Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 292. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 423  —  292. mál.




Svar



samgönguráðherra við fyrirspurn Brynju Magnúsdóttur um uppbyggingu ferðaþjónustu.

     1.      Hefur ráðuneytið samstarf við önnur ráðuneyti um uppbyggingu ferðaþjónustu? Ef svo er, við hvaða ráðuneyti og um hvaða verkefni?
    Ráðuneytið tekur þátt í þremur samstarfsverkefnum með öðrum ráðuneytum um uppbyggingu ferðaþjónustu og er gerð grein fyrir þeim hér á eftir.
    I. Byggðaáætlun. Iðnaðarráðuneyti og samgönguráðuneyti starfa saman að verkefnum er lúta að eflingu ferðaþjónustu á landsbyggðinni í samræmi við áherslur byggðaáætlunar. Sex verkefni eru styrkt á grundvelli samkomulags iðnaðarráðherra og samgönguráðherra á þessu ári. Í byrjun árs 2004 og 2005 mun ráðuneytið leggja fram áætlun um ný verkefni að höfðu samráði við iðnaðarráðuneyti. Samgönguráðuneyti hefur yfirumsjón með framvindu verkefnanna sem styrkt eru á grunni samkomulagsins.
     II. Hestamiðstöð Íslands. Samningur er á milli forsætisráðuneytis, landbúnaðarráðuneytis, menntamálaráðuneytis, samgönguráðuneytis og Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Gildistími samningsins er frá árinu 2000 til ársloka 2004.
    Hestamiðstöð Íslands hefur það hlutverk að efla fagmennsku í hrossarækt, hestamennsku, hestaíþróttum og hestatengdri ferðaþjónustu með sérstöku fimm ára átaki.
    III. Umboðsmaður íslenska hestsins. Að samningnum standa landbúnaðarráðuneyti, utanríkisráðuneyti, samgönguráðuneyti, Búnaðarbanki Íslands og Flugleiðir. Gildistími samningsins er frá árinu 2003 og til ársloka 2007.
    Markmið verkefnisins er að efla jákvæða ímynd hrossaræktar og hestamennsku með áherslu á Ísland sem upprunaland íslenska hestsins og forustuhlutverk þess í kynbótum, ræktun og fagmennsku á sviði hestamennsku. Jafnframt að auka sölu á íslenska hestinum og hestatengdri vöru og þjónustu innan lands og utan. Þá skal unnið að því að efla almennan áhuga á hestamennsku, m.a. með fræðslu og kynningum í grunnskólum og framhaldsskólum
    Unnið skal að markmiðum verkefnisins með þátttöku í mótum hestamanna og sýningum, ráðstefnum, vörusýningum og almennri landkynningu í samvinnu við sendiráð og ræðismenn Íslands erlendis, útflutningsaðila, aðila ferðaþjónustunnar og samtök hestamanna. Markaðsstarfi verkefnisins skal beint að fyrir fram ákveðnum löndum/svæðum sem valin eru að höfðu samráði við yfirvöld ferðamála og viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins og hagsmunaaðila í hrossarækt og hestamennsku. Að tveim árum liðnum skal árangur metinn og ákvörðun tekin um markaðssvæði.

     2.      Hve miklu fé hefur verið varið til slíkra samstarfsverkefna á síðustu tveimur árum, sundurliðað eftir ráðuneytum, verkefnum og landshlutum?
     I. Ráðuneytin munu beita sér fyrir því að samtals 100 millj. kr. verði til ráðstöfunar til samstarfsverkefnanna á árunum 2003–2005, þar af 60 millj. kr. af fjárveitingu til framkvæmdar byggðaáætlunar.
    Á þessu ári er framlag iðnaðarráðuneytis 20 millj. kr. og samgönguráðuneytis 2,5 millj. kr. Framlag hvors ráðuneytis verður 20 millj. kr. á næsta ári. Stefnt er að sömu upphæð frá hvoru ráðuneyti árið 2005.
    Verkefnunum sem styrkt voru á fyrsta ári þessa samstarfsverkefnis ráðuneytanna, alls 22,5 millj. kr., er stýrt frá Borgarfirði, Snæfellsnesi og Vestfjörðum. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um þau verkefni sem styrkt verða á næsta ári.
     II. Framlag ráðuneytisins til Hestamiðstöðvar Íslands er 5 millj. kr. á ári á samningstímabilinu. Heildarframlag til verkefnisins er 40 millj. kr. á ári. Auk ráðuneytisins greiðir forsætisráðuneyti 5 millj. kr., landbúnaðarráðuneyti 10 millj. kr., menntamálaráðuneyti 5 millj. kr. og Sveitarfélagið Skagafjörður 15 millj. kr.
    Hestamiðstöðin er í Skagafirði.
     III. Framlag ráðuneytisins til Umboðsmanns íslenska hestsins er 3 millj. kr. á ári á samningstímabilinu. Heildarframlag til verkefnisins er 11 millj. kr. á ári. Auk ráðuneytisins greiðir landbúnaðarráðuneyti 3 millj. kr., utanríkisráðuneyti 3 millj. kr., Búnaðarbanki Íslands 1 millj. kr. og Flugleiðir 1 millj. kr.
    Forstöðumaður verkefnisins hefur aðsetur í Reykjavík.