Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 187. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 244  —  187. mál.




Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Brynju Magnúsdóttur um bókasafnsskírteini í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvers vegna fá ekki allir sem stunda háskólanám hér á landi ókeypis bókasafnsskírteini í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni?

    Ráðuneytið hefur leitað umsagnar Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og borist eftirfarandi svar:
    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn er bókasafn Háskóla Íslands og Háskólinn leggur safninu til fjármagn bæði til bókakaupa og til reksturs safnsins í formi fjárveitingar til lengingar afgreiðslutíma.
    Samskipti Háskóla Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns eiga sér langa sögu og nána. Landsbókasafn Íslands er skilgreint í lögum sem háskólastofnun og er í nánum tengslum við Háskóla Íslands. Háskólabókasafn H.Í. og Landsbókasafn Íslands voru sameinuð árið 1994 og þá lagði Háskólinn sameiginlega safninu til allan safnkost sinn. Sérstakur samningur er í gildi frá 8. júlí 1997 þar sem tilgreindir eru samstarfsfletir stofnananna. Fyrir utan lögbundna aðild Háskóla Íslands að stjórn safnsins greiðir Háskólinn hluta rekstrarkostnaðar vegna þjónustu við stúdenta og starfsmenn skólans, bókasafnið nýtur ýmissar þjónustu Háskólans, stofnanirnar hafa sameiginlegan ritakaupasjóð og safnið annast bókakaup fyrir einstakar háskóladeildir fyrir það fé sem þær ráðstafa til þess. Fulltrúi frá Landsbókasafni situr háskólafundi Háskóla Íslands. Samkvæmt samningi Háskóla Íslands og safnsins frá 1997 er ýmis þjónusta bókasafnsins án endurgjalds, þ.m.t. bókasafnsskírteini til nemenda og starfsmanna.
    Aðrir háskólar leggja Landsbókasafni ekki til neitt fé, hvorki til bókakaupa né afgreiðslutíma, og safnið hefur engin bein tengsl við aðra háskóla sem flestir hafa sín eigin bókasöfn. Landsbókasafn er öllum opið og kostar aðgangur ekkert. Vilji viðkomandi hins vegar fá lánaðar bækur þarf að kaupa bókasafnsskírteini og gildir það um alla aðra notendur, hvort sem þeir eru stúdentar eða ekki.