Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 153. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 153  —  153. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 36/2001.

Flm.: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Lúðvík Bergvinsson.



1. gr.

    2. mgr. 23. gr. laganna orðast svo:
    Forsætisráðherra skipar formann bankastjórnar Seðlabankans og aðra bankastjóra til sjö ára í senn. Auglýst skal opinberlega eftir umsóknum um stöðu bankastjóra og þar skal tekið fram hvort um sé að ræða stöðu formanns bankastjórnar. Bankastjórar skulu hafa reynslu og víðtæka þekkingu á peningamálum og öðrum efnahagsmálum. Aðeins er heimilt að skipa sama mann bankastjóra tvisvar sinnum. Þó má skipa bankastjóra sem ekki er formaður bankastjórnar og er á síðara skipunartímabili sínu formann til sjö ára. Um endurskipun gilda ekki ákvæði laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

2. gr.

    Lögin öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Árið 2001 voru sett ný lög um Seðlabanka Íslands en meginmarkmið þeirra var að auka sjálfstæði bankans og gera honum kleift að vinna markvisst og faglega að stjórnun peningamála. Þegar frumvarpið var til umfjöllunar á Alþingi lögðu þingmenn Samfylkingarinnar fram tillögu um að bankastjóri yrði einn en ekki þrír og ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans í peningamálum yrðu teknar af peningastefnunefnd. Sú tillaga náði ekki fram að ganga. Engu að síður studdu þingmenn Samfylkingarinnar frumvarpið og hin nýju lög um Seðlabankann nutu víðtæks stuðnings á Alþingi enda var þeim talið það helst til tekna að nú væru gerðar hliðstæðar kröfur til Seðlabanka Íslands og annarra seðlabanka um gagnsæi, fagleg vinnubrögð og sjálfstæði. Bankinn stefnir nú að ákveðnu verðbólgumarkmiði og gengi krónunnar ákvarðast á markaði. Ákvarðanir í peningamálum eru því að verulegu leyti orðnar faglegt viðfangsefni sem krefst sérfræðiþekkingar í þjóðhags- og peningahagfræði. Þetta sjónarmið er viðurkennt í seðlabönkum um allan heim og kemur gleggst fram í því að af 35 seðlabankastjórum víðs vegar um heiminn eru 33 menntaðir hagfræðingar, sjá fylgiskjal.
    Ákvörðunarvaldið í peningamálum er í höndum stjórnar Seðlabankans en þar sitja þrír bankastjórar, skipaðir samkvæmt ákvörðun forsætisráðherra. Völd og ábyrgð bankastjórnarinnar eru mikil og því nauðsynlegt að hún hafi tiltrú og njóti trausts sem fagleg og sjálfstæð stofnun. Ljóst er að nokkuð skortir á þetta eins og kom m.a. fram í BS-ritgerð Bertu M. Jansdóttur við Háskólann í Reykjavík. Hún gerði könnun meðal 22 innlendra sérfræðinga sem starfa á vegum fjármálastofnana og hagsmunasamtaka. Aðeins fjórir þeirra töldu núverandi fyrirkomulag í peningamálum tryggja nægjanlegt sjálfstæði Seðlabankans við stjórn peningamála þó svo að 17 sérfræðinganna hafi verið sammála því að breyta um peningastefnu með nýjum lögum um Seðlabankann. Af þeim 15 sem töldu sjálfstæðið ekki nægjanlegt voru 14 sem nefndu að fagleg sjónarmið fremur en pólitísk ættu að ráða við ráðningu bankastjóra.
    Þann 15. ágúst sl. skipaði forsætisráðherra í embætti seðlabankastjóra og var það í fyrsta sinn eftir að hin nýju lög tóku gildi. Ljóst er að það skipti verulegu máli fyrir trúverðugleika og ímynd bankans hvernig að þeirri skipan væri staðið og engum blandaðist hugur um að sá sem skipaður væri í embættið væri ekki aðeins hæfur til að gegna því heldur mætti færa rök fyrir því að hann væri sá hæfasti sem völ væri á. Til að kalla eftir þeim rökum sem lágu að baki ráðningunni ákváðu fulltrúar Samfylkingarinnar í bankaráði Seðlabankans að senda fyrirspurn í þremur liðum, dags. 16. september sl., til forsætisráðherra. Fyrirspurnin var svohljóðandi:
     1.      Þann 15. ágúst sl. skipaði forsætisráðherra í embætti seðlabankastjóra. Ingimundur Friðriksson var settur í það embætti þann 1. okt. sl. en hann er með mastersgráðu í hagfræði og farsælan starfsferil í Seðlabankanum og á erlendum vettvangi á sviði efnahagsmála allt frá 1975. Í ljósi þess að ekki er annað vitað en að Ingimundur hafi verið tilbúinn til að gegna stöðu seðlabankastjóra ef eftir því hefði verið leitað, er spurt: Með hvaða hætti var gengið úr skugga um að sá sem skipaður var í embættið væri sá hæfasti sem völ var á?
