Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 245. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 327  —  245. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Péturs H. Blöndals um greiðslu örorkulífeyris úr lífeyrissjóðum og af séreignasparnaði.

     1.      Hvað fengu margir árið 2002 örorkulífeyri frá lífeyrissjóðum, sem byggjast á samtryggingu annars vegar og séreignasparnaði hins vegar, og hvað hefur þeim fjölgað mikið milli ára síðustu 10 ár?
    Í fylgiskjali með svari þessu koma m.a. fram upplýsingar um meðalfjölda lífeyrisþega á árunum 1994–2002 og hlutfall örorkulífeyris af greiddum lífeyri. Upplýsingar um fjölda örorkulífeyrisþega liggja hins vegar ekki fyrir.

     2.      Hver var heildarupphæð örorkulífeyrisgreiðslna árið 2002 úr lífeyrissjóðum annars vegar og úr séreignasparnaði hins vegar og hvað hafa þessar greiðslur aukist mikið milli ára umfram verðlag síðustu 10 ár?
    Sjá fylgiskjal með upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu.

     3.      Hvað er örorkulífeyrir stór hluti af lífeyrisgreiðslum lífeyrissjóðanna annars vegar og lífeyrisgreiðslum úr séreignasparnaði hins vegar?
    Sjá fylgiskjal með upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu.

     4.      Hversu margir örorkulífeyrisþegar eru með minna en 100% örorkulífeyri?
    Upplýsingar um fjölda örorkulífeyrisþega sem eru með minna en 100% örorkulífeyri liggja ekki fyrir.

     5.      Hverjar eru almennar reglur lífeyrissjóðanna um greiðslu örorkulífeyris?
    Það skilyrði er sett hjá lífeyrissjóðunum fyrir örorkulífeyri að sjóðfélaginn hafi orðið fyrir slysi eða fengið sjúkdóm sem skerðir getu hans til að gegna því starfi sem veitti honum aðild að lífeyrissjóðnum og að hann hafi sannanlega orðið fyrir tekjumissi af völdum orkutapsins. Miðað er við að orkutapið sé a.m.k. 50% eða meira og að sjóðfélaginn hafi greitt í lífeyrissjóð í a.m.k. tvö ár. Fyrstu þrjú árin skal mat orkutaps aðallega miðað við vanhæfni sjóðfélaga til að gegna því starfi er hann hefur gegnt og veitti honum aðild að sjóðnum. Sé sjóðfélaginn að loknum þremur árum vinnufær til almennra starfa falla bæturnar niður. Hjá sumum sjóðum gilda fimm ár í báðum tilvikum.
    Örorkulífeyrir lækkar eða fellur niður ef örorkan minnkar eða hverfur. Örorkulífeyrir er greiddur þar til ellilífeyrisaldri er náð en þá breytist hann í ellilífeyri. Lífeyrissjóður getur gert þá kröfu til lífeyrisþega að hann fari í sjúkraþjálfun eða endurhæfingu og á það bæði við þegar sótt er um örorkulífeyri og við endurmat orkutaps.
    Upphæð örorkulífeyris fer eftir þeim réttindum sem sjóðfélaginn hefur áunnið sér hjá sjóðnum, auk þeirra réttinda sem hann hefði áunnið sér hjá sjóðnum ef hann hefði greitt iðgjald til 65 eða 67 ára aldurs. Er þá m.a. miðað við greiðslur hans til lífeyrissjóðs í a.m.k. þrjú ár af síðustu fjórum árum fyrir slys eða sjúkdóm. Ekki er um framreikning að ræða ef rekja má orkutapið til ofnotkunar áfengis, lyfja eða fíkniefna. Eigi sjóðfélagi hins vegar ekki rétt á framreikningi skal fjárhæð örorkulífeyris miðast við áunnin réttindi.
    Hafi sjóðfélagi öðlast rétt til framreiknings sem fallið hefur niður vegna tímabundinnar fjarveru af vinnumarkaði, t.d. allt að 24 mánuði, vegna vinnu erlendis, náms, leyfis frá störfum, barneigna eða sambærilegra ástæðna, skal framreikningsréttur stofnast á nýjan leik eftir sex mánuði frá því að hann hefur aftur störf hér á landi.


Fylgiskjal.


Örorka úr samtryggingu og séreign:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


* Tölur úr séreign voru fyrst aðgreindar frá sameignardeildum í skýrslu Fjármálaeftirlitsins um lífeyrissjóði vegna ársins 2002.

Örorka úr séreign árið 2002:
Lífeyrir úr séreign nam 684.095.000 kr. á árinu 2002.
1,4% af greiddum lífeyri úr séreign var örorkulífeyrir eða 9.577.330 kr.
Meðalfjöldi lífeyrisþega á árinu var 970.
Eldri sundurliðaðar upplýsingar úr séreign eru ekki tiltækar.