna á því sem þar er hýst verði aukin.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 138 — 138. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum.
Flm.: Jóhanna Sigurðardóttir, Guðrún Ögmundsdóttir,
Rannveig Guðmundsdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir.
1. gr.
Við 210. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Hver sem sendir barni kynferðislegt eða klámfengið efni með atbeina hvers konar tölvu- eða fjarskiptatækni skal sæta fangelsi allt að 6 mánuðum. Þegar slíkt efni sýnir börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt getur refsing þó orðið fangelsi allt að 2 árum.
2. gr.
Greinargerð.