Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 112. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 323 — 112. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar um félagsgjöld fyrirtækja og launþega.
1. Hve miklu samtals nema félagsgjöld sem fyrirtæki greiða til samtaka atvinnulífsins?
Ekki liggja fyrir upplýsingar um það hversu háar fjárhæðir fyrirtæki greiða í félagsgjöld til samtaka atvinnulífsins. Þessar upplýsingar eru ekki sérstaklega sundurgreindar á skattframtölum.
2. Hve mikið má ætla að skattgreiðslur fyrirtækja minnki vegna heimildar þeirra til að draga félagsgjöld frá tekjuskattsstofni fyrirtækja?
Þar sem þessi gjöld eru ekki sérstaklega sundurgreind á skattframtölum liggja þessar upplýsingar ekki fyrir.
3. Hve miklu samtals nema félagsgjöld sem launþegar greiða til stéttarfélaga samkvæmt kjarasamningum eða samþykktum stéttarfélaga?
Engar upplýsingar liggja fyrir varðandi þetta. Félagsgjöld launþega eru ekki sérstaklega sundurgreind á skattframtölum.
4. Hvaða heimildir hafa launþegar til að draga félagsgjöld frá tekjuskattsstofni sínum?
Samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og eignarskatt, hafa launþegar enga heimild til að draga félagsgjöld frá tekjuskattsstofni sínum.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 323 — 112. mál.
Svar