Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 339. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 413  —  339. mál.




Skýrsla



forsætisráðherra um starfsemi Kristnihátíðarsjóðs 2001–2002.

(Lögð fyrir Alþingi á 130. löggjafarþingi 2003–2004.)



    Kristnihátíðarsjóður var stofnaður til að minnast þess að 1000 ár eru liðin frá því að kristinn siður var lögtekinn á Íslandi. Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum nr. 12 um Kristnihátíðarsjóð sem samþykkt voru á Alþingi 28. febrúar 2001 en starfstími sjóðsins er fimm ár. Ríkissjóður leggur sjóðnum til 100 millj. kr. fyrir hvert starfsár samkvæmt sérstökum lið á fjárlögum. Sjóðurinn starfar enn fremur eftir reglugerð sem gefin var út 28. september 2001 af forsætisráðuneytinu.
    Í mars 2001 kaus Alþingi stjórn Kristnihátíðarsjóðs en í henni sitja Anna Soffía Hauksdóttir prófessor, formaður, Anna Agnarsdóttir dósent og Þorsteinn Gunnarsson rektor. Stjórnin hefur samvinnu við ýmsar stofnanir, samtök og félög um viðfangsefni sjóðsins.
    Hlutverk sjóðsins er tvíþætt, annars vegar að efla fræðslu og rannsóknir á menningar- og trúararfi þjóðarinnar og stuðla að umræðum um lífsgildi hennar, siðferði og framtíðarsýn. Hins vegar er hlutverk sjóðsins að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar, m.a. á Þingvöllum, í Skálholti og á Hólum.
    Stjórnin hefur skipað tvær verkefnisstjórnir. Í verkefnisstjórn á sviði menningar- og trúararfs, sem hefur aðsetur á Akureyri, sitja Guðmundur Heiðar Frímannsson deildarforseti, formaður, Guðmundur K. Magnússon prófessor og séra Lára Oddsdóttir. Verkefnisstjórn á sviði fornleifafræði, með aðsetur í Reykjavík, skipa Guðmundur Hálfdanarson prófessor, formaður, Árný E. Sveinbjörnsdóttir jarðfræðingur og Hjalti Hugason prófessor.
    Verkefnisstjórnirnar gera tillögur til stjórnar um verkefni og framlög til þeirra fyrir hvert starfsár. Stjórn sjóðsins setti verkefnisstjórnunum nánari reglur með erindisbréfi, m.a. um faglegt eftirlit þeirra með verkefnum og framvindu þeirra svo og um megináherslur í starfi þeirra og tillögum.
    Stjórn sjóðsins ákveður árlega skiptingu á ráðstöfunarfé hans milli meginsviðanna tveggja og til reksturs sjóðsins. Fjárvarsla sjóðsins er hjá forsætisráðuneytinu sem jafnframt veitir sjóðsstjórn nauðsynlega ritara- og skrifstofuþjónustu.
    Á árinu 2001 var ákveðið að verja 48 millj. kr. til hvors sviðs um sig en árið 2002 var ákveðið að verja um 44 millj. kr. til sviðs menningar og trúar og um 50 millj. kr. til fornleifasviðs.
    Frekari upplýsingar um Kristnihátíðarsjóð má finna á vefsvæði sjóðsins undir slóðinni forsaetisraduneyti.is/interpro/for/for.nsf/pages/kristnihatidarsjodur

Auglýsingar og kröfur


2001


    Árið 2001 auglýsti stjórn sjóðsins eftir umsóknum í sjóðinn í seinni hluta ágúst með umsóknarfresti til 1. október. Þar kom fram að sjóðurinn veitti styrki til að efla þekkingu og vitund um menningar- og trúararf þjóðarinnar. Tekið var fram að einkum yrði litið til margvíslegra verkefna er tengdust almenningsfræðslu, umræðum og rannsóknum. Jafnframt skyldu verkefnin m.a. miðla fróðleik um siðferðis- og trúarhugmyndir sem mótað hafa þjóðina, t.d. með gerð fræðslu- og námsefnis, stuðla að umræðum um lífsgildi þjóðarinnar, siðferði og framtíðarsýn, t.d. fyrir tilstilli mennta- og menningarstofnana eða fjölmiðla og efla rannsóknir á menningar- og trúararfi íslensks samfélags.
    Styrkir yrðu jafnframt veittir til fornleifarannsókna og kynningar á niðurstöðum þeirra. Einkum yrði litið til rannsóknarverkefna er vörðuðu mikilvæga sögustaði þjóðarinnar, m.a. Þingvelli, Skálholt og Hóla í Hjaltadal; enn fremur aðra staði tengda sögu kristni á Íslandi, m.a. klaustur og kirkjustaði og aðra mikilvæga sögustaði, s.s. verslunarstaði, miðaldabæi og þingstaði. Einnig yrði lögð áhersla á samvinnu umsækjanda við innlendar og erlendar rannsóknarstofnanir eða fræðimenn sem og á þjálfun og handleiðslu ungra vísindamanna á sviði fornleifafræði á Íslandi.
    Umsóknum var skilað á þar til gerðum eyðublöðum en þar komu fram ítarlegar upplýsingar um verkefnin sem og umsækjendur. Alls bárust 168 umsóknir að upphæð 690 millj. kr. Á sviði menningar- og trúararfs bárust 139 umsóknir og 29 á sviði fornleifarannsókna.

