Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 170. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 305  —  170. mál.




Svar



dómsmálaráðherra við fyrirspurn Guðjóns Ólafs Jónssonar um starfsemi héraðsdómstóla.

    Upplýsinga um starfsemi héraðsdómstóla var aflað hjá dómstólaráði og byggist svar við fyrirspurninni á upplýsingum um árin 1999–2002, þar sem lög um dómstóla, nr. 15/1998, tóku gildi 1. júlí 1998 og árið 1999 var fyrsta heila starfsár héraðsdómstólanna eftir gildistöku þeirra.

     1.      Hver var fjöldi starfsmanna hvers héraðsdómstóls á árunum 1998–2002, sundurliðað eftir árum:
                  a.      héraðsdómara,
                  b.      aðstoðarmanna dómara,
                  c.      annarra starfsmanna?

    Fjöldi starfsmanna héraðsdómstólanna hefur verið nær óbreyttur allt frá árinu 1998, og raunar allt frá árinu 1992, að öðru leyti en því að 30. júní 2001 rann sjálfkrafa út setningartími þriggja héraðsdómara sem störfuðu á grundvelli bráðabirgðaákvæðis í 2. mgr. 41. gr. laga nr. 15/1998. Frá þeim tíma hafa starfandi héraðsdómarar verið 38, aðstoðarmenn héraðsdómara 11 og aðrir starfsmenn samtals í um 35 stöðugildum, sjá meðfylgjandi sundurliðun. Þess má geta að vegna sparnaðar í rekstri á þessu ári hefur aðstoðarmönnum verið fækkað um einn í Héraðsdómi Reykjavíkur.
     Í töflunni kemur fram fjöldi stöðugilda hjá héraðsdómstólunum í árslok 2002.

    

Dómarar
Aðstoðarmenn Aðrir lögfræðingar Aðrir starfsmenn
Samtals
    Héraðsdómur :
Reykjavíkur 21 6 1 18,7 46,7
Vesturlands 2 0 0 1 3
Vestfjarða 1 1 0 1 3
Norðurlands vestra 1 0 0 1 2
Norðurlands eystra 3 1 0 2 6
Austurlands 1 0 0 1 2
Suðurlands 2 1 0 2 5
Reykjaness 7 2 0 5,9 14,9
    Dómstólaráð 0 0 1 0,1 1,1
    Samtals 38 11 2 32,7 83,7


     2.      Hver var fjöldi dómsmála fyrir hverjum héraðsdómstóli á árunum 1998–2002, sundurliðað eftir árum:
                  a.      einkamála,
                  b.      opinberra mála,
                  c.      annarra mála?

    Í töflunni er að finna upplýsingar um fjölda nýrra dómsmála sem bárust einstökum héraðsdómstólum árin 1999–2002:



1999

2000

2001

2002
Fjölgun 1999–2002
Einkamál
Héraðsdómur:
Reykjavíkur 7.737 9.733 13.470 18.166 135%
Vesturlands 160 295 374 561 251%
Vestfjarða 199 231 259 327 64%
Norðurlands vestra 102 160 231 240 135%
Norðurlands eystra 523 707 730 890 70%
Austurlands 155 261 358 365 135%
Suðurlands 388 642 813 1.135 192%
Reykjaness 1.680 2.344 3.269 4.482 167%
Samtals 10.944 14.373 19.504 26.166 139%
Opinber mál*
Héraðsdómur:
Reykjavíkur 3.286 2.689 2.653 4.138 26%
Vesturlands 413 370 504 584 41%
Vestfjarða 199 187 258 263 32%
Norðurlands vestra 297 200 549 542 82%
Norðurlands eystra 382 465 309 634 66%
Austurlands 101 144 188 222 120%
Suðurlands 804 615 715 1.081 34%
Reykjaness 1.930 2.255 2.509 2.290 19%
Samtals 7.412 6.925 7.685 9.754 32%
* Með opinberum málum eru hér talin mál vegna áritana sektarboða. Fjöldi mála sem höfðuð voru með ákæru er tilgreindur í töflu um ákærumál í 3. tölulið.
Önnur mál
Héraðsdómur:
Reykjavíkur 2.195 2.336 2.327 2.964 35%
Vesturlands 91 61 81 125 37%
Vestfjarða 87 68 64 115 32%
Norðurlands vestra 49 42 53 64 31%
Norðurlands eystra 140 208 227 220 57%
Austurlands 56 109 114 120 114%
Suðurlands 188 160 224 238 27%
Reykjaness 759 851 932 1.014 34%
Samtals 3.565 3.835 4.022 4.860 36%
Heildarfjöldi mála 21.921 25.133 31.211 40.780 86%


