Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 177. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 319 — 177. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um reglur um kjör og hagsmunaárekstra stjórnenda lífeyrissjóða.
1. Hve margir stjórnarmenn eða stjórnendur fimm stærstu lífeyrissjóða áttu aðild að stjórnum fyrirtækja á árunum 2001 og 2002? Óskað er sundurliðunar á hverjum lífeyrissjóði fyrir sig og hvort um sé að ræða sæti í fleiri en einni stjórn fyrirtækja og þá hve mörgum hjá hverjum þeirra.
Í ársskýrslu Fjármálaeftirlitsins kemur fram að í lok árs 2002 voru fimm stærstu lífeyrissjóðir landsins þessir:
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR),
Lífeyrisjóður verslunarmanna (VR),
Lífeyrissjóðurinn Framsýn,
Lífeyrissjóður sjómanna og
Sameinaði lífeyrissjóðurinn.
Samkvæmt V. kafla laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða skal, fjármálaráðherra veita lífeyrissjóði starfsleyfi að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Jafnframt skal tilkynna til fjármálaráðherra allar breytingar á samþykktum lífeyrissjóðs og öðlast þær ekki gildi fyrr en ráðherra hefur staðfest að þær fullnægi ákvæðum laganna og starfsleyfi sjóðsins. Aðrar upplýsingar um starfsemi lífeyrissjóða, svo sem um stjórnarmenn og stjórnendur og greiðslur til þeirra, liggja ekki fyrir í fjármálaráðuneytinu.
2. Hversu oft og hjá hvaða framangreindum lífeyrissjóðum var um að ræða stjórnarsetu í fyrirtækjum sem lífeyrissjóðirnir höfðu fjárfest í?
3. Hverjar voru heildarársgreiðslur til þessara stjórnarmanna og stjórnenda lífeyrissjóða annars vegar fyrir setu í lífeyrissjóðum og hins vegar fyrir setu í stjórnum fyrirtækja á síðastliðnu ári og eftir fjölda stjórnarmanna og stjórnenda?
Þessar upplýsingar liggja ekki fyrir í fjármálaráðuneytinu og sama gildir um Fjármálaeftirlit og Landssamtök lífeyrissjóða.
4. Hvað reglur gilda hjá lífeyrissjóðunum um hlutabréfaeign stjórnarmanna og stjórnenda til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra ef þeir eiga sjálfir hlut í fyrirtæki sem lífeyrissjóðirnir fjárfesta í?
Samkvæmt 5. tölul. 3. mgr. 29. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, ber stjórn lífeyrissjóðs að setja verklagsreglur um verðbréfaviðskipti lífeyrissjóðsins, stjórnar hans og starfsmanna. Verklagsreglurnar skulu staðfestar af Fjármálaeftirlitinu.
Verklagsreglum þessum er ætlað að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra í starfsemi einstakra lífeyrissjóða og jafnframt að draga úr hættu á að þeir sem þær taka til tengist einstökum úrlausnarefnum með þeim hætti að fyrir fram megi draga í efa óhlutdrægni þeirra við meðferð og afgreiðslu mála.
Fjármálaeftirlitið hefur gefið út leiðbeiningar til lífeyrissjóða um atriði sem koma eiga fram í slíkum verklagsreglum. Meðal atriða sem þar eiga að vera eru reglur um meðferð trúnaðarupplýsinga, markaðshegðun, þagnarskyldu, hæfi, tilkynningarskyldu, rannsóknarskyldu og eftirlit.
5. Hvaða reglur gilda um setu stjórnarmanna og stjórnenda lífeyrissjóða í stjórnum fyrirtækja sem lífeyrissjóðirnir hafa fjárfest í ef stjórnarmenn eða stjórnendur eiga sæti í stjórn þess fyrirtækis, eiga sjálfir hlut í því eða eiga annarra hagsmuna að gæta í viðkomandi fyrirtæki?
Í 6. tölul. 3. mgr. 29. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, segir að stjórn lífeyrissjóðs skuli ákveða hver skuli vera fulltrúi af hálfu lífeyrissjóðs í stjórn stofnunar eða atvinnufyrirtækis, nema lög kveði á um annað. Ekki eru frekari ákvæði um þetta atriði í lögum nr. 129/1997. Skv. 1. mgr. 29. gr. ber stjórn lífeyrissjóðs að setja sér starfsreglur. Algengast er að tekið sé á þeim atriðum sem hér er spurt er um í starfsreglum hvers sjóðs, en reglur einstakra sjóða um þessi atriði eru mismunandi.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 319 — 177. mál.
Svar