2002


    Stjórn sjóðsins auglýsti eftir umsóknum seinni hluta ágústmánaðar 2002 með umsóknarfresti til 20. september. Ákveðið var að sjóðurinn myndi leitast við að styðja áfram þau verkefni sem hlutu styrk við síðustu úthlutun, uppfylltu þau kröfur um framvindu og árangur. Að öðru leyti voru þær kröfur, sem settar voru fram í auglýsingunni, sambærilegar þeim sem birtar voru í auglýsingunni frá 2001.
    Að þessu sinni bárust heldur færri umsóknir en árið 2001 eða 133 talsins að upphæð 432 millj. kr. Á sviði menningar- og trúararfs bárust 115 umsóknir og 17 á sviði fornleifarannsókna.

Starfsemi sjóðsins og vinnulag við mat á umsóknum


    Á fyrsta starfsári sjóðsins var unnið að mótun starfshátta sjóðsins. Verkefnisstjórnir voru skipaðar, vefsíða var sett upp og merki sjóðsins hannað. Útbúnar voru fréttatilkynningar, auglýsingar, umsóknareyðublöð, umsagnareyðublöð, erindisbréf verkefnisstjórna og svarbréf til umsækjenda. Auk stjórnarinnar tóku fjölmargir þátt í framangreindri vinnu sem var umfangsmikil enda er meðferð svo margra umsókna tímafrek og vandasöm. Þar má nefna verkefnisstjórnirnar og starfsmenn þeirra og starfsmenn forsætisráðuneytis.
    Verkefnisstjórnir meta styrkhæfi umsókna, hvor á sínu sviði, en mat á umsóknum byggist einkum á eftirtöldum sjónarmiðum: gildi og mikilvægi verkefnis með tilliti til þeirra markmiða sem Kristnihátíðarsjóði voru sett og fram komu í auglýsingu, líkum á því að umsækjanda takist að ná þeim markmiðum er verkefnið miðar að og að lokum starfsferli og faglegum eða fræðilegum bakgrunni umsækjanda og annarra þátttakenda með tilliti til þeirra krafna sem verkefnið gerir til þeirra. Ef um framhaldsumsókn er að ræða er enn fremur litið til þess hvort framvinda og árangur er fullnægjandi á fyrri styrkárum.
    Verkefnisstjórnir gera síðan skriflegar tillögur til sjóðsstjórnar um ráðstöfun þeirra fjármuna sem fyrirhugað er að veita til verkefna á hvoru sviði um sig. Sjóðsstjórn tekur því næst afstöðu til afgreiðslu umsókna á grundvelli tillagna verkefnisstjórna.

Verkefni Kristnihátíðarsjóðs á sviði menningar og trúararfs


    Verkefni Kristnihátíðarsjóðs á sviði menningar og trúararfs, sem ákveðið var að styrkja árin 2001 og 2002, eru fjölþætt. Þau dreifast um allt land og að þeim standa skólar, stofnanir, söfnuðir, félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar. Öll verkefnin tengdust bæði trúar- og menningararfi og féllu að markmiðum sjóðsins.
    Árið 2001 beindist meiri hluti þessara verkefna að rannsóknum á og útgáfu rita um trúar- og menningararfinn. Nokkur hluti þeirra fólst í að koma þessum arfi á framfæri við nútímann á geisladiskum, í sjónvarpsmyndum eða í annars konar miðlunarformi. Annar hluti þeirra stuðlaði að því að rannsaka og efla vitund samtímans með umræðum um siðferðileg gildi á borð við umburðarlyndi og réttlæti.
    Verkefnin, sem sótt var um styrki til árið 2002, voru einnig fjölbreytileg. Sótt var um verkefni til tölvu- og vefvinnslu af ýmsu tagi, sömuleiðis var nokkuð af umsóknum til rannsókna á tónlistar- og myndlistararfinum. Flestar umsóknir voru um fé til rannsókna á bóklegum arfi Íslendinga og einnig til að koma honum á framfæri við almenning á vefnum, í sjónvarpsmyndum eða á geisla- og mynddiskum. Færri umsóknir voru til þess að rannsaka, þróa eða vekja umræður um siðferðisefni.
    Skipta má þeim umsóknum, sem fengu úthlutun bæði árin, í sex flokka:
         1.     Rannsóknir
         2.     Fræðsla, málþing og umræður
         3.     Þýðingar og útgáfur
         4.     Félagslegar kannanir
         5.     Vefmál
         6.     Tónlist og myndlist
    Djúpstæð tengsl ríkja á milli menningarstarfsemi og trúarlífs hér á landi. Hvort sviðið um sig getur ekki án hins verið. Menningarstarfið auðgar trúarlífið og trúarlífið gefur menningarstarfseminni aukna dýpt. Öllum þeim verkefnum, sem styrkt eru, er það sameiginlegt að auðga líf okkar nútímafólks með því að bregða nýju ljósi á þá fegurð sem er að finna í einlægri trú og lifandi menningarstarfsemi.
    

