Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 151  —  151. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um sálfræðiþjónustu á heilsugæslustöðvum.

Frá Þuríði Backman og Margréti Frímannsdóttur.


     1.      Hafa einhverjar heilsugæslustöðvar heimild fyrir fastri stöðu sálfræðings og ef svo er, til hve langs tíma og hvaða stöðvar eru það?
     2.      Ná heimildirnar til afmarkaðra verkefna eða til almennrar sálfræðiþjónustu?
     3.      Er á döfinni að koma á föstum stöðugildum sálfræðinga við allar heilsugæslustöðvar og ef svo er, hvenær verður af því?
     4.      Hefur verið gengið frá samningum við sjálfstætt starfandi sálfræðinga, sbr. ákvæði 36. og 39. gr. laga um almannatryggingar? Ef svo er, hvað fela samningarnir í sér?
     5.      Hvers konar fyrirkomulag verður á greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar ríkisins fyrir sálfræðiþjónustu?