Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 213. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 388 — 213. mál.
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um brot á lögum um atvinnuréttindi útlendinga.
1. Eru dæmi þess að útlendingar hafi ekki séð þá ráðningarsamninga sem þeir eiga þó að hafa skrifað undir og að umkvartanir stéttarfélaga eða annarra aðila hafi snúist um að undirskriftir erlendra starfsmanna hafi verið falsaðar? Ef svo er, hvernig hefur ráðuneytið brugðist við slíkum umkvörtunum?
Á miðju ári 2001 var verklagi við afgreiðslu atvinnuleyfa breytt á þann veg að tekið var fyrir það að veita atvinnuleyfi nema undirritaðir ráðningarsamningar (og dvalarleyfisumsóknir) bærust með umsóknum um atvinnuleyfi. Áður hafði það tíðkast að útlendingar skrifuðu undir ráðningarsamninga eftir komu til landsins.
Nokkur dæmi hafa komið upp þar sem staðfest hefur verið að útlendingar hafi ekki séð þá ráðningarsamninga sem þeir áttu að hafa skrifað undir, þ.e. þeir höfðu skrifað undir samningseyðublaðið óútfyllt en atvinnurekandinn gerði síðan baksamning við starfsmennina sem uppfylltu ekki ákvæði laganna. Þar var um að ræða dansara í næturklúbbi. Vinnumálastofnun hafnaði öllum umsóknum fyrirtækisins í kjölfarið. Aðeins einu sinni hefur borist kvörtun um að undirskrift starfsmannsins hafi verið fölsuð. Það mál er nú til athugunar. Meðal annars hefur Vinnumálastofnun óskað eftir upplýsingum frá Danmörku sem hún vill að liggi fyrir áður en gripið verður til frekari aðgerða.
2. Hversu oft á sl. tveimur árum hefur málum vegna ætlaðra brota á lögum um atvinnuréttindi útlendinga verið vísað til opinberrar rannsóknar skv. 17. gr. laganna og hver á að hafa frumkvæði að því að vísa máli í þann farveg að mati ráðuneytisins?
Vinnumálastofnun hefur í a.m.k. fimm tilvikum vísað máli til rannsóknar hjá lögreglu á undanförnum tveimur árum. Þá hefur stofnunin haft gott samstarf við lögregluna í Reykjavík varðandi eftirlit með útlendingum. Vinnumálastofnun hefur frumkvæði að því að vísa málum til lögreglu þó að ekki sé um bein fyrirmæli í lögum að ræða. Ekkert er því til fyrirstöðu að aðrir sem koma að málum hafi einnig slíkt frumkvæði, svo sem Útlendingastofnun og stéttarfélög.
3. Hversu oft á sl. tveimur árum hefur ráðuneytið beitt ákvæðum 16. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga sem kveður á um afturköllun atvinnuleyfa? Í hvaða tilvikum hefur það verið og hvernig er gengið úr skugga um að erlendir starfsmenn fái afhent afrit af ráðningarsamningi sínum?
Rétt er að vekja á því athygli að lög nr. 97/2002 tóku gildi 1. janúar sl. Eitt atvinnuleyfi var afturkallað á síðustu tveimur árum í tíð eldri laga. Þar var um að ræða atvik er varðaði útlending en ekki atvinnurekanda.
Ekki hefur hingað til verið gengið sérstaklega úr skugga um að erlendir starfsmenn fái í hendur þann ráðningarsamning sem fylgir umsókn um tímabundið atvinnuleyfi. Eyðublaðið er í þríriti, eitt fyrir viðkomandi útlending, annað er eintak atvinnurekandans og Vinnumálastofnun skal halda því þriðja. Verklagið hefur verið þannig að ef afrit útlendingsins hefur fylgt umsókninni hefur það verið sent til atvinnurekandans ásamt tilkynningu um veitingu atvinnuleyfis. Hann hefur því getað því haldið því hjá sér. Þar sem nýlega hafa komið upp tilvik sem kalla á breytingar á þessu verklagi sem hefur tíðkast undanfarin 10 ár hefur nú verið ákveðið að senda afrit samninganna beint á heimilisfang útlendingsins.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 388 — 213. mál.
Svar