2001


    Stjórn Kristnihátíðarsjóðs ákvað að styrkja eftirfarandi 43 verkefni á sviði menningar- og trúararfs árið 2001. Konur standa að 19 umsóknum sem hlutu úthlutun, karlar að 24 umsóknum.
     1.      Saga biskupsstólanna, Gunnar Kristjánsson. Þetta verkefni Gunnars hlaut jafnframt hæsta styrk sem veittur er á sviði menningar- og trúararfs sjóðsins eða 4 millj. kr.
     2.      Sálmar í 1000 ár, Edda Möller. Styrkurinn nemur 1,6 millj. kr.
     3.      Trúarmenning og siðfræði íslenskra bændakvenna á 19. öld, Inga Huld Hákonardóttir. Styrkurinn nemur 1,6 millj. kr.
     4.      Fræðileg útgáfa á sálmum og kvæðum Hallgríms Péturssonar, Margrét Eggertsdóttir og Svanhildur Óskarsdóttir. Styrkurinn nemur 1,6 millj. kr.
     5.      Réttlæti og ást, Sólveig Anna Bóasdóttir. Styrkurinn nemur 1,6 millj. kr.
     6.      Lífsleikni í leikskóla, Sigríður Síta Pétursdóttir. Styrkurinn nemur 1,6 millj. kr.
     7.      Uppteiknað, sungið, sagt og téð, Þorsteinn Helgason. Styrkurinn nemur 1,6 millj. kr.
     8.      Sr. Matthías Jochumsson, Þórunn Valdimarsdóttir. Styrkurinn nemur 1,6 millj. kr.
     9.      Nikulásartíðir, Sverrir Tómasson. Styrkurinn nemur 1,5 millj. kr.
     10.      Kirkjustaðurinn Reykholt, Helgi Þorláksson. Styrkurinn nemur 1,3 millj. kr.
     11.      Konur og kaþólsk kirkja á Íslandi, 1200–1500, Ellen Gunnarsdóttir. Styrkurinn nemur 1,2 millj. kr.
     12.      Trúarsiðir á 20. öld (skírn, ferming, brúðkaup, útför), Hallgerður Gísladóttir. Styrkurinn nemur 1,2 millj. kr.
     13.      „Guði treysti ég“ – rannsókn á trúarhugmyndum íslenskra kvenna á fyrri hluta 19. aldar eins og þær birtast í bréfum og öðrum frumheimildum kvenna frá þeim tíma, Karitas Kristjánsdóttir. Styrkurinn nemur 1,2 millj. kr.
     14.      Bannsmál á Íslandi á síðmiðöldum, Lára Magnúsardóttir. Styrkurinn nemur 1,2 millj. kr.
     15.      Siðanefndir starfsstétta, Róbert H. Haraldsson. Styrkurinn nemur 1,2 millj. kr.
     16.      Siðfræði og samtími – fyrirlestraröð, Vilhjálmur Árnason. Styrkurinn nemur 1,2 millj. kr.
     17.      Lýsir, Ásrún Kristjánsdóttir. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     18.      Paradísarmissir Miltons í þýðingu Jóns Þorlákssonar, Ástráður Eysteinsson og Guðni Elísson. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     19.      Miðlun reynsluarfsins – stuðningur við unga foreldra, Bernharður Guðmundsson. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     20.      Merkisdagar – heimildamynd, Björn Br. Björnsson. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     21.      Íslensk biblíuguðfræði – Rómverjabréfið í skýringum íslenskra guðfræðinga, Clarence E. Glad. Styrkurinn nemur 1millj. kr.
     22.      Þýdd guðsorðarit á Íslandi á 17. öld, Einar Sigurbjörnsson. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     23.      Könnun á lífsgildum Íslendinga, Friðrik H. Jónsson. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     24.      Trú og töfrar, Jón Jónsson. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     25.      Bragtaka og tölvuskráning helgikvæða og sálma, Kristján Eiríksson. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     26.      Kirkjur Íslands – friðaðar kirkjur, Magnús Skúlason. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     27.      Kirkjutónlist á Íslandi, Páll Steingrímsson. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     28.      Trúarhreyfingar á Íslandi, Pétur Pétursson og Bjarni Randver Sigurðsson. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     29.      Þorlákstíðir, Sigurður Halldórsson. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     30.      Íslensk miðaldaklaustur – margmiðlunardiskur, Skúli Björn Gunnarsson. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     31.      Gömlu lögin við Passíusálma Hallgríms Péturssonar, Smári Ólason. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     32.      Einar í Eydölum: frá katólsku til lútherstrúar, Sigurborg Hilmarsdóttir. Styrkurinn nemur 900 þús. kr.
     33.      Kirkjugangan og kirkjur í Múlaprófastsdæmi, Vigfús Ingvar Ingvarsson. Styrkurinn nemur 900 þús. kr.
     34.      Rökræður um rétt og rangt, Gyða Karlsdóttir. Styrkurinn nemur 800 þús. kr.
     35.      Fjölþjóðakvöld, Jóna Hrönn Bolladóttir. Styrkurinn nemur 800 þús. kr.
     36.      Erfiljóð frá 17. og 18. öld, Þórunn Sigurðardóttir. Styrkurinn nemur 800 þús. kr.
     37.      Skálholtsdiskar, Helga Ingólfsdóttir. Styrkurinn nemur 700 þús. kr.
     38.      Fræðsluefni fyrir börn í sumarbúðum þjóðkirkjunnar, Jóhanna I. Sigmarsdóttir. Styrkurinn nemur 700 þús. kr.
     39.      Tónlist og myndlist í íslenskum handritum, Hanna Styrmisdóttir. Styrkurinn nemur 600 þús. kr.
     40.      Guðmundur góði – líf og störf, Jón Viðar Sigurðsson. Styrkurinn nemur 600 þús. kr.
     41.      Fjölþjóðasamfélagið og trúarbrögð þess, Ragnheiður Sverrisdóttir. Styrkurinn nemur 600 þús. kr.
     42.      Lífsviðhorf og gildismat unglinga, Gunnar J. Gunnarsson og Gunnar Finnbogason. Styrkurinn nemur 500 þús. kr.
     43.      Trúarleg umræða á Íslandi á fyrri hluta 19. aldar, Torfi K. Stefánsson Hjaltalín. Styrkurinn nemur 500 þús. kr.

