Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 252. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 405  —  252. mál.




Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Sigurlínar Margrétar Sigurðardóttur um fé til textunar sjónvarpsefnis.

     1.      Hversu mikið hefur verið nýtt af því fé sem menntamálaráðherra veitti Sjónvarpinu 23. apríl sl. til textunar innlends efnis?
     2.      Hvað hafa verið textaðar margar mínútur frá 23. apríl sl.?
     3.      Hvað er áætlað að texta margar mínútur til 31. desember nk.?
    Svar menntamálaráðherra er m.a. byggt á upplýsingum sem óskað var frá Ríkisútvarpinu í tilefni af fyrirspurninni.
    Frá 23. apríl til 13. nóvember varði Ríkisútvarpið, sjónvarp um 650 þús. kr. til textunar á 1.350 mínútum af efni, sem birt er á síðu 888 í textavarpinu. Það sem af er árinu hafa verið textaðar um 2.000 mínútur af efni. Í þessum tölum eru aðeins miðað við frumsýningu efnis en flestir innlendir þættir eru endursýndir a.m.k. einu sinni. Gert er ráð fyrir að í árslok hafi 3.400 mínútur verið textaðar og kostnaður við það nemi um 1,7 millj. kr.
    Árið 2002 var um 1.000 mínútna efni textað og nam kostnaður við það um 500 þús. kr. Áætlanir RÚV fyrir yfirstandandi ár gerðu ráð fyrir að fimmfalda framlög til þessa máls, þ.e. í 2,5 millj. kr., sem yrði til þess að auka textað efni úr 1.000 mínútum í 5.000 mínútur. Þær áætlanir hafa því miður ekki gengið eftir vegna tæknilegra vandkvæða sem upp hafa komið. Nauðsynlegt mun vera að endurnýja þann búnað sem notaður er til textunar og hefur Ríkisútvarpið upplýst að lögð verði áhersla á að leysa þessi vandamál eins fljótt og auðið er.
    Eins og kunnugt er lögðu forsætis-, félagsmála-, heilbrigðis- og menntamálaráðuneyti alls til 4,5 millj. kr. af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til að auka við textaða dagskrá sjónvarpsins. Að meðtöldu því fé sem RÚV ætlaði að verja til þessa máls var því gert ráð fyrir að 7 millj. kr. yrði varið til textunar á 14 þúsund mínútum af fyrir fram framleiddu íslensku sjónvarpsefni, sem lætur nærri að vera heildarframboð RÚV á slíku efni.
    Ljóst er að Ríkisútvarpið mun ekki ná upphaflegum markmiðum sínum um textun efnis á þessu ári en vegna þeirrar fjárveitingar ríkisstjórnarinnar sem fyrr var getið mun það hafa fjárhagslegt svigrúm til að taka sig verulega á í þessu efni á næsta ári.

     4.      Hvaða áform eru um fjárveitingar til textunar á næsta ári?
    Stjórnvöld hafa lagt áherslu á að unnið verði að bættu aðgengi allra að íslensku efni. Stór hópur heyrnarskertra getur ekki fylgst með íslensku dagskrárefni í sjónvarpi að nokkru gagni. Textun á innlendu efni í sjónvarpi gagnast því heyrnarskertum, eldri borgurum og fólki af erlendum uppruna, sem bæta vill íslenskukunnáttu sína. Einnig er talið að textun innlends efnis ýti mjög undir bætta lestrargetu heyrnarskertra barna og unglinga. Ráðherra hefur lagt á það áherslu við forsvarsmenn Ríkisútvarpsins að verulega verði aukið það fjármagn sem fer til textunar efnis á næstu árum. Fyrir skömmu var heimiluð 5% hækkun afnotagjalda, sem eiga að auka tekjur Ríkisútvarpsins talsvert og er það álit ráðherra að hluta þess fjár eigi að ráðstafa til þess að texta íslenskt sjónvarpsefni.
    Ríkisútvarpið hefur upplýst að markmið þess sé að auka fjármagn til textunar efnis árið 2004 og vonandi gengur það eftir.

     5.      Eru uppi hugmyndir um að fleiri sjónvarpsstöðvar en Sjónvarpið fái fjárveitingar til að texta innlent efni?

    Í fjárlagafrumvarpi ársins 2004 er ekki gert ráð fyrir sérstökum fjárveitingum til sjónvarpsstöðva til textunar á innlendu efni.