Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 261. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 441  —  261. mál.




Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Drífu Hjartardóttur um sölu kísilgúrverksmiðjunnar og Steinullarverksmiðjunnar.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvert er söluandvirði kísilgúrverksmiðjunnar og Steinullarverksmiðjunnar og hvernig hefur því verið varið?

    Söluverð kísilgúrverksmiðjunnar var rúmar 62 millj. kr. Með lögum nr. 15/2001, um breytingar á lögum nr. 80/1966, um kísilgúrverksmiðju við Mývatn, var iðnaðarráðherra heimilað að selja 51% eignarhlut ríkisins. Í 1. gr. laganna er kveðið á um að söluandvirðið skuli renna til atvinnuuppbyggingar í þeim sveitarfélögum sem eiga verulegra hagsmuna að gæta vegna starfsemi verksmiðjunnar. Samþykkt hefur verið fjárfesting í tveimur fyrirtækjum.
    Ráðuneytið hefur allt frá sölu Kísiliðjunnar hf. skoðað álitlega iðnaðarkosti sem uppfylltu ákvæði laganna. Niðurstaðan varð að bygging og rekstur verksmiðju sem framleiddi pólýol væri álitlegasti kosturinn sem skoðaður hefur verið. Á grundvelli þess hefur ríkisstjórnin samþykkt tillögu ráðherra um að verja 30 millj. kr. af söluandvirðinu til kaupa á hlutafé í Pólýolverksmiðjunni ehf. Það fé verður m.a. notað til þess að meta hagkvæmni staðsetningar verksmiðju við Húsavík, sem er eina staðsetningin utan þéttbýlisins á suðvesturhorninu sem nú kemur til álita. Framleiðsla á pólýoli byggist á notkun jarðgufu en pólýol er samheiti fyrir flokk efna sem m.a. eru notuð við framleiðslu á matvælum, snyrtivörum, plastefnum og lyfjum.
    Uppbygging baðlóns við Mývatn sem hagnýtir affallsvatn Bjarnarflagsvirkjunar er talin mikilvægur þáttur í að styrkja búsetu í héraðinu. Rekstur náttúrulegra heilsubaða í Mývatnssveit fellur einkar vel að annarri starfsemi í sveitinni og styrkir ímynd hennar, sem byggist á einstakri náttúru. Í þeim tilgangi að uppbygging og rekstur heilsubaðanna verði að veruleika var ákveðið að verja 20 millj. kr. af söluandvirði Kísiliðjunnar til hlutafjárkaupa í Baðfélagi Mývatnssveitar, sem er einkahlutafélag 30 einstaklinga og fyrirtækja í Mývatnssveit.
    Söluverð Steinullarverksmiðjunnar hf. var 210 millj. kr. Í 1. gr. laga nr. 57/2002, um breytingar á lögum nr. 61/1986, um steinullarverksmiðju, segir að iðnaðarráðherra sé heimilt að selja hlut ríkisins í verksmiðjunni og að verja skuli helmingi söluandvirðisins til samgöngubóta eða annarra verkefna í þeim sveitarfélögum sem eiga verulegra hagsmuna að gæta vegna starfsemi Steinullarverksmiðjunnar, samkvæmt nánari ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Helmingi af andvirði verksmiðjunnar, 105 millj. kr., hefur verið varið til tveggja verkefna. Annars vegar voru 35 millj. kr. veittar til Sægulls ehf., til að ljúka tilraunum við barraeldi í samvinnu við Nýsköpunarsjóð. Hins vegar var ákveðið að verja 70 millj. kr. til fiskeldisrannsókna við Hólaskóla.