Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 258. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 460  —  258. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar um lífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs.

     1.      Hvernig hafa lífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs þróast frá setningu laga um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins?
    Með lögum nr. 141/1996 voru gerðar breytingar á lífeyrisréttindakerfi starfsmanna ríkisins sem fólu í sér að lokað var fyrir aðgang nýrra sjóðfélaga að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga (LH). Jafnframt var stofnuð ný lífeyrisdeild, A-deild LSR, þar sem lífeyrisréttindi ráðast af greiðslu iðgjalda eins og er um aðra lífeyrissjóði. Voru með lögunum gerðar breytingar á lögum nr. 29/1963, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, og nr. 16/1965, um Lífeyrissjóð hjúkrunarkvenna. Lögin voru endurútgefin í upphafi árs 1997 með áorðnum breytingum.
    Frá setningu laga nr. 1/1997, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, og laga nr. 2/1997, um Lífeyrissjóð hjúkrunarkvenna, hefur þróun lífeyrisskuldbindinga ríkisins verið eins og fram kemur í eftirfarandi töflu.

Lífeyrisskuldbindingar ríkisins, millj. kr.

Staða í ársbyrjun

Nýjar skuldbindingar alls

Gjaldfærsla


Endurmat
Endurmetnar fyrirframgreiðslur Verðlagsgreiðslur og endurmat
Staða í árslok
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, B-deild
1997 77.444 4.098 3.267 831 -612 80.930
1998 80.930 29.270 19.805 9.465 -1.855 108.345
1999 108.345 16.195 7.952 8.243 -7.087 -1.841 122.699
2000 122.699 33.981 23.296 10.685 -8.436 -1.797 154.883
2001 154.883 18.032 817 17.215 -15.035 -969 171.946
2002 171.946 27.379 15.015 12.364 -10.250 -3.329 195.996
Samtals 128.955 70.152 58.803 -40.808 -10.403 195.996
Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga
1997 7.914 470 361 109 -48 0
1998 8.336 2.776 1.799 977 -88 11.024
1999 11.024 777 -17 794 -929 -84 11.717
2000 11.717 2.623 1.640 983 -906 -103 14.237
2001 14.237 1.712 177 1.535 -1.605 27 15.976
2002 15.976 1.704 600 1.104 -1.033 -242 17.438
Samtals 10.062 4.560 5.502 -4.473 -538 17.438

     2.      Hafa þau markmið náðst að lífeyrisskuldbindingar ríkisins ykjust ekki eins og að var stefnt með lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins?
    Með setningu laga nr. 141/1996 var LSR skipt í tvær deildir (A- og B-deild). Starfsmenn sem þegar greiddu í sjóðinn færðust í B-deild, en henni og LH var jafnframt lokað fyrir nýjum sjóðfélögum. Aðild að A-deildinni geta allir starfsmenn ríkisins fengið. Helstu markmið með setningu laganna voru að laga fyrirkomulag starfsmannahalds og launamála að breyttum aðstæðum og ekki síður að draga úr þeirri óvissu sem ríkti um fjárhag LSR og LH. Þessi óvissa stafaði af því að samkvæmt þágildandi lögum áunnu ríkisstarfsmenn sér lífeyrisréttindi sem eru verulega umfram samanlagðar iðgjaldagreiðslur þeirra og ríkisins til sjóðanna. Í athugasemdum með frumvarpinu kemur fram að það taki „... ekki á því misvægi sem er á milli núverandi eigna LSR og þeirra lífeyrisskuldbindinga sem þegar eru áfallnar nema að takmörkuðu leyti. Sama gildir um skuldbindingar sem eiga eftir að myndast vegna þeirra ríkisstarfsmanna sem kjósa að eiga áfram aðild að B-deild sjóðsins.“
    A-deild LSR var hugsuð þannig að hún væri sjálfbær, þó þannig að leiði tryggingafræðileg athugun í ljós að iðgjald sjóðfélaga ásamt mótframlagi launagreiðanda dugi ekki til greiðslu á skuldbindingum sjóðsins skal stjórn sjóðsins hækka framlag atvinnurekanda í samræmi við niðurstöðu athugunarinnar. Sé hrein eign sjóðsins ásamt framtíðariðgjöldum jafnhá núvirði væntanlegs lífeyris vegna þegar greiddra iðgjalda og framtíðariðgjalda skal framlag launagreiðanda vera 6%. Eins og kemur fram í svari við 3. lið fyrirspurnarinnar, hefur árleg athugun á heildarstöðu A-deildar LSR ekki leitt annað í ljós en að deildin sé innan skilgreindra marka, samkvæmt lögum um lífeyrissjóði.
    Þau markmið með setningu laga nr. 141/1996 að lífeyrisskuldbindingar ríkisins aukist ekki hafa því náðst. Lokað hefur verið fyrir möguleika nýrra starfsmanna til að gerast aðilar að B-deild LSR og því myndast ekki nýjar lífeyrisskuldbindingar vegna þeirra. Vegna nýrra starfsmanna ríkisins eru lífeyrisiðgjöld greidd jafnóðum og engin skuldbinding myndast á ríkissjóð. Þó kann iðgjaldaprósenta launagreiðanda að breytast eins og áður er komið að.

