Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 195. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 197  —  195. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um íslensku friðargæsluna.

Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur.



     1.      Hversu margir einstaklingar eru á viðbragðslista íslensku friðargæslunnar? Hversu margar konur og hversu margir karlar?
     2.      Hversu margir einstaklingar á viðbragðslistanum hafa verið sendir til starfa erlendis fyrir íslensku friðargæsluna?
     3.      Hafa einhverjir verið sendir til starfa fyrir friðargæsluna sem ekki hafa verið á viðbragðslistanum?
     4.      Hvaða skilyrði þarf fólk að uppfylla til þess að komast á viðbragðslistann?
     5.      Hvernig fer þjálfun væntanlegra friðargæsluliða fram og hver hefur umsjón með henni?
     6.      Hversu margir starfsmenn í utanríkisráðuneytinu starfa að málefnum friðargæslunnar?
     7.      Eru fyrirhugaðar einhverjar breytingar á skipulagi friðargæslunnar á næsta ári?
     8.      Hver er áætlaður kostnaður við íslensku friðargæsluna í ár og næstu þrjú ár, og hvernig skiptist hann?
     9.      Er ráðgert að efna til samstarfs með Norðurlandaþjóðunum um friðargæslu?
     10.      Hvernig er verksvið íslensku friðargæslunnar skilgreint innan þeirra alþjóðastofnana og samtaka sem í hlut eiga, svo sem Sameinuðu þjóðanna og Atlantshafsbandalagsins?


Skriflegt svar óskast.