Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 192. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 194 — 192. mál.
til landbúnaðarráðherra um framleiðslu sauðfjárafurða.
1. Hefur markmiði samnings um framleiðslu sauðfjárafurða frá 11. mars 2000, um uppkaup á 45.000 ærgildum að lágmarki, verið náð?
2. Hafa uppkaupin stuðlað að því að færa framleiðslu sauðfjárafurða sem næst neyslu innan lands?
3. Hefur umfang heimaslátrunar og sala lambakjöts á svörtum markaði verið rannsakað?
4. Hefur farið fram könnun á umfangi framleiðslu framleiðenda án beingreiðsluréttar og áhrifum hennar á stöðu framleiðenda með beingreiðslurétt?
5. Hver er réttur aðila sem framselt hefur beingreiðslurétt sinn til annars lögbýlis en heldur engu síður áfram framleiðslu til markaðssetningar sauðfjárafurða innan lands?
6. Hefur verið gerð könnun á magni þeirra sauðfjárafurða sem koma á innanlandsmarkað frá framleiðendum án beingreiðsluréttar?
Skriflegt svar óskast.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 194 — 192. mál.
Fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um framleiðslu sauðfjárafurða.
Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.