     2.      Í 11. gr. stjórnsýslulaga, sem m.a. taka til Seðlabanka Íslands, er kveðið á um jafnræðisregluna. Þar segir að við úrlausn mála skuli stjórnvöld gæta samræmis og jafnræðis í lagalegu tilliti. Er til að mynda óheimilt að mismuna aðilum við úrlausn mála á grundvelli sjónarmiða byggðum á stjórnmálaskoðunum. Því er spurt: Með hvaða hætti er jafnræðisreglunnar, sem er grundvallarregla í stjórnsýslu, gætt við skipan í embætti seðlabankastjóra nú þegar ekki er lengur skylt að auglýsa embættið?
     3.      Lögum um Seðlabanka Íslands frá 2001 var talið það helst til tekna að nú væru gerðar hliðstæðar kröfur til Seðlabanka Íslands og annarra seðlabanka um gagnsæi, fagleg vinnubrögð og sjálfstæði. Í greinargerð með frumvarpi til laga um Seðlabanka Íslands sagði m.a.: ,,Að frumvarpinu samþykktu mundu lögin um Seðlabanka Íslands því líta vel út á þá mælikvarða sem lagðir hafa verið á slík lög á undanförnum árum.“ Ekki er nóg að lögin líti vel út ef trúverðugleiki bankans hvað varðar gagnsæi, fagleg vinnubrögð og sjálfstæði bíður hnekki. Hann byggist m.a. á því að þeir sem fara með ákvarðanavald í peningamálum hafi víðtæka þekkingu og/eða reynslu í hagstjórn, þjóðhagfræði og peningamálum. Því er spurt: Hvaða hæfniskröfur voru lagðar til grundvallar við nýlega ráðningu í embætti seðlabankastjóra?
    Þann 22. sept. 2003 barst svohljóðandi bréf frá forsætisráðherra:
    „Með vísan til erindis yðar, dags. 16. þ.m., um skipun Jóns Sigurðssonar í embætti bankastjóra í Seðlabanka Íslands, skal tekið fram, að ákvörðun þessi var tekin á grundvelli 23. gr. laga nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands, að aðgættum almennum starfsgengisskilyrðum skv. 6. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, og að teknu tilliti til þeirrar menntunar og fyrri starfa, sem tilgreind voru í hjálagðri fréttatilkynningu um skipun í embættið, dags. 15. f.m.“
    Ljóst er af bréfi þessu að í því er ekki að finna svör við þeim þremur einföldu spurningum sem beint var til forsætisráðherra og sem gætu varpað ljósi á hvort núverandi stjórnvöld hafa raunverulegan áhuga á að auka tiltrú á Seðlabankanum sem stofnun sem lúti sjálfstæðri og faglegri forystu en ekki pólitískri forystu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Bréfið varpar líka ljósi á að í þessu máli fer forsætisráðherra með ákvörðunarvald sem ekki lýtur aðhaldi frá einstaklingum, stofnunum né almannavaldi þar sem ekki þarf að auglýsa starfið, ekki eru gerðar til þess sérstakar kröfur, ekkert mat fer fram á þeim sem ætlað er að gegna starfinu og ekki þarf að rökstyðja ráðningu. Formlegir aðilar að málinu eru bara tveir – forsætisráðherra og sá sem ráðinn er til starfans.
    Það frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands sem hér er flutt hefur það að markmiði að tryggja, eins og kostur er, að fagleg sjónarmið ráði við skipan í embætti seðlabankastjóra og að ráðherra geti ekki komið sér undan því að rökstyðja ráðninguna. Þess vegna er gerð tillaga um að starf seðlabankastjóra verði auglýst þrátt fyrir að víðtæk sátt hafi verið um það, þegar núgildandi lög voru sett, að undanskilja þetta embætti auglýsingaskyldu. Sú sátt byggðist m.a. á því að margir þingmenn vildu láta á það reyna hvort sú grundvallarbreyting sem gerð var á Seðlabankanum mundi ekki endurspeglast í breyttum viðhorfum ráðherra til embættis seðlabankastjóra. Sú virðist ekki raunin heldur er enn litið svo á að Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur fari með pólitískt eignarhald á embættunum. Og eftir höfðinu dansa limirnir því í opinberri umræðu í samfélaginu er litið svo á að nýleg skipun í embætti seðlabankastjóra hafi verið á forræði Framsóknarflokksins og næst verði skipunin á forræði Sjálfstæðisflokksins. Standi vilji Alþingis til þess að bankastjórastöðum í Seðlabankanum sé skipt milli stjórnmálaflokka verður að gera það á grundvelli einhverra gagnsærra meginreglna eða að skipt sé um bankastjóra með nýrri ríkisstjórn. Flutningsmenn þessa frumvarps telja rangt að fara inn á þá braut og algjörlega í ósamræmi við það sem tíðkast í þeim löndum sem við viljum helst bera okkur saman við.
    Sú breyting sem hér er gerð tillaga um er efnislega samhljóða ákvæði sem var í 39. gr. frumvarps til laga um Seðlabanka Íslands sem flutt var á 116. löggjafarþingi af þáverandi viðskiptaráðherra, Jóni Sigurðssyni.


