Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 246. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 392 — 246. mál.
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Péturs H. Blöndals um örorkulífeyri.
1. Hvað fengu margir örorkulífeyri frá Tryggingastofnun árið 2002 og hvað hefur þeim fjölgað mikið síðustu 10 ár?
Örorkulífeyrisþegar voru 10.443 árið 2002 og 5.352 árið 1992. Þeim hefur því fjölgað um 5.091 eða um 95% á þessu tímabili.
2. Hver var heildarupphæð örorkulífeyris sem Tryggingastofnun greiddi árið 2002 og hvað hafa þessar greiðslur vaxið mikið milli ára umfram verðlag síðustu 10 ár?
Heildarupphæð örorkulífeyris frá Tryggingastofnun ríkisins árið 2002 var 2.533 millj. kr., en 810 millj. kr. árið 1992. Hækkunin var því 213%. Mánaðarlegar greiðslur örorkulífeyris árið 2002 voru 19.990 kr., en árið 1992 voru þær 12.260 kr. Hækkunin var því 63%.
Vísitala neysluverðs 1992 var 161,2 stig, en 2002 var hún 222,6 stig. Hækkunin á þessu tímabili var því 38,1%.
3. Hvað er örorkulífeyrir stór hluti af lífeyrisgreiðslum Tryggingastofnunar?
Heildarútgjöld Tryggingastofnunar ríkisins árið 2002 á sviði lífeyristrygginga voru 22.191 millj. kr. Samkvæmt því var hlutur örorkulífeyris 11,4%. Ef útgjöld vegna laga um félagslega aðstoð eru reiknuð með útgjöldum lífeyrissviðs nemur heildarupphæðin 28.431 millj. kr. Hlutur örorkulífeyris verður þá 8,9% af heildarútgjöldum þessum.
4. Hversu margir fá greiddan örorkulífeyri og hversu margir fá greiddan örorkustyrk?
Árið 2002 fengu 10.443 einstaklingar greiddan örorkulífeyri og 756 einstaklingar fengu greiddan örorkustyrk.
5. Hvaða bætur frá Tryggingastofnun fær sá sem metinn er 50% öryrki, þ.e. missir helming vinnugetu sinnar?
Þessi einstaklingur fær örorkustyrk, 15.473 kr. á mánuði (2003), sem er ætlaður til að létta á kostnaði sem hann hefur umfram heilbrigt fólk vegna örorku sinnar.
6. Hvaða tekjur, bætur, lífeyri og launatekjur fær annars vegar sá sem metinn er 75% öryrki, býr einn og er með 30 þús. kr. frá lífeyrissjóði og hefur að auki 80 þús. kr. í laun á mánuði og hins vegar sá sem engar launatekjur hefur og á ekki rétt á örorkulífeyri frá lífeyrissjóði?
Prentað upp.
Í töflunni er miðað við að A og B séu báðir með 75% örorkumat og búi einir en B fái hvorki laun né greiðslur úr lífeyrissjóði.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 392 — 246. mál.
Svar

| A | B | |
| Bætur frá TR | 48.253 kr. | 95.083 kr. |
| Lífeyrissjóður | 30.000 kr. | 0 |
| Launatekjur | 80.000 kr. | 0 |
| Alls | 158.253 kr. | 95.083 kr. |