2002


    Stjórn Kristnihátíðarsjóðs ákvað að styrkja eftirfarandi 47 verkefni á sviði menningar- og trúararfs árið 2002. Konur standa að 21 umsókn sem fékk úthlutun, karlar að 26 umsóknum. Fimm umsóknir eiga rætur utan höfuðborgarsvæðisins og 42 koma af höfuðborgarsvæðinu. Af þeim 47 verkefnum, sem fengu úthlutað styrk þetta ár, fengu 23 verkefni einnig úthlutun árið 2001.
     1.      Saga biskupsstólanna, Gunnar Kristjánsson. Þetta verkefni Gunnars hlýtur jafnframt hæsta styrk sem veittur er á sviði menningar- og trúararfs eða 4 millj. kr.
     2.      Réttlæti og ást: til móts við nýja kynlífssiðfræði, Sólveig Anna Bóasdóttir. Styrkurinn nemur 1,6 millj. kr.
     3.      Sr. Matthías Jochumsson, Þórunn Valdimarsdóttir. Styrkurinn nemur 1,6 millj. kr.
     4.      Að rækta lífsgildi í skólastarfi: uppeldissýn kennara, Sigrún Aðalbjarnardóttir. Styrkurinn nemur 1,2 millj. kr.
     5.      Bannfæringar á Íslandi á síðmiðöldum, Lára Magnúsardóttir. Styrkurinn nemur 1,2 millj. kr.
     6.      Fræðileg útgáfa á sálmum og kvæðum Hallgríms Péturssonar, Svanhildur Óskarsdóttir og Margrét Eggertsdóttir. Styrkurinn nemur 1,2 millj. kr.
     7.      „Guði treysti ég“ – rannsókn á trúarhugmyndum íslenskra kvenna á fyrri hluta 19. aldar eins og þær birtast í bréfum og öðrum frumheimildum kvenna frá þeim tíma, Karitas Kristjánsdóttir. Styrkurinn nemur 1,2 millj. kr.
     8.      Íslenska teiknibókin í Árnasafni, Guðbjörg Kristjánsdóttir. Styrkurinn nemur 1,2 millj. kr.
     9.      Lífsleikni í leikskóla, Sigríður Síta Pétursdóttir. Styrkurinn nemur 1,2 millj. kr.
     10.      Siðanefndir starfsstétta, Róbert H. Haraldsson. Styrkurinn nemur 1,2 millj. kr.
     11.      Siðfræðivefur, Salvör Nordal. Styrkurinn nemur 1,2 millj. kr.
     12.      Ánauð viljans (De servo arbitrio) eftir Martein Lúther, Ólafur Páll Jónsson. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     13.      Heilagra manna sögur, Sverrir Tómasson, Guðrún Nordal og Einar Sigurbjörnsson. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     14.      Íslensk biblíuguðfræði – Rómverjabréfið í skýringum íslenskra guðfræðinga, Clarence E. Glad. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     15.      Lífsleikni og sjálfstyrking fyrir ungt fólk, Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     16.      Saga KFUM & KFUK í Reykjavík 1908–1918, Þórarinn Björnsson. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     17.      Saga klausturs í Kirkjubæ og trúarmenning kvenna í tengslum við það, Hjalti Hugason. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     18.      Trúarmenning og siðfræði íslenskra bændakvenna á 19. öld, Inga Huld Hákonardóttir. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     19.      Trúarsiðir á 20. öld (skírn, ferming, brúðkaup, útför), Hallgerður Gísladóttir. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     20.      Trúfrelsi, þjóðkirkja, samband ríkis og kirkju 1874–1997, Sigurjón Árni Eyjólfsson. Styrkurinn nemur 1 millj. kr.
     21.      Erfiljóð frá 17. og 18. öld, Þórunn Sigurðardóttir. Styrkurinn nemur 800 þús. kr.
     22.      Gömlu lögin við Passíusálma Hallgríms Péturssonar, Smári Ólason. Styrkurinn nemur 800 þús. kr.
     23.      Íslensk myndlist fyrri alda – frá siðaskiptum til 19. aldar, Þóra Kristjánsdóttir. Styrkurinn nemur 800 þús. kr.
     24.      Ísmús – íslensk músík, Bjarki Sveinbjörnsson. Styrkurinn nemur 800 þús. kr.
     25.      Líkfylgd Jóns Arasonar, Gerður Bolladóttir. Styrkurinn nemur 800 þús. kr.
     26.      Trú og kvikmyndir, Gunnlaugur A. Jónsson. Styrkurinn nemur 800 þús. kr.
     27.      Trú og töfrar, Jón Jónsson. Styrkurinn nemur 800 þús. kr.
     28.      Uppteiknað, sungið, sagt og téð, Þorsteinn Helgason. Styrkurinn nemur 800 þús. kr.
     29.      Þorlákstíðir, Sverrir Guðjónsson. Styrkurinn nemur 800 þús. kr.
     30.      Þórbergur Þórðarson: trúarviðhorf og deilur um kristindóminn, Soffía Auður Birgisdóttir. Styrkurinn nemur 800 þús. kr.
     31.      Þýdd guðsorðarit á Íslandi á 17. öld, Einar Sigurbjörnsson. Styrkurinn nemur 800 þús. kr.
     32.      Kirkja og skóli á 20. öld, Sigurður Pálsson. Styrkurinn nemur 700 þús. kr.
     33.      Skoða þú verk Guðs, Gyða Karlsdóttir. Styrkurinn nemur 700 þús. kr.
     34.      Barnaútvarp – útvarp Latibær, Halldór Reynisson. Styrkurinn nemur 600 þús. kr.
     35.      Gagnvirkt netkennsluforrit um kristni á Íslandi, Sigurður Ingi Friðleifsson. Styrkurinn nemur 600 þús. kr.
     36.      gardur.is, Þórsteinn Ragnarsson. Styrkurinn nemur 600 þús. kr.
     37.      Hljóðritun á þjóðlögum við Passíusálma Hallgríms Péturssonar, Guðmundur Sigurðsson. Styrkurinn nemur 600 þús. kr.
     38.      Kristin trú og veruleiki fermingarbarna, Guðrún Karlsdóttir. Styrkurinn nemur 600 þús. kr.
     39.      Myndlist og tónlist í íslenskum handritum, Hringur Hafsteinsson. Styrkurinn nemur 600 þús. kr.
     40.      Sálmar í 1000 ár, Edda Möller. Styrkurinn nemur 600 þús. kr.
     41.      Skálholtsdiskar, Helga Ingólfsdóttir. Styrkurinn nemur 600 þús. kr.
     42.      Sköpunartexti og sköpunartrú. Þóris Kr. Þórðarsonar fyrirlestrar veturinn 2003–2004, Kristinn Ólason. Styrkurinn nemur 600 þús. kr.
     43.      Lífsviðhorf og gildismat unglinga, Gunnar J. Gunnarsson og Gunnar Finnbogason. Styrkurinn nemur 500 þús. kr.
     44.      Saga kristinnar kirkju í máli og myndum á Netinu, Skúli Thorarensen. Styrkurinn nemur 500 þús. kr.
     45.      Félagsstarf á hjólum, Ragnar Schram. Styrkurinn nemur 400 þús. kr.
     46.      Fjölþjóðasamfélagið og trúarbrögð þess, Ragnheiður Sverrisdóttir. Styrkurinn nemur 400 þús. kr.
     47.      Kirkjumiðstöðin Reykholt, Helgi Þorláksson. Styrkurinn nemur 400 þús. kr.