     3.      Hefur árlega verið metið tryggingafræðilega hver iðgjaldaprósenta launagreiðanda þurfi að vera til að sjóðurinn eigi jafnan fyrir skuldbindingum sínum? Hefur verið lagt til að prósentunni verði breytt?
    Heildarstaða A-deildar LSR, þ.e. þegar reiknað er með að núverandi sjóðfélagar greiði áfram iðgjöld til ellilífeyrisaldurs og vinni sér inn réttindi í samræmi við það, var í árslok 2002 neikvæð um 6,2 milljarða kr. eða 4,9% lægri en heildarskuldbinding hans. Framlag launagreiðanda vegna A-deildar er breytilegt samkvæmt lögum sjóðsins og er miðað við að sjóðurinn eigi að jafnaði nægar eignir til að standa undir lífeyrisskuldbindingum sínum. Framlag launagreiðenda er nú 11,5%. Samkvæmt lögum um lífeyrissjóði má heildarstaða þeirra aldrei vera verri eða betri en 10% af heildarskuldbindingu og jafnframt má staðan ekki vera utan 5% vikmarka samfellt í fimm ár. Þar sem heildarstaða A-deildar er innan skilgreindra marka hefur ekki verið lagt til að iðgjaldaprósentu launagreiðanda verði breytt.
    Framlag launagreiðanda vegna B-deildar LSR og LH er fast samkvæmt lögum sjóðanna. Því hefur ekki verið metið tryggingafræðilega hver iðgjaldaprósenta launagreiðanda þurfi að vera vegna þessara sjóða. Ríkissjóður hefur frá árinu 1999 greitt fyrir fram til B-deildar LSR og til LH samkvæmt sérstöku samkomulagi fjármálaráðherra við stjórn LSR annars vegar og stjórn LH hins vegar. Er greiðslunum ætlað að jafna greiðslustreymi frá ríkissjóði til sjóðanna og styrkja þannig fjárhag þeirra til að standa undir framtíðarskuldbindingum vegna starfsmanna ríkisins. Án fyrirframgreiðslnanna hefði komið til sjóðþurrðar hjá þeim innan fárra ára. Viðbótargreiðslurnar taka mið af launakostnaði þeirra starfsmanna sem tryggðir eru í sjóðunum. Í árslok 2002 námu uppsafnaðar fyrirframgreiðslur ásamt hlutdeild í endurmati verðbréfaeignar sjóðanna 45.039 millj. kr. hjá B-deildar LSR og 4.881 millj. kr. hjá LH. Þar af nemur endurmat á verðbréfaeign 4.231 millj. kr. hjá LSR og 408 millj. kr. hjá LH. Á árinu 2003 verða greiddar aukalega 8.000 millj. kr. til sjóðanna og í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2004 er gert ráð fyrir að fyrirframgreiðslur nemi 7.500 millj. kr. Samtals verður því búið að greiða fyrir fram upp í lífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs um 65 milljarða kr. í árslok 2004.

