Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 246. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 266 — 246. mál.
til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um örorkulífeyri.
1. Hvað fengu margir örorkulífeyri frá Tryggingastofnun árið 2002 og hvað hefur þeim fjölgað mikið síðustu 10 ár?
2. Hver var heildarupphæð örorkulífeyris sem Tryggingastofnun greiddi árið 2002 og hvað hafa þessar greiðslur vaxið mikið milli ára umfram verðlag síðustu 10 ár?
3. Hvað er örorkulífeyrir stór hluti af lífeyrisgreiðslum Tryggingastofnunar?
4. Hversu margir fá greiddan örorkulífeyri og hversu margir fá greiddan örorkustyrk?
5. Hvaða bætur frá Tryggingastofnun fær sá sem metinn er 50% öryrki, þ.e. missir helming vinnugetu sinnar?
6. Hvaða tekjur, bætur, lífeyri og launatekjur fær annars vegar sá sem metinn er 75% öryrki, býr einn og er með 30 þús. kr. frá lífeyrissjóði og hefur að auki 80 þús. kr. í laun á mánuði og hins vegar sá sem engar launatekjur hefur og á ekki rétt á örorkulífeyri frá lífeyrissjóði?
Skriflegt svar óskast.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 266 — 246. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um örorkulífeyri.
Frá Pétri H. Blöndal.