Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 316. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 362   —   316. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um afdrif hælisleitenda.

Frá Álfheiði Ingadóttur.



     1.      Hve margir hafa sótt um pólitískt hæli hér á landi á ári 1998–2003 og hver urðu afdrif þessara umsókna?
     2.      Hve mörgum hefur verið veitt hæli hér á landi á fyrrgreindu tímabili?
     3.      Hversu mörg börn yngri en 16 ára hafa verið meðal hælisleitenda á ári 1998–2003 og hver urðu afdrif umsókna þeirra?
     4.      Hefur ráðherra markað stefnu í afgreiðslu umsókna hælisleitenda? Ef svo er, hver er hún?