     4.      Hvernig munu lífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs breytast á þessu ári miðað við fyrirliggjandi upplýsingar?
     5.      Hvernig er líklegt að staðan verði árið 2005 miðað við óbreytta þróun?

    Í ríkisreikningi fyrir árið 2002 eru hreinar lífeyrisskuldbindingar A-hluta ríkissjóðs í árslok um 183,2 milljarðar kr., þar af voru 155,2 milljarðar kr. hjá B-deild LSR, 13,0 milljarðar kr. hjá LH og 15,0 milljarðar kr. hjá öðrum lífeyrissjóðum. Gert er ráð fyrir að á árunum 2003–2005 muni hreinar lífeyrisskuldbindingar A-hluta ríkissjóðs þróast eins og fram kemur í eftirfarandi töflu.

Hrein lífeyrisskuldbinding A-hluta, millj. kr.
Raun 2002 Áætlað 2003 Áætlað 2004 Áætlað 2005
Staða í ársbyrjun 167.746 183.231 185.481 189.273
Nýjar skuldbindingar á árinu 30.819 13.000 15.117 15.426
Fyrirframgreiðslur og verðlagsuppbætur
-15.334

-10.750

-11.325

-11.516
Staða í árslok 183.231 185.481 189.273 193.183
Hlufall af landsframleiðslu 24,6% 22,8% 22,0% 20,3%

    Í framreikningi fyrir árin 2003–2005 er gert ráð fyrir að hækkun dagvinnulauna ríkisstarfsmanna verði ekki umfram almennar launahækkanir og því miðað við 4,5% –5% árlega hækkun dagvinnulauna auk þess að reiknað er með 3% árlegri aukningu vegna réttindaávinnings o.fl. Erfiðast er að spá um ávöxtun sjóðsins, en á grunni þeirra gagna sem nú liggja fyrir um ávöxtun hans fyrstu sex mánuði þessa árs er gert ráð fyrir 11% nafnávöxtun á þessu ári, en árin 2004 og 2005 er gert ráð fyrir að nafnávöxtun verði jöfn hækkun dagvinnulauna að viðbættum réttindaávinningi o.fl., eða um 8%.
    Niðurstaðan er því að gert er ráð fyrir að hrein lífeyrisskuldbinding ríkissjóðs muni lækka á næstu árum sem hlutfall af landsframleiðslu og verði 20,6% í lok árs 2005. Mikinn fyrirvara verður þó að gera við framreikninginn þar sem samningar við ríkisstarfsmenn verða lausir á árinu 2004 og ávöxtun í fortíð gefur engin fyrirheit um framtíðarávöxtun.

     6.      Hversu háar fjárhæðir hafa verið veittar úr ríkissjóði vegna lífeyrisskuldbindinga hans á síðustu árum?
    Ekki er ljóst hvað þingmaður á við þegar hann spyr um veittar fjárhæðir úr ríkissjóði. Mikilvægt er að gera skýran greinarmun á gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga í reikningum ríkisins og því hvaða greiðslur eru inntar af hendi til lífeyrissjóðanna. Í skilningi fjárreiðulaganna eru fjárveitingar það sama og gjöld á rekstrargrunni. Fjárveitingar til lífeyrissjóðanna sem færðar eru í rekstrarreikning ríkissjóðs eru gjöld vegna nýrra skuldbindinga sem myndast hafa á viðkomandi ári. Fyrirframgreiðslur sem greiddar eru til lífeyrissjóðanna eru greiðslur upp í framtíðarskuldbindingar sjóðanna. Í þessu felst að fyrirframgreiðslurnar færast alfarið um efnahagsreikninginn og koma þannig til lækkunar á skuldastöðu ríkissjóðs gagnvart lífeyrissjóðunum.
    Eins og kemur fram í svari við 1. lið fyrirspurnarinnar hafa frá setningu laganna um LSR og LH alls verið gjaldfærðar í ríkisreikningi 70.152 millj. kr. vegna LSR og 4.560 millj. kr. vegna LH, eða samtals um 74.712 millj. kr. Hins vegar nema fyrirframgreiðslur og verðlagsuppbætur til LSR 51.211 millj. kr. og til LH 5.011 millj. kr. í árslok 2002.