Verkefni Kristnihátíðarsjóðs á sviði fornleifarannsókna


    Verkefni Kristnihátíðarsjóðs á sviði fornleifarannsókna, sem ákveðið var að styrkja árin 2001 og 2002, voru mun færri en á sviði menningar- og trúararfs, eða átta talsins bæði árin. Vel hefur þó tekist að veita styrki í anda laganna um Kristnihátíðarsjóð. Kveðið var á um að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar, á Þingvöllum, í Skálholti og á Hólum í Hjaltadal. Það er nú gert á öllum stöðum. Klaustur skyldu rannsökuð. Nunnuklaustrið á Kirkjubæjarklaustri og munkaklaustrið á Skriðu í Fljótsdal hafa hlotið styrk. Kirkjustaðir skyldu einnig rannsakaðir. Reykholt í Borgarfirði fékk framhaldsstyrk 2002 og árið 2001 rann styrkur til Laufáss í Eyjafirði. Tekið var tillit til byggðasjónarmiða. Loks lagði Alþingi til að aðrir mikilvægir sögustaðir skyldu rannsakaðir og varð hinn forni verslunarstaður á Gásum í Eyjafirði fyrir valinu.
    Af þeim átta verkefnum, sem fengu úthlutað styrk árið 2002, fengu sjö verkefni einnig úthlutun árið 2001.Verkefnisstjórnin um fornleifarannsóknir hefur áhyggjur af því að ekki verði hægt að styrkja fleiri ný verkefni í framtíðinni. Stóðu vonir til að mótframlög mundu berast frá ýmsum aðilum en það hefur almennt ekki skilað sér.
    Hingað til hafa allir íslenskir fornleifafræðingar sótt menntun sína til útlanda. Haustið 2002 hófst hins vegar í fyrsta sinn kennsla í fornleifafræði við heimspekideild Háskóla Íslands. Rúmlega 20 nemendur stunda þar nám, bæði á BA- og á MA-stigi. Það er von stjórnar Kristnihátíðarsjóðs að ungir vísindamenn muni fá þjálfun m.a. í þeim verkefnum sem nú þegar hafa hlotið brautargengi.
    Fornleifafræðin er tiltölulega ung fræðigrein hér á landi en ekki þarf að hafa mörg orð um mikilvægi hennar í tengslum við rannsóknir á sögu Íslands. Áhersla er nú lögð á fornleifarannsóknir sem tengjast flestar sögu kristni á Íslandi. Sagnfræðingar gera sér grein fyrir að við rannsóknir á miðöldum duga okkar glæstu ritheimildir ekki einar til. Fornleifar staðfesta og styrkja þá mynd sem mótast hefur af íslensku þjóðfélagi fyrr á öldum.
    Framlag Alþingis til fornleifarannsókna á Íslandi er ótvíræð lyftistöng fyrir fornleifafræðina í landinu. Niðurstöður fornleifauppgraftanna munu örugglega opna nýja sýn á Íslandssöguna.

