Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 315. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 361 — 315. mál.
til viðskiptaráðherra um uppgjör sölu á hlut ríkisins í Landsbankanum og Búnaðarbankanum.
1. Hefur verið gengið frá endanlegu söluverði á hlut ríkisins í Landsbankanum og Búnaðarbankanum? Ef svo er, hvert var söluandvirði hvors banka um sig og hefur það verið greitt að fullu?
2. Hvernig hefur verðmæti bankanna breyst frá því sem upphaflega var gert ráð fyrir í fjárlögum fyrir árið 2003 og einnig við undirskrift kaupsamninga bæði hvað varðar breytingar á gengi íslensku krónunnar og breytingar á mati bankanna?
3. Hefur mikill gróði bankanna á þessu ári áhrif til hækkunar endanlegs söluandvirðis þeirra?
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 361 — 315. mál.
Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um uppgjör sölu á hlut ríkisins í Landsbankanum og Búnaðarbankanum.
Frá Jóni Bjarnasyni.