Fylgiskjal.


Seðlabankastjórar í löndum með verðbólgumarkmið.
(Upplýsingar miðað við 24. september 2002.)

Land Seðlabankastjóri Menntun Meðal fyrri starfa
Ástralía I.J. MacFarlane Hagfræðingur Háskólakennari, OECD og störf innan bankans
Brasilía Arminio F. Neto Doktor í hagfræði Störf hjá Soros og Salmon Brothers, innan bankakerfis og seðlabanka
Bretland Edward George Hagfræðingur BIS, IMF og störf innan Englandsbanka
Chile Carlos Massad Abud Doktor í hagfræði Háskólaprófessor og IMF
Filippseyjar Rafael Buenaventura MBA Bankakerfi
Ísrael David Klein Doktor í hagfræði Störf innan bankans og bankakerfisins
Kanada David Dodge Doktor í hagfræði Háskólaprófessor, störf í fjármálaráðuneytinu og aðstoðarráðherra
Kólumbía Roberto Bonnet Doktor í hagfræði Ráðherra, viðskiptalífið
Kórea Park Seung Doktor í hagfræði Háskólaprófessor, störf innan bankans og ráðherra
Noregur Svein Gjedrem Hagfræðingur Fjármálaráðuneyti og störf innan bankans
Pólland Leszek Balcerowicz Doktor í hagfræði Háskólaprófessor, ráðherra
Nýja Sjáland Alan Bollard Doktor í hagfræði Ráðuneytisstjóri, þjóðhagsstofustjóri o.fl. störf
Sviss Jean-Pierre Roth Doktor í hagfræði Háskólakennari og störf innan bankans
Bruno Gehrig Doktor í hagfræði Háskólaprófessor og störf innan fjármálakerfis
Niklaus Blattner Doktor í hagfræði Háskólaprófessor og störf í bankakerfinu
Svíþjóð Urban Bäckström Hagfræðingur Háskólakennari og störf í efnahagsráðuneyti
Tékkland Zdenek Tuma Hagfræðingur Háskólakennari, efnahagsráðgjafi
Tæland Pridiyathorn Devakula Hagfræðingur, MBA Aðstoðarráðherra, bankakerfi

    Alls eru 18 seðlabankastjórar á listanum. Af þeim eru 17 (94%) menntaðir hagfræðingar og þar af 11 (61%) með doktorspróf í hagfræði. Ekki fundust heimildir um menntun og bakgrunn seðlabankastjóra Mexíkó, Perú, Suður-Afríku og Ungverjalands.
    Heimildir: Heimasíður seðlabanka, Who's Who in Central Banking, ritstjóri E. Hennessy (Flemings, 1997) og Who's Who in Global Banking & Finance, ritstjóri J. Pellam (Barons Who's Who, 1999).

Seðlabankastjórar víðs vegar um heiminn.
(Upplýsingar miðað við 24. september 2002.)

Land Seðlabankastjóri Menntun Meðal fyrri starfa
Austurríki Adolf Wala Hagfræðingur Störf í bankakerfinu og innan bankans
Bandaríkin Alan Greenspan Doktor í hagfræði Starfaði í ráðgjafafyrirtæki og var efnahagsráðgjafi tveggja forseta
Belgía Guy Quaden Doktor í hagfræði Háskólaprófessor
Danmörk Bodil N. Andersen
Torben H. Nielsen
Jens Thomsen
Hagfræðingur
Hagfræðingur
Hagfræðingur
Háskólakennari og störf í bankakerfinu
Störf í bankakerfinu
Háskólakennari og efnahagsráðuneyti
ECB Willem F. Duisenberg Doktor í hagfræði IMF, háskólaprófessor og fjármálaráðherra
Finnland Matti Vanhala Hagfræðingur Fjármálaráðuneyti og störf innan bankans
Frakkland Jean-Claude Trichet Hagfræðingur Fjármálaráðuneyti, efnahagsráðgjafi og háskólaprófessor
Grikkland Nicholas Garganas Doktor í hagfræði Störf innan bankans
Holland Arnout Wellink Doktor í hagfræði Fjármálaráðuneyti
Indland Bimal Jalan Doktor í hagfræði Efnahagsráðgjafi og ráðherra
Ítalía Antonio Fazio Hagfræðingur Háskólakennari og störf innan bankans
Japan Masaru Hayami Hagfræðingur Störf innan bankans
Lúxemborg Yves Mersch Lögfræðingur Háskólakennari og fjármálaráðuneyti
Portúgal Vitor Constancio Hagfræðingur Bankakerfi, ráðherra, háskólaprófessor o.fl. störf
Þýskaland Ernst Welteke Hagfræðingur Ráðherra og seðlabankastjóri Hessen-fylkis