2001


    Stjórn Kristnihátíðarsjóðs ákvað að styrkja eftirfarandi átta verkefni á sviði fornleifarannsókna árið 2001. Konur eru verkefnisstjórar í fimm rannsóknum en karlar í þremur.
     1.      Hólarannsókn. Fornleifa- og sagnfræðileg rannsókn á Hólum í Hjaltadal. Markmiðið er m.a. að rannsaka húsagerð og skipulag staðarins á fyrri tíð og kanna efnahag biskupsstólsins, lífshætti íslenskrar yfirstéttar á mismunandi tímum og tengsl Hóla, höfuðstaðar Norðurlands, við aðra staði. Umsækjendur eru Hólaskóli, Byggðasafn Skagfirðinga og Þjóðminjasafn Íslands en verkefnisstjóri er Ragnheiður Traustadóttir. Fáar og takmarkaðar fornleifarannsóknir hafa farið fram á Hólum til þessa og hlaut þetta verkefni hæsta styrkinn, 11 millj. kr.
     2.      Skálholt – höfuðstaður Íslands í 700 ár. Grafnar verða upp leifar staðarhúsa í Skálholti, þ.m.t. skóla- og prenthús, útihús og öskuhaugar. Markmiðið er að afla gagna um sögu staðarins og kirkjustjórnar Skálholtsbiskupsdæmis. Umsækjendur eru Fornleifastofnun Íslands og Þjóðminjasafn Íslands en verkefnisstjóri er Mjöll Snæsdóttir. Styrkurinn nemur 9 millj. kr.
     3.      Rannsókn á rústum nunnuklaustursins í Kirkjubæ. Grafnar verða upp rústir klaustursins í Kirkjubæ á Síðu í þeim tilgangi að fá fram heildstæða mynd af klaustrinu og klausturlifnaði. Klaustrið telst eitt hið áhugaverðasta hér á landi, þar var nunnuklaustur starfrækt í nær fjórar aldir. Umsækjandi er Kirkjubæjarstofa en verkefnisstjóri er Bjarni F. Einarsson. Styrkurinn nemur 7 millj. kr.
     4.      Skriðuklaustur – híbýli helgra manna. Rannsóknin felst í fornleifauppgrefti á rústum munkaklausturs sem starfrækt var á Skriðu í Fljótsdal frá árinu 1493 til siðaskipta. Varpað verður ljósi á hvort Íslendingar hafi hagað klausturbyggingum og klausturlífi að öllu leyti samkvæmt erlendum reglum og fyrirmyndum eða hvort íslenskar aðstæður hafi leitt til umtalsverðrar aðlögunar. Markmiðið er að efla þekkingu á klausturhaldi og kristinni trúariðkun á Íslandi á miðöldum. Umsækjandi er félagið Skriðuklausturrannsóknir en verkefnisstjóri er Steinunn Kristjánsdóttir. Styrkurinn nemur 7 millj. kr.
     5.      Þingvellir og þinghald til forna. Markmiðið er að afla nýrra heimilda um sögu Þingvalla og þinghald til forna. Alþingisstaðurinn verður mældur upp og gert af honum stafrænt kort. Leitað verður að mannvistarleifum með fjarsjá. Þessi nýja nálgun leyfir könnun á minjum undir yfirborði jarðar án þess að til verulegs jarðrasks þurfi að koma. Þrátt fyrir mikilvægi Þingvalla í augum Íslendinga er enn margt á huldu um þingstaðinn sjálfan og þinghald til forna. Umsækjendur eru Fornleifastofnun Íslands og Þjóðminjasafn Íslands en verkefnisstjórar eru Adolf Friðriksson og Sigurður Líndal. Styrkurinn nemur 5 millj. kr.
     6.      Þverfaglegar rannsóknir og kynning á Gásum í Eyjafirði. Fornleifarannsókn, fornvistfræði-, sagnfræði- og náttúrufarsrannsókn á sögustaðnum Gásum í Eyjafirði. Markmiðið er m.a. að rekja þróun kaupstaðarins. Gerð verður samanburðarrannsókn á Gásum og samtímaverslunarstöðum í viðskiptalöndum Íslendinga á miðöldum. Einnig verður svæði kirkju og kirkjugarðs grafið upp. Umsækjandi er Minjasafnið á Akureyri en fjölmargar stofnanir koma við sögu. Verkefnisstjóri er Guðrún M. Kristinsdóttir. Styrkurinn nemur 4,5 millj. kr.
     7.      Laufás – staðurinn. Verkefnið er byggingarsöguleg og þjóðháttarleg úttekt á kirkjustaðnum Laufási í Eyjafirði sem var lengi einn helsti kirkjustaður á Norðurlandi. Umsækjandi er Hið íslenska bókmenntafélag en verkefnisstjóri er Hörður Ágústsson. Styrkurinn nemur 2,5 millj. kr.
     8.      Rannsókn kirkjunnar í Reykholti. Framhald fornleifarannsóknar á kirkju og kirkjugarði í Reykholti í Borgarfirði. Til samanburðar verður kirkjugrunnur í Stafholti kannaður en þar var sóknarkirkja á sama tíma og í Reykholti. Þær voru báðar höfuðkirkjur, svonefndir staðir, og meðal þeirra merkustu á landinu. Umsækjandi er Þjóðminjasafn Íslands en verkefnisstjóri Guðrún Sveinbjarnardóttir. Styrkurinn nemur 2 millj. kr.