     3.      Hver var fjöldi munnlega fluttra mála fyrir hverjum héraðsdómstóli á árunum 1998– 2002, sundurliðað eftir árum:
                  a.      einkamála,
                  b.      sakamála,
                  c.      annarra mála?
    Eftirfarandi tafla sýnir fjölda munnlega fluttra einkamála og fjölda allra opinberra mála sem höfðuð voru með ákæru. Upplýsingar um fjölda munnlega fluttra opinberra mála eða fjölda annarra munnlega fluttra mála eru ekki aðgengilegar á svo skömmum tíma sem gefinn er til svara.


1999

2000

2001

2002
Fjölgun 1999–2002
Munnlega flutt einkamál
Héraðsdómur:
Reykjavíkur 663 771 876 940 42%
Vesturlands 25 27 38 30 20%
Vestfjarða 27 34 19 19 -30%
Norðurlands vestra 14 15 5 17 21%
Norðurlands eystra 49 56 46 59 20%
Austurlands 23 22 5 17 -26%
Suðurlands 22 74 80 73 232%
Reykjaness 164 173 191 230 40%
Samtals 987 1.172 1.260 1.385 40%
Ákærumál
Héraðsdómur:
Reykjavíkur 1.061 1.152 1.062 1.184 12%
Vesturlands 127 112 172 149 17%
Vestfjarða 43 51 96 101 135%
Norðurlands vestra 30 36 103 133 343%
Norðurlands eystra 266 276 216 309 16%
Austurlands 45 73 76 80 78%
Suðurlands 152 133 146 192 26%
Reykjaness 319 408 436 502 57%
Samtals 2.043 2.241 2.307 2.650 30%

     4.      Hversu lengi tók að meðaltali að dæma eða úrskurða í munnlega fluttum málum fyrir hverjum héraðsdómstóli á árunum 1998–2002, sundurliðað eftir árum:
                  a.      einkamálum,
                  b.      sakamálum,
                  c.      öðrum málum?

    Eftirfarandi töflur sýna málsmeðferðartíma munnlega fluttra einkamála og ákærumála á árunum 1999–2002. Héraðsdómstólarnir hafa því miður ekki aðgengilegar upplýsingar um málsmeðferðartíma í öðrum málaflokkum.
    Þrátt fyrir að afgreiddum munnlega fluttum einkamálum hafi fjölgað um 33% á tímabilinu og héraðsdómurum hafi fækkað um þrjá, þá hefur málsmeðferðartími þeirra styst um 27 daga að meðaltali. Afgreiddum ákærumálum fjölgaði einnig verulega á tímabilinu, eða um 29%, málsmeðferðartími þeirra hefur þó aðeins lengst um fjóra daga að meðaltali, en óafgreiddum málum í árslok hefur hins vegar fjölgað verulega.

