Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 56. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 206  —  56. mál.




Svar



landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um fiskeldis- og hafbeitarstöðvar.

     1.      Hvaða nýjar fiskeldis- og hafbeitarstöðvar hafa fengið starfsleyfi á grundvelli laga um lax- og silungsveiði, nr. 76/1970, eftir að þeim var breytt í maí 2001 með lögum nr. 83/2001?
    Fjórar nýjar stöðvar fyrir eldi ferskvatnsfiska hafa fengið starfsleyfi og sótt um rekstrarleyfi á grundvelli laga um lax- og silungsveiði, nr. 76/1970, eftir að þeim var breytt í maí 2001 með lögum nr. 83/2001. Til viðbótar hefur Samherji hf. fengið nýtt starfsleyfi Umhverfisstofnunar vegna 6.000 tonna stöðvar í Reyðarfirði sem gildir frá 14. mars 2003.
    
    Nýjar stöðvar með starfsleyfi og rekstrarleyfi:
         Eyrar ehf., Tálknafirði, kví í firðinum.
         Eyrar ehf., Tálknafirði, kví í fjarðarbotni.
         Norðlingur ehf., hafbeitarstöð.
    Ný stöð með starfsleyfi og hefur sótt um rekstrarleyfi:
         Silungur ehf., Arnarfirði.
    Stöð með nýtt starfsleyfi:
         Samherji hf., Reyðarfirði.

     2.      Hvaða fiskeldis- og hafbeitarstöðvar sem voru starfræktar fyrir breytingu laganna hafa endurnýjað leyfi sín í samræmi við ákvæði til bráðabirgða I í lögum nr. 83/2001?
    Sæsilfur í Mjóafirði og Salar Islandica í Berufirði hafa sótt um endurnýjun rekstrarleyfa í samræmi við ákvæði til bráðabirgða I í lögum nr. 83/2001. Þessar stöðvar höfðu fengið rekstrarleyfi fyrir breytingu laganna.

     3.      Hvaða fiskeldis- og hafbeitarstöðvar sem starfað hafa á grundvelli starfsleyfis samkvæmt lögum nr. 7/1998 hafa endurnýjað rekstrarleyfi sín síðan þeim var slíkt skylt samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögum nr. 83/2001?
    Stöðvar sem hafa sótt um rekstrarleyfi til eldis ferskvatnsfiska samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögum nr. 83/2001 eru þessar:

Rifós hf., seiðastöð. Rifós hf., kvíaeldi í Lóni.
Stofnfiskur hf., Kalmanstjörn. Stofnfiskur hf., Húsatóftum.
Stofnfiskur hf., Kollafirði. Stofnfiskur hf., Laugum.
Eldisstöðin Ormsstöðum. Háafell ehf., kvíar.
Straumfiskur ehf. Silungur ehf., Vatnsleysu.
Silungur ehf., Öxnalæk. Silungur ehf., Þóroddsstöðum.
Eldisstöðin Mjóaparti. Seiðaeldisstöðin Spóastöðum.
Fiskeldið Þverá. Fiskeldið Hlíð.
Norðurlax hf. Eldisstöðin Hvassafelli.
Eyrar ehf., Tálknafirði, Norðurbotni. Eyrar ehf., Tálknafirði, Gileyri.
Austlax ehf., Seyðisfirði. Víkurlax ehf.
Háafell ehf., stöð. Fiskeldið Haukamýri.
Fagradalsbleikja ehf. Silfurstjarnan hf.
Íslandsbleikja Núpum. Eldisstöð RALA Keldnaholti.

     4.      Er eitthvað því til fyrirstöðu að Umhverfisstofnun bindi inn í starfsleyfi laxeldisstöðva ákvæði um að eigendur stöðvanna hafi sérstaka ábyrgðartryggingu vegna tjóns sem starfsemi þeirra kann að valda óviðkomandi aðilum, eins og eigendum veiðiréttar í laxveiðiám?
    Umhverfisstofnun heyrir ekki undir landbúnaðarráðuneyti og ráðuneytið getur því ekki svarað fyrir hönd þeirrar stofnunar.