Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 345. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 419 — 345. mál.
til utanríkisráðherra um stækkun Evrópska efnahagssvæðisins og íslenskan vinnumarkað.
1. Hvaða áhrif er stækkun Evrópska efnahagssvæðisins í maí 2004, þegar tíu ný ríki verða aðilar að Evrópusambandinu, talin munu hafa á vinnumarkað hérlendis?
2. Hvaða rétt hafa aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins til að sjá til þess að vinnumarkaðurinn hafi svigrúm til að aðlagast stækkuninni og hver er afstaða ríkisstjórnarinnar til þess að Ísland nýti sér slíkar heimildir?
3. Hefur verið hugað að aðgerðum í tengslum við undirritun samnings um stækkun Evrópska efnahagssvæðisins til að takmarka röskunina sem stækkun sameiginlegs vinnumarkaðar getur valdið hérlendis og til að efla þjónustu og aðstoð við útlendinga sem hingað koma til starfa, t.d. í ljósi þeirra vandamála sem hér hafa komið upp á síðustu mánuðum og hugsanlegra félagslegra undirboða?
Skriflegt svar óskast.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 419 — 345. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um stækkun Evrópska efnahagssvæðisins og íslenskan vinnumarkað.
Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.