Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 50. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 162  —  50. mál.




Svar



viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jóns Bjarnasonar um jöfnun flutningskostnaðar á olíu og sementi.

     1.      Hvaða reglur gilda um greiðslur úr flutningsjöfnunarsjóði olíu?
    Lög nr. 103/1994, um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara, gilda um greiðslur úr flutningsjöfnunarsjóði olíuvara. Lögin taka til bifreiðabensíns, gasolíu, annarra olía og blandna til brennslu, flugsteinolíu eða þotueldsneytis og flugbensíns. Jöfnunin nær til sjóflutninga á framantöldum tegundum frá innflutningshöfn til olíuhafna. Jafnframt nær hún til landflutninga á bensíni og dísilolíu frá innflutnings- eða olíuhöfn til útsölustaða í byggð, þ.e. utan hálendis.
    Stjórn sjóðsins úrskurðar hvað teljast skuli flutningskostnaður og tekur þá mið af ódýrustu flutningsháttum og hefur viðurkenndur taxti sjóðsins verið byggður á raunkostnaði á flutningatækjum sem notuð hafa verið við dreifinguna.

     2.      Hvaða reglur gilda um jöfnun flutningskostnaðar á sementi?
    Lög nr. 62/1973, með síðari breytingum, og reglugerð nr. 937 frá 13. desember 2001 gilda um jöfnun flutningskostnaðar á sementi. Lögin ná til sements, sem framleitt er hér á landi, og innflutts sements. Jöfnunin nær til greiðslu á flutningskostnaði á sementi frá framleiðslustað eða innflutningshöfn til aðaltollhafna og verslunarstaða sem ákveðnir eru með reglugerð.
    Stjórn flutningsjöfnunarsjóðs sements tekur mið af raunflutningum framleiðenda og innflytjenda á lausu og sekkjuðu sementi og þeim flutningatækjum sem eru hagkvæmust á flutningsleiðunum. Flutningskostnaður er um 20% af verði sements í dag. Á verslunarstöðum sem eru fjærst Faxaflóasvæðinu eins og á Austurlandi væri hann á bilinu 50–55% af verði sements ef flutningsjöfnunar nyti ekki við. Á Akureyri væri þetta hlutfall 36–42% af verði sements eftir því hvort miðað er við Akranes eða Helguvík sem eru framleiðslu- og innflutningshafnir þeirra seljanda sem eru á markaðinum í dag.

     3.      Hvaða áhrif hafa þessar reglur á samkeppnisstöðu sjóflutninga gagnvart landflutningum?
    Á síðustu árum hafa flutningatæki á landi orðið æ stærri og hagkvæmari um leið og vegakerfi landsins hefur batnað og vegir á milli landshluta hafa styst. Fyrir þær sakir er stöðugt orðið hagkvæmara að flytja vörur á landi miðað við það sem áður var á sjó. Stjórnir flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara og sements hafa tekið mið af þessu við ákvörðun flutningstaxta frá framleiðslustað eða innflutningshöfn til viðkomandi útsölu- eða verslunarstaða.
    Samkeppnisstaða sjóflutninga hefur því versnað á kostnað landflutninga af ástæðum sem að framan greinir og hafa viðkomandi flutningstaxtar sjóðanna tekið mið af því.
     4.      Hve miklum fjárhæðum hefur verið varið til flutningsjöfnunar á sl. fimm árum?
    Fjármunir til flutningsjöfnunar koma ekki úr ríkissjóði beint heldur eru það notendur sements og olíuvara á hverjum tíma sem hafa staðið undir flutningsjöfnuninni og hefur hún verið eftirfarandi á sl. fimm árum, í milljónum króna:

Ár Sement Olíuvörur Samtals
1998 157 565 722
1999 160 525 685
2000 188 496 684
2001 219 482 701
2002 156 549 705
880 2.617 3.497

     5.      Mun flutningsjöfnun sements taka til flutnings á sementi til virkjana, svo sem Kárahnjúkavirkjunar?
    Í lögum nr. 12/2003, um heimild til samninga um álverksmiðju í Reyðarfirði, er í 4. málsl. 4. gr. svohljóðandi ákvæði: „Þrátt fyrir ákvæði laga nr. 62/1973, um jöfnun flutningskostnaðar á sementi, skal ekki leggja flutningsjöfnunargjald á sement sem flutt er til landsins eða framleitt innan lands og notað er til byggingarframkvæmda við Kárahnjúkavirkjun og álverksmiðju í Reyðarfirði. Flutningsjöfnunarsjóður greiðir ekki flutningskostnað á sementi til þeirra nota.“

     6.      Mun ráðherra beita sér fyrir endurskoðun á hlutverki og reglum þessara flutningsjöfnunarsjóða? Sé svo, hvaða markmið verða þar höfð að leiðarljósi?
    Stjórnir sjóðanna fylgjast stöðugt með breyttum flutningsháttum og öðru sem tengist rekstri sjóðanna. Stjórn flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara vinnur nú að breyttu fyrirkomulagi á endurgreiðslu á flutningskostnaði á olíuvörum. Það er m.a. tilkomið af því að beinn innflutningur og umskipun á olíu á sér nú stað á Akureyri en var áður einungis á höfuðborgarsvæðinu. Þess ber og að geta að minni olíuskip eru notuð við beinan innflutning á ströndina og losa þau farminn nú á nokkrum stöðum fyrir utan Reykjavík og Akureyri. Aðrar hafnir á ströndinni fyrir utan Akureyri og Reykjavík eru því nú orðnar í reynd að blönduðum innflutnings- og olíuhöfnum. Þar með minnkar það magn olíu sem áður var flutt frá einu innflutningshöfn landsins, Reykjavík, út á land. Um leið dregur úr þeim kostnaði sem flutningsjöfnunarsjóður hefur af flutningi á ströndina.
    Iðnaðarráðherra hefur ákveðið að láta endurskoða fyrirkomulag jöfnunar flutnings á sementi. Í áliti meiri hluta iðnaðarnefndar um frumvarp iðnaðarráðherra um breytingu á lögum um stofnun hlutafélags um Sementsverksmiðju ríkisins á 128. löggjafarþingi var mælt með því að ákvæði laga nr. 62/1973, um jöfnun flutningskostnaðar á sementi, yrðu tekin til endurskoðunar. Með framangreint álit meiri hluta iðnaðarnefndar í huga og í tengslum við almenna skoðun jöfnunar flutningskostnaðar á landsbyggðinni, sem unnin hefur verið að undanförnu, var hinn 19. september sl. skipuð nefnd er falið var að taka til endurskoðunar lög nr. 62/1973. Nefnd þessi hefur hafið störf og skal skila niðurstöðum sínum eigi síðar en um næstkomandi áramót.