2002


    Stjórn Kristnihátíðarsjóðs ákvað að styrkja eftirfarandi átta verkefni á sviði fornleifarannsókna árið 2002. Af þeim átta verkefnum, sem fengu úthlutað styrk þetta ár, fengu sjö rannsóknir einnig úthlutun árið 2001. Sama kynjaskipting er í verkefnisstjórn fornleifarannsókna árið 2002 og 2001, eða fimm konur og þrír karlar.
     1.      Hólarannsókn. Ætlunin er að rannsaka húsagerð á fyrri tíð, kanna efnahag biskupsstólsins, lífshætti íslenskrar yfirstéttar á mismunandi tímum og tengsl Hóla, höfuðstaðar Norðurlands, við aðra staði. Sumarið 2001 komu fornleifafræðingar óvænt niður á rústir frá miðöldum, frá 11. og 12. öld en þeir höfðu talið að það mundi taka sig þrjú ár að komast svo djúpt. Þessar húsarústir verða rannsakaðar sumarið 2003 en nú þegar hafa um 4000 gripir komið í ljós. Umsækjendur eru: Hólaskóli, Byggðasafn Skagfirðinga og Þjóðminjasafn Íslands. Verkefnisstjóri er Ragnheiður Traustadóttir. Fáar og takmarkaðar rannsóknir hafa farið fram áður á Hólum og hlaut því þetta verkefni enn á ný hæsta styrkinn, 11 millj. kr.
     2.      Skálholt – höfuðstaður Íslands í 700 ár. Markmiðið er að grafa upp leifar staðarhúsa í Skálholti. Með því móti verður aflað gagna um sögu staðarins og kirkjustjórnar Skálholtsbiskupsdæmis og m.a. varpað ljósi á samskipti Íslands við umheiminn. Helsti árangur af starfseminni sumarið 2002 var að unnt var að staðfesta að þar sé að finna tiltölulega heillegar rústir, til að mynda leifar skóla, sjúkrastofu og bókakamers. Þetta er „góð náma“ eins og Mjöll Snæsdóttir verkefnisstjóri orðaði það en rúmlega 7.000 gripir komu í ljós það sumar, langflestir frá 18. og 19. öld en á næstu árum verður grafið dýpra niður í fortíðina. Umsækjendur eru Fornleifastofnun Íslands og Þjóðminjasafn Íslands. Styrkurinn nemur 10 millj. kr.
     3.      Rannsókn á rústum nunnuklaustursins í Kirkjubæ. Verið er að grafa upp rústir klaustursins í Kirkjubæ á Síðu. Rannsóknin sumarið 2002 staðfestir að klaustrið er fundið og að ástand gripa er betra en vonir stóðu til. Því gefur rannsóknin góð fyrirheit um að hægt verði að afla mikilla upplýsinga um daglegt líf í klaustrinu, gerð húsakynna og hugsanlega muninn á þeim og veraldlegum húsum. Fornleifarannsóknin hefur verið kvikmynduð frá fyrsta degi og er það nýmæli hér á landi. Umsækjandi er Kirkjubæjarstofa. Verkefnisstjóri er Bjarni F. Einarsson. Styrkurinn nemur 7 millj. kr.
     4.      Skriðuklaustur – híbýli helgra manna. Rannsóknin felst í fornleifauppgrefti á rústum munkaklausturs sem starfrækt var á Skriðu í Fljótsdal frá árinu 1493 til siðaskipta. Höguðu Íslendingar klausturbyggingum og klausturlífi að öllu leyti samkvæmt erlendum reglum og fyrirmyndum eða leiddu íslenskar aðstæður til umtalsverðrar aðlögunar? Sumarið 2002 tókst að staðsetja rústir Skriðuklausturs með vissu og útlínurnar eru að skýrast. Rústirnar, gripir og bein hafa varðveist mjög vel og þegar er ljóst að klaustrið hefur verið aðskilið veraldlegu amstri á Skriðu. Það sem vakti mesta athygli í fjölmiðlum var fundur ritstíls eða griffils, þess þriðja sem finnst á Íslandi og er ótvírætt merki um bókagerð í klaustrinu. Árið 2003 verður rannsóknarsvæðið stækkað og grafið upp í heild sinni og allt kapp lagt á að komast að byggingarlagi klaustursins. Umsækjandi er félagið Skriðuklausturrannsóknir. Verkefnisstjóri er Steinunn Kristjánsdóttir. Styrkurinn nemur 7 millj. kr.
     5.      Þingvellir og þinghald til forna. Þrátt fyrir mikilvægi Þingvalla í augum Íslendinga er enn margt á huldu um þingstaðinn sjálfan og þinghald til forna. Árangur rannsóknanna sumarið 2002 er í stuttu máli sá að ljóst er að búðir eru mun fleiri en áður var talið. Sumarið 2003 verður lögð áhersla á uppgröft á mannvistarleifum á Biskupshólum og svæðið milli Þingvallakirkju og árbakka kannað enda ekki seinna vænna þar sem minjarnar eru víða að spillast af völdum náttúrunnar, einkum af völdum vatnsaga, t.d. á bökkum Öxarár. Umsækjandi er Fornleifastofnun Íslands. Verkefnisstjóri er Adolf Friðriksson. Styrkurinn nemur 5 millj. kr.
     6.      Þverfaglegar rannsóknir og kynning á Gásum í Eyjafirði. Hér er ætlunin að rekja þróun kaupstaðarins. Gerð verður samanburðarrannsókn á Gásum og samtímaverslunarstöðum í viðskiptalöndum Íslendinga á miðöldum. Einnig verður svæði kirkju og kirkjugarðs grafið upp. Fornleifarannsóknirnar í sumar benda til þess að verslun hafi staðið lengur á Gásum en áður var ætlað. Af forngripafundum má ætla að á Gásum hafi verið stundað handverk – smíði úr góðmálmum og járnsmíði – og að brennisteinn hafi verið hreinsaður á staðnum til útflutnings. Hér er reyndar verið að athuga gerð miðaldaþorps á Íslandi - nýtt fyrirbæri í Íslandssögunni! Umsækjandi er Minjasafnið á Akureyri í samvinnu við Þjóðminjasafnið og margar aðrar rannsóknarstofnanir. Verkefnisstjóri er Guðrún M. Kristinsdóttir. Styrkurinn nemur 4,5 millj. kr.
     7.      Rannsókn kirkjunnar í Reykholti. Uppgröfturinn í Reykholti var í raun forkönnun en hefur gefið góða raun. Í sumar komu í ljós undirstöður tveggja kirkna frá 18. og 19. öld og a.m.k. 6 grafir. Skráðir fundir voru 51, m.a. lítill blýkross. Talið er mjög vænlegt að halda áfram uppgrefti á þessum forna kirkjustað. Umsækjandi er Þjóðminjasafn Íslands. Verkefnisstjóri er Guðrún Sveinbjarnardóttir. Styrkurinn nemur 4 millj. kr.
     8.      Kuml og samfélag. Rannsóknin felur í sér öflun gagna um staðsetningu þekktra kumla á Íslandi og rannsókn á áður óhreyfðum kumlum með grefti. Markmiðið er m.a. að greina vitnisburð kumla um samfélag og byggð á Íslandi á 9. og 10. öld. Ný vitneskja mun væntanlega koma í ljós um efnahagslegan og kynbundinn mismun á fyrstu öldum Íslandsbyggðar. Umsækjandi er Adolf Friðriksson og er hann jafnframt verkefnisstjóri. Styrkurinn nemur 2 millj. kr.

