Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 280. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 406  —  280. mál.




Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Brynju Magnúsdóttur um uppbyggingu atvinnulífs á Suðurnesjum.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hyggst ráðherra beita sér fyrir endurskoðun byggðaáætlunar með áherslu á uppbyggingu atvinnu á Suðurnesjum? Ef svo er, hvenær má vænta stefnumörkunar í málinu? Ef ekki, telur ráðherra ekki þurfa að styðja sérstaklega við atvinnulíf á Suðurnesjum?

    Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laga nr. 106/1999, um Byggðastofnun, leggur iðnaðarráðherra fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir fjögurra ára tímabil. Áætlunin skal lýsa markmiðum og stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum, áætlunum um aðgerðir og tengsl byggðastefnu við almenna stefnu í efnahags- og atvinnumálum og áætlunum á sviði opinberrar þjónustu í landinu. Í 4. mgr. sömu lagagreinar er kveðið á um að endurskoða skuli byggðaáætlun á tveggja ára fresti. Alþingi samþykkti þann 3. maí 2002 þingsályktun um stefnu í byggðamálum fyrir árin 2002–2005. Almenn endurskoðun á áætluninni er fyrirhuguð næstkomandi vor. Ekki er fyrirhugað að gera breytingar á byggðaáætlun vegna stöðu einstakra svæða á landinu.
    Áfram verður unnið að uppbyggingu atvinnulífs á Suðurnesjum með almennum hætti, eins og hingað til. Sérstök áhersla verður lögð á að erlenda fjárfestingu á svæðinu, en nú er beðið lokaákvörðunar bandarískra fjárfesta um byggingu stálpípuverksmiðju í Helguvík, sem myndi skapa um 200 störf. Þá kallar fyrirhuguð stækkun Norðuráls á aukna orkuöflun á Reykjanesi. Bættar samgöngur með tvöföldun Reykjanesbrautar er einnig aðgerð sem mun stuðla verulega að styrkingu atvinnulífs á Suðurnesjum.