    
Reykjavík

Reykjanes

Vesturland

Vestfirðir
Norðurland vestra Norðurland eystra
Austurland

Suðurland

Samtals
Meðaltal, dagar
Málsmeðferðartími einkamála
1999
Fjöldi mála 702 143 32 27 10 41 22 26 1.003
Meðaltal, dagar 277 203 236 193 207 236 246 275 260
Aldur óafgreiddra mála í árslok
Fjöldi mála 391 60 9 8 6 24 13 8 519
Meðaltal, dagar 254 199 129 277 168 250 286 341 247
2000
Fjöldi mála 764 136 27 29 15 47 18 56 1.092
Meðaltal, dagar 253 217 210 282 247 285 329 258 251
Aldur óafgreiddra mála í árslok
Fjöldi mála 401 96 10 13 7 32 17 25 601
Meðaltal, dagar 253 204 206 252 191 193 189 157 236
2001
Fjöldi mála 839 205 36 26 12 66 21 60 1.265
Meðaltal, dagar 271 248 196 277 249 224 263 193 259
Aldur óafgreiddra mála í árslok
Fjöldi mála 444 83 13 6 7 13 7 44 617
Meðaltal, dagar 212 156 200 130 137 176 335 233 205
2002
Fjöldi mála 904 225 35 16 14 35 20 62 1.311
Meðaltal, dagar 245 181 192 223 197 194 320 269 233
Aldur óafgreiddra mála í árslok
Fjöldi mála 484 89 8 10 10 36 5 54 696
Meðaltal, dagar 218 142 147 161 153 222 423 257 210
Málsmeðferðartími ákærumála
1999
Fjöldi mála 1.071 305 138 41 26 233 44 135 1.993
Meðaltal, dagar 67 55 57 59 82 52 95 69 64
Aldur óafgreiddra mála í árslok
Fjöldi mála 160 28 16 10 10 46 10 42 322
Meðaltal, dagar 100 84 68 79 66 44 81 66 82
2000
Fjöldi mála 1140 363 110 53 39 282 63 153 2.203
Meðaltal, dagar 65 62 54 96 106 55 82 91 69
Aldur óafgreiddra mála í árslok
Fjöldi mála 172 74 16 8 8 41 20 21 360
Meðaltal, dagar 92 91 22 38 63 52 48 51 78
2001
Fjöldi mála 1.087 441 163 87 94 231 64 126 2.293
Meðaltal, dagar 59 59 43 68 71 68 109 76 62
Aldur óafgreiddra mála í árslok
Fjöldi mála 158 61 25 17 17 29 32 41 380
Meðaltal, dagar 119 59 47 65 125 45 92 42 86
2002
Fjöldi mála 1.166 503 137 100 109 278 93 180 2.566
Meðaltal, dagar 72 46 42 77 73 70 132 77 68
Aldur óafgreiddra mála í árslok
Fjöldi mála 179 50 30 18 39 62 17 52 447
Meðaltal, dagar 121 62 24 67 78 77 79 50 86

     5.      Hversu mikið fé var veitt til reksturs hvers héraðsdómstóls á föstu verðlagi á árunum 1998–2002?
    Með fjárlögum er heildarfjárveiting til héraðsdómstóla ákveðin en dómstólaráð skiptir henni milli héraðsdómstólanna átta. Launakostnaður héraðsdómara er færður á dómstólaráð en ekki á einstaka héraðsdómstóla. Sama er að segja um kostnað vegna meðdómenda og ferðakostnað héraðsdómara þegar þeir eru meðdómendur á öðrum héraðsdómstóli en þeir hafa fast sæti á. Af þeim sökum hefur dómstólaráð ekki sundurliðaðan kostnað til reksturs hvers héraðsdómstóls, nema fyrir árin 2001 og 2002. Ríkisendurskoðun hefur nýverið skilað ársreikningi fyrir árið 2002. Þar er reiknaður út rekstrarkostnaður hvers dómstóls, þ.e. launakostnaður héraðsdómara er fluttur yfir á embættin, en ekki reyndist unnt að sundurliða meðdómendakostnað og ferðakostnað héraðsdómara, sjá fylgiskjal.
    Taflan sýnir rekstrarafkomu héraðsdómstólanna sl. fjögur ár. Árið 2002 fengu héraðsdómstólar fjárveitingu vegna hallareksturs árana 2000 og 2001, samtals 48,4 millj. kr., sú fjárhæð er hluti ríkisframlags á árinu 2002. Ríkisframlag vegna ársins 2002 nam því 619,8 millj. kr. Fjárhæðirnar eru á föstu verðlagi miðað við árið 2003, byggt er á vísitölu neysluverðs, ársvísitölu hvers árs. Uppsafnaður halli í árslok 2002 nam um -14 millj. kr. á verðlagi ársins 2002.

Rekstur í þús. kr. á föstu verðlagi ársins 2003.
Rekstur 2003 2002 2001 2000 1999 1998
Sértekjur 21.000 36.854 33.598 45.491 37.967 40.297
Rekstrargjöld -1.927.500 -2.093.833 -1.837.543 -1.848.805 -1.942.341 -1.893.467
Stofnkostnaður -4.200 -5.316 -4.696 -8.870 -33.552 -28.940
Ríkisframlag 1.929.200 2.008.391 1.851.740 1.793.774 2.049.556 1.789.227
Rekstrarafgangur/(Rekstrarhalli) 18.500 -53.904 43.098 -18.411 111.629 -92.883

Fylgiskjal.


Ríkisendurskoðun:

Héraðsdómstólar.
Ársreikningur 2002.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.