Töluleg samantekt


Fjöldi umsókna
         2001     2002
MT* F** alls MT F alls
Fjöldi umsókna 139 29 168 115 17 132
Fjöldi verkefna sem fengu styrk 43 8 51 47 8 55
*Menningar- og trúararfur
**Fornleifarannsóknir

Styrkupphæðir
(í millj. kr.)
2001 2002
MT F alls MT F alls
Upphæðir sem sótt var um 490 200 690 270 162 432
Upphæðir sem úthlutað var 48 48 96 44 50 94

Verkefnisstjórn skipt eftir kyni
2001 2002
MT F MT F
karlar 24 3 26 3
konur 19 5 21 5
alls 43 8 47 8

Lokaorð


    Tilkoma Kristnihátíðarsjóðs markaði tímamót í fræðslu og rannsóknum á menningar- og trúararfi þjóðarinnar sem og í fornleifarannsóknum. Lög og fjárveitingar til sjóðsins bera vott um stórhug og framsýni sem hvetur þá sem vinna á þessum sviðum til dáða og góðra verka sem munu miðla og gagnast í samtíð og framtíð. Stærstu styrkir sjóðsins eru með þeim hæstu sem úthlutað er á Íslandi til rannsókna- og fræðistarfa.
    Verkefnissvið sjóðsins er vítt og spannar allt frá lífi íslenskra fornmanna til lífsleikni nútímamannsins sem þarf oft og tíðum að vera ærin en þó sennilega hvorki meiri né minni en lífsleikni fornmannsins. Það er e.t.v. alrangt, en lýsir um leið vissri þröngsýni nútímamannsins, að halda að lífinu sé vandlifaðra en áður, hver tími færir ný vandamál til að takast á við.
    Úthlutun úr Kristnihátíðarsjóði 2001 og 2002 fór fram á fullveldisdaginn 1. desember. Stefnt er að úthlutunarathöfn í Þjóðmenningarhúsi þann dag á ári hverju meðan sjóðurinn starfar, með kynningu á niðurstöðum valinna verkefna í tímans rás. Árið 2002 voru nokkur þeirra verkefna, sem hæstu styrki hafa hlotið úr sjóðnum, kynnt á veggspjöldum við úthlutunarathöfnina í fyrsta skipti. Ljóst er að áhrifa sjóðsins er þegar farið að gæta verulega í framvindu verkefna eins og m.a. hefur komið fram í fjölmiðlum.
    Stjórn sjóðsins þakkar öllum þeim sem koma að starfi sjóðsins samstarfið og Alþingi Íslendinga traustið.