Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 256. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 284  —  256. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um aðstoð við bændur við að fjarlægja úreltar búvélar.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hefur umhverfisráðuneytið kannað hvernig unnt væri að aðstoða bændur við að fjarlægja úreltar búvinnuvélar og önnur landbúnaðartæki sem víða má sjá við tún og bæjarhlöð?
     2.      Er ástæða til sérstaks hreinsunarátaks í sveitum vegna slíkra úreltra véla og tækja?