Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 235. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 357 — 235. mál.
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar um Framtakssjóð Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hve mikil upphæð var lögð til Framtakssjóðs Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins við stofnun hans?
2. Hver er staða sjóðsins nú samkvæmt efnahagsreikningi?
3. Hver hefur annast vörslu sjóðsins og hver hefur ávöxtunin verið hjá einstökum vörsluaðilum og í heild?
4. Hvert var markmiðið með stofnun sjóðsins?
5. Í hvaða fyrirtækjum hefur sjóðurinn fjárfest? Felst fjárfestingin í hlutafjárkaupum í tengslum við nýsköpun og atvinnuþróun á landsbyggðinni og þá einkum á sviði upplýsinga- og hátækni?
6. Telur ráðherra að markmið um fjárfestingu í upplýsinga- og hátækni á landsbyggðinni hafi náðst?
Í 7. grein laga um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins, nr. 61/1997, segir til um framlög í „Framtakssjóð“ Nýsköpunarsjóðs og þar er greint frá markmiðum hans: „Auk stofnfjár skv. 1. mgr. skal ríkissjóður greiða Nýsköpunarsjóði 1.000 millj. kr. af söluandvirði hlutafjár í eigu ríkissjóðs í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. Höfuðstól samkvæmt þessari málsgrein skal halda aðgreindum frá bókhaldi og reikningum sjóðsins og verja til hlutabréfakaupa í því skyni að stuðla að nýsköpun og atvinnuuppbyggingu með áherslu á landsbyggðina, einkum á sviði upplýsinga- og hátækni. Stjórn Nýsköpunarsjóðs skal bjóða út vörslu fjárins og ráðstöfun í einingum með það að markmiði að hámarka arð eignarinnar samkvæmt nánari reglum sem viðskiptaráðherra setur að fengnum tillögum stjórnarinnar. Útboðnar einingar skulu leystar upp 7–10 árum eftir að þær eru boðnar út og rennur andvirði þeirra í ríkissjóð.“
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins bauð stofnfé þetta út til ráðstöfunar og ávöxtunar í fernu lagi og var hver hlutur 250 milljónir. Krafa var gerð um 125 millj. kr. mótframlag frá hverjum þeirra sem fékk þessa hluta til ráðstöfunar. Þannig varð stofnfé sjóðanna fjögurra samtals 1.500 millj. kr.
Ávöxtun stofnfjár hefur verið neikvæð og nokkrar fjárfestingar verið afskrifaðar. Þessi afkoma endurspeglar almenna afkomu sambærilegra áhættufjárfesta á tímabilinu.
Um síðustu áramót voru þær 1.000 milljónir sem út voru boðnar, orðnar um 593 milljónir og skiptast á eftirfarandi hátt á milli fjárvörsluaðila:
Fjárfestingafélag Vestmannaeyja hf., Vestmannaeyjum 142.086.669 kr.
Fjárfestingafélag Austurlands hf., Reyðarfirði 129.591.303 kr.
Landsbankinn – Framtakssjóður ehf., Akureyri 152.106.552 kr.
Framtakssjóður EFA, Reykjavík 169.138.935 kr.
Framtakssjóðirnir fjórir hafa fjárfest í hlutafjárkaupum í tengslum við nýsköpun og atvinnuþróun. Reynt hefur verið að beina fjárfestingunum að fyrirtækjum á landsbyggðinni eins og tækifæri hafa gefist til og hafa fyrirtæki á sviði upplýsinga- og hátækni einkum verið skoðuð. Í öllum tilfellum hafa traust viðskiptasjónarmið ráðið ákvörðunum sjóðanna. Framtakssjóðirnir hafa fjárfest í eftirfarandi fyrirtækjum:
Ekki fer á milli mála að fjárfestingar framtakssjóðanna hafa skipt mjög miklu máli fyrir þau fyrirtæki sem fjárfest hefur verið í. Frá árslokum 2000 hefur verið stöðugur skortur á áhættufé til að leggja í ný fyrirtæki. Einkum hafa fyrirtæki sem starfa við upplýsinga- og hátækni fundið fyrir þessum samdrætti og í meira en eitt ár hefur nánast ekkert fé verið fáanlegt til nýrra fjárfestinga í sprotafyrirtækjum. Fjárfestar hafa fyrst og fremst einbeitt sér að því að verja eldri fjárfestinga sínar fyrir falli. Þessi staða endurspeglar alþjóðlega þróun þar sem gjaldþrot sprotafyrirtækja hafa verið mjög mikil síðustu missiri og ávöxtun stofnfjár verið óviðunandi í flestum tilfellum. Ef fjármagn framtakssjóðanna hefði ekki verið til ráðstöfunar hefði staða nýsköpunar atvinnulífsins verið mun verri en hún er nú. Það fjármagn sem lagt var í framtakssjóðanna hefur því þjónað tilgangi sínum.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 357 — 235. mál.
