Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 195. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 276  —  195. mál.




Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Þórunnar Sveinbjarnardóttur um íslensku friðargæsluna.

     1.      Hversu margir einstaklingar eru á viðbragðslista íslensku friðargæslunnar? Hversu margar konur og hversu margir karlar?
    Á viðbragðslista íslensku friðargæslunnar eru 184 manns. Í viðbragðsstöðu er 151, óvirkir eru 12 og 21 er að störfum. Konur á viðbragðslistanum eru 62 af 184 eða 34%. Karlar á viðbragðslistanum eru 122 af 184 eða 66%.

     2.      Hversu margir einstaklingar á viðbragðslistanum hafa verið sendir til starfa erlendis fyrir íslensku friðargæsluna?
    Árið 2001 voru 17 einstaklingar á vettvangi, árið 2002 36 einstaklingar og það sem af er þessu ári hefur 41 verið sendur á vettvang.

     3.      Hafa einhverjir verið sendir til starfa fyrir friðargæsluna sem ekki hafa verið á viðbragðslistanum?
    Já, í þeim tilfellum þar sem þá sérfræðiþekkingu sem til þurfti var ekki að finna hjá einstaklingum á viðbragðslistanum.

     4.      Hvaða skilyrði þarf fólk að uppfylla til þess að komast á viðbragðslistann?
    Umsækjendur skulu vera að minnsta kosti 25 ára og hafa:
     *      háskólapróf, aðra sérmenntun eða með öðrum hætti hafa aflað sér sérhæfðrar þekkingar og reynslu,
     *      mjög góða enskukunnáttu,
     *      hæfni í mannlegum samskiptum, sérstaklega við fólk úr ólíkum menningarheimum og með margvísleg trúarbrögð,
     *      þolgæði undir álagi,
     *      öguð og sjálfstæð vinnubrögð,
     *      hæfileika til að aðlagast nýjum aðstæðum og frumstæðu vinnuumhverfi.
    Þekking og/eða reynsla af störfum að neyðar- og mannúðarmálum er æskileg, sem og kunnátta í öðrum tungumálum, svo sem Norðurlandamálum, frönsku og þýsku.

     5.      Hvernig fer þjálfun væntanlegra friðargæsluliða fram og hver hefur umsjón með henni?
    Öryggisnámskeið er haldið fyrir einstaklinga á viðbragðslista íslensku friðargæslunnar og er það tvískipt. Fyrri hlutinn snýr að rötun og notkun GPS-staðsetningarbúnaðar og skiptist í eftirfarandi þætti:
     *      Rötun.
     *      Áttavitinn.
     *      Kort og kortalestur.
     *      Hnitakerfin.
     *      Staðarákvarðanir.
     *      Að ná áttum.
     *      GPS-tæknin.
     *      GPS-staðsetningartæknin.
     *      Staðsetningartæki.
     *      Gervitungl.
     *      Kort og GPS-tæki.
     *      Verkleg æfing.
    Slysavarnafélagið Landsbjörg sér um þennan hluta námskeiðsins.
    Seinni hlutinn snýr að almennu öryggi og skiptist í eftirfarandi þætti:
     *      Fræðsla hjá Landhelgisgæslunni: jarðsprengjur o.fl.
     *      Sérsveit ríkislögreglustjóra: gíslataka, eftirlitspóstar, viðbrögð á hættustundu, mótstöðuafl hluta o.fl.

     6.      Hversu margir starfsmenn í utanríkisráðuneytinu starfa að málefnum friðargæslunnar?
    Tveir starfsmenn sinna málefnum friðargæslunnar á alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Þeir geta jafnframt leitað til annara starfsmanna alþjóðaskrifstofu ef þörf krefur.

     7.      Eru fyrirhugaðar einhverjar breytingar á skipulagi friðargæslunnar á næsta ári?
    Helstu breytingar sem verða á skipulagi friðargæslunnar frá og með næsta ári lúta að fyrirhugaðri stækkun friðargæslunnar þannig að hún hafi á að skipa hópi 50 útsendra starfsmanna árið 2006 eins og að er stefnt. Þessi fjöldi mun m.a. gera kröfu til fjölgunar starfsmanna á viðbragðslista friðargæslunnar úr 180 eins og er í dag í 250 manns og mun sú aukning hefjast frá og með næsta ári. Á sama tíma verður unnið að því innan ráðuneytisins að efla stjórn friðargæslunnar og fræðslu og almennan undirbúning þeirra sem fara á erlendan vettvang.

     8.      Hver er áætlaður kostnaður við íslensku friðargæsluna í ár og næstu þrjú ár, og hvernig skiptist hann?
Íslensk friðargæsla – áætlaður kostnaður 2003.
Millj.kr.
Launakostnaður 172,0
Dagpeningar 32,0
Ferðakostnaður 15,0
Ýmis kostnaður 3,0
Tryggingar vegna Pristínaflugvallar 2,3
Framlög til rekstrar Pristínaflugvallar 25,0
Norska utn. vegna Srí Lanka 5,9
Unifem vegna starfsm. á skrifstofu Unifem í Kosovo 5,1
Unifem á Íslandi 0,5
Framlag til EUPM 2,2
Framlag til Concordia 1,7
Samtals 264,7

    Samkvæmt fjárlagafrumvarpi verða framlög til friðargæslu 329,8 millj. kr. árið 2004. Gert er ráð fyrir að framlög fari hækkandi á næstu árum og stefnt að því að þau verði 550 millj. kr. árið 2006 og að friðargæsluliðar á vettvangi verði þá 50.

     9.      Er ráðgert að efna til samstarfs með Norðurlandaþjóðunum um friðargæslu?
    Við undirritun utanríkisráðherra á samkomulagi um samvinnu við aðrar Norðurlandaþjóðir, svokallað Nordic Coordinated Arrangement for Military Peace Support (NORDCAPS) í Reykjavík 3. september sl. var m.a. lagður grundvöllur að samvinnu við aðrar Norðurlandaþjóðir um friðargæslu.

     10.      Hvernig er verksvið íslensku friðargæslunnar skilgreint innan þeirra alþjóðastofnana og samtaka sem í hlut eiga, svo sem Sameinuðu þjóðanna og Atlantshafsbandalagsins?
    Verksvið íslensku friðargæslunnar í samstarfi við aðrar alþjóðastofnanir á borð við Sameinuðu þjóðirnar, Atlantshafsbandalagið eða Evrópusambandið er skilgreint sem þátttaka Íslendinga í friðarverkefnum með borgaralegu framlagi íslenskra sérfræðinga eða starfsmanna á sem breiðustum grundvelli með það markmið í huga að slíkt framlag komi að raunverulegu gagni við úrlausn þess vanda sem við er að glíma hverju sinni.