Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 275. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 311 — 275. mál.
um eflingu sjálfboðastarfs.
Nefndarmenn verði þrír, skipaðir af ráðherra.
Nefndin skili tillögum sínum fyrir 1. september 2004.
Sjálfboðastarf hefur skipað ákveðinn sess í íslensku samfélagi um langan aldur. Hjálparsveitir hafa unnið mörg þrekvirki sem þakka verður ósérhlífnu starfi meðlima þeirra og íþróttafélög og barna- og unglingastarf hefur oft og tíðum byggst á sjálfboðastarfi. Þá hafa Íslendingar veitt fátækum þjóðum aðstoð með sjálfboðavinnu sem ýmist hefur verið innt af hendi hér heima, t.d. með peningasöfnun, eða í ríkjum þar sem aðstoðar hefur verið þörf. Á meðal stórra samtaka og félaga sem byggst hafa á framlagi sjálfboðaliða eru Íþróttasamband Íslands, Landsbjörg, Kvenfélagið Hringurinn og Rauði kross Íslands.
Árið 2001 var ár sjálfboðastarfs hjá Sameinuðu þjóðunum. Það ár var haldin ráðstefna hér á landi þar sem íslenskir og erlendir fyrirlesarar skiptust á skoðunum. Margt sem gert var á þessu ári sjálfboðastarfs bæði hér heima og erlendis gæti nýst í starfi nefndarinnar sem hér er lagt til að ráðherra skipi.
Þrátt fyrir að flestir geri sér grein fyrir mikilvægi þess starfs sem sjálfboðaliðar vinna skortir nokkuð á fullan skilning í þeim efnum. Evrópuráðsþingið hefur beint þeim tilmælum til aðildarríkja Evrópuráðsins að starf sjálfboðaliða verði metið að verðleikum en rannsóknir hafa sýnt fram á að störf sjálfboðaliða eru stór hluti af landsframleiðslu hvers ríkis, allt frá 10–20%. Þeir sem bjóða krafta sína til sjálfboðastarfa öðlast oft mikla reynslu sem ekki verður aflað annars staðar. Víða erlendis er slík starfsreynsla metin til fulls á við reynslu sem aflað er í launuðu starfi en svo er ekki hérlendis nema að takmörkuðu leyti. Það er álit flutningsmanns að þessu þurfi að breyta. Því er lagt til að nefndin meti hvernig megi efla virðingu fyrir starfi sjálfboðaliða, t.d. hvort breyta megi lögum á þann hátt að kveðið verði á um að við mat á hæfni þeirra sem sækja um opinber störf skuli tekið fullt tillit til reynslu sem aflað hefur verið í sjálfboðastarfi.
Margir sem vinna heima vilja gjarnan vinna úti hluta dags en sækjast ekki alltaf eftir launuðu starfi heldur leita allt eins að vettvangi þar sem þeir geta látið gott af sér leiða og þegið ánægju og virðingu í laun. Slíka fórnfýsi þarf að virkja en veita henni jafnframt fulla virðingu.
Störf sjálfboðaliða eru mikilvægur þáttur í hverju samfélagi. Sjálfboðaliðar vinna oft störf sem hvorki ríki né einkafyrirtæki hafa tök á að sinna. Því er ástæða til að athuga hvort bæta megi á einhvern hátt umhverfið sem frjáls félagasamtök búa við hér á landi. Sparnaður þjóðfélagsins af vinnu sjálfboðaliða er ómældur og ef nefndin gæti aflað grunnupplýsinga um þann sparnað gæti það reynst mikilvægt tæki við hagstjórn.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 311 — 275. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um eflingu sjálfboðastarfs.
Flm.: Lára Margrét Ragnarsdóttir, Gunnar Birgisson,
Margrét Frímannsdóttir, Guðjón A. Kristjánsson, Þuríður Backman.
Nefndarmenn verði þrír, skipaðir af ráðherra.
Nefndin skili tillögum sínum fyrir 1. september 2004.
Greinargerð.