    Alls eru 17 seðlabankastjórar á listanum. Af þeim eru 16 (94%) menntaðir hagfræðingar og þar af 6 (35%) með doktorspróf í hagfræði.
    Heimildir: Heimasíður seðlabanka, Who's Who in Central Banking, ritstjóri E. Hennessy (Flemings, 1997) og Who's Who in Global Banking & Finance, ritstjóri J. Pellam (Barons Who's Who, 1999).


Peningamálaráð nokkurra seðlabanka.


(Upplýsingar miðað við 24. september 2002.)



Land Nefndarmenn Menntun Meðal fyrri starfa
Bandaríkin Alan Greenspan Doktor í hagfræði Starfaði í ráðgjafafyrirtæki og var efnahagsráðgjafi tveggja forseta
Roger Ferguson Doktor í hagfræði Ráðgjafafyrirtæki
Edward Gramlich Doktor í hagfræði Háskólaprófessor
Susan Bies Doktor í hagfræði Fjármálageiri
Mark Olson Hagfræðingur Bankaeftirlit, bankageiri
Ben Bernanke Doktor í hagfræði Háskólaprófessor
Donald Kohn Doktor í hagfræði Störf innan bankans
William J. McDonough Hagfræðingur Störf innan bankans og bankakerfisins
Jerry L. Jordan Doktor í hagfræði Störf innan bankans og bankakerfisins
Robert McTeer Doktor í hagfræði Störf innan bankans
Anthony Santomero Doktor í hagfræði Háskólaprófessor
Gary Stern Doktor í hagfræði Ráðgjafafyrirtæki og störf innan bankans
Bretland Edward George Hagfræðingur BIS, IMF og störf innan bankans
Mervyn King Hagfræðingur Háskólaprófessor og störf innan bankans
Andrew Large Vantar upplýsingar
Charles Bean Doktor í hagfræði Háskólaprófessor
Paul Tucker Stærðfræðingur Störf innan bankans
Christopher Allsopp Hagfræðingur Háskólaprófessor
Kate Barker Hagfræðingur Viðskiptalíf
Marian Bell Hagfræðingur Ráðgjafafyrirtæki
Stephen Nickell Doktor í hagfræði Háskólaprófessor
Seðlabanki Evrópu Willem F. Duisenberg Doktor í hagfræði IMF, háskólaprófessor og fjármálaráðherra
Lucas D. Papademos Doktor í hagfræði Háskólaprófessor, Seðlabanki Bandaríkjanna og störf innan bankans
Eugenio D. Solans Doktor í hagfræði Háskólaprófessor og störf í fjármálakerfinu
Sirkka Hämäläinen Doktor í hagfræði Háskólakennari og seðlabankastjóri Finnlands
Otmar Issing Doktor í hagfræði Háskólaprófessor og aðalhagfræðingur Seðlabanka Þýskalands
T. Padoa-Schioppa Hagfræðingur Aðalhagfræðingur Seðlabanka Ítalíu
Svíþjóð Urban Bäckström Hagfræðingur Háskólakennari og störf í efnahagsráðuneyti
Eva Srejber Hagfræðingur Störf innan bankans
Kristina Persson Hagfræðingur Störf í ráðuneytum og samtökum launþega
Lars Nyberg Hagfræðingur Háskólaprófessor, bankakerfi
Villy Bergström Hagfræðingur Háskólaprófessor, verslunarráð
Lars Heikenstein Doktor í hagfræði Störf innan bankans
    Alls eru 33 seðlabankamenn á listanum. Af þeim eru 32 (vantar upplýsingar um einn) (97%) menntaðir hagfræðingar og þar af 18 (55%) með doktorspróf í hagfræði.
    Heimildir: Heimasíður seðlabanka, Who's Who in Central Banking, ritstjóri E. Hennessy (Flemings, 1997) og Who's Who in Global Banking & Finance, ritstjóri J. Pellam (Barons Who's Who, 1999).