Svar

| Nafn | Staður | Starfssvið |
| Atferlisgreining ehf. | Reykjavík | Hugbúnaðarframleiðsla til atferlisgreininga |
| Bergspá ehf. | Akranes/Reykjavík | Hugbúnaður til greiningar á steinefnum |
| BonusOrtho ehf. | Ólafsfjörður/Reykjavík | Þróun og markaðssetning á nýrri aðferð til framleiðslu á bæklunarskóm |
| CCP hf. | Reykjavík | Framleiðsla og sala tölvuleikja á netinu |
| DomesticSoft | Reykjavík | Hugbúnaður til samtengingar á smágreindum tækjum |
| Fiskey hf. | Eyjafjörður | Lúðueldi |
| Foxhall ehf. | Akranes | Þróun og framleiðsla á eldvarnarfatnaði |
| Framtíðartækni hf. | Reykjavík | Þróun á aðferðum og tækjum til lækninga og rannsókna |
| Gagnvirk miðlun hf. | Höfn, Hornafirði | Þróun gagnvirks sjónvarps |
| Hvítserkur hf. (Interseafood) | Vestmannaeyjar/Reykjavík | Rekur upplýsinga- og viðskiptavef fyrir sjávarútveg á internetinu |
| Idega hugbúnaður hf. | Reykjavík | Nethugbúnaðarfyrirtæki |
| Landmat International ehf. | Reykjavík | Virðisaukandi þjónusta fyrir rekstraraðila farsímakerfa |
| Lífeind ehf. | Reykjavík | Þróun og markaðssetning nýrra aðferðafræðilegra lausna í lífvísindum |
| Markmar ehf. | Reykjavík | Hugmyndafyrirtæki um vinnslu úr sjávarfangi með líftækni |
| Martel ehf. | Húsavík | Gervihnattafarsímaþjónusta |
| Nikita ehf. | Reykjavík | Hönnun og markaðssetning á brettafatnaði fyrir konur |
| NorðurÍs hf. | Höfn, Hornafirði | Framleiðsla og sala á bragðefnum úr sjávarfangi |
| Orf Líftækni hf. | Reykjavík | Framleiðsla hágæðapróteins úr erfðabreyttum plöntum |
| Prokaría hf. | Reykjavík | Líftæknifyrirtæki |
| Skrín ehf. | Akureyri | Tölvuþjónusta |
| Stofnfiskur hf. | Akureyri | Framleiðsla lax-, bleikju- og regnbogasilungshrogna |
| Sæbýli hf. | Vogar, Vatnsleysuströnd | Sæeyrna- og sandhverfueldi |
| Títan hf. | Reykjavík | Fjarskiptafyrirtæki |
| Umsýn hf. | Reykjavík | Framleiðsla og sala á tölvuhugbúnaði til eignaumsýslu |
| Veðvörur ehf. (Betware) | Reykjavík | Hugbúnaðarframleiðsla fyrir getraunir og lottó á netinu |
| Vefur – Samskiptalausnir ehf. | Selfoss/Reykjavík | Hugbúnaðar- og veflausnir og þjónusta tengd netinu |
| Þórsbrunnur hf. | Reykjavík | Vatnsútflutningsfyrirtæki |