Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 222. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 235  —  222. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.

Frá Árna Steinari Jóhannssyni.



     1.      Hver eru áform ráðherra um auknar fjárveitingar til krabbameinslækninga samkvæmt beiðni sjúkrahússins?
     2.      Hver eru áform um fjárveitingar til þess að auka þjónustu vegna þvagfærasjúkdóma samkvæmt beiðni sjúkrahússins?
     3.      Hvernig eru áætlanir ráðherra um innréttingar í suðurálmu sjúkrahússins?
     4.      Hvað líður áformum um frekari uppbyggingu til þess að fjölga plássum í endurhæfingu á sjúkrahúsinu?