Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 244. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 461  —  244. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Péturs H. Blöndals um starfsemi sjúkrasjóða.

     1.      Hvaða lög og reglugerðir gilda um sjúkrasjóði?
    Lög um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, nr. 55/1980, fjalla um greiðslur í sjúkrasjóði, sbr. 1. mgr. 6. gr. laganna sem orðast svo:
    „Öllum atvinnurekendum er skylt að greiða í sjúkrasjóði og orlofssjóði viðkomandi stéttarfélaga iðgjöld þau, sem aðildarsamtök vinnumarkaðarins semja um hverju sinni, og samkvæmt þeim reglum, sem kjarasamningar greina.“
    Lög um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla, nr. 19/1979, fjalla einnig um greiðslur í sjúkrasjóði, sbr. 7. gr. laganna sem orðast svo:
    „Vinnuveitendur skulu greiða 1% af útborguðu kaupi verkafólks í sjúkrasjóð viðkomandi stéttarfélags, nema um hærri greiðslur hafi verið samið í kjarasamningum.“

     2.      Hvernig er eftirliti og endurskoðun reikninga háttað hjá sjúkrasjóðum og hvaða reglur gilda um fjárfestingar þeirra?
    Félagsmálaráðherra fer ekki með fjármálaeftirlit með sjúkrasjóðum stéttarfélaga og er ráðuneytinu því ekki kunnugt um fjárfestingarstefnu einstakra sjóða né heldur hvernig fjármálaeftirliti eða endurskoðun reikninga er háttað. Stéttarfélög eru almenn félög sem falla ekki undir 1. gr. laga um ársreikninga, nr. 144/1994, og því ekki skyldug til að birta ársreikninga sína né skylt að skila þeim til viðeigandi aðila samkvæmt þeim lögum. Önnur lög kveða hvorki á um slíka skyldu stéttarfélaga né annað eftirlit stjórnvalda með störfum þeirra. Er það þess vegna ekki á valdssviði félagsmálaráðherra að veita nýjustu upplýsingarnar úr ársreikningum einstakra sjúkrasjóða. Þess má geta að í leiðbeiningarreglugerð Alþýðusambands Íslands eru ákvæði sem fjalla um hugsanlegar fjárfestingarleiðir sjóðanna í þeim tilgangi að ávaxta fé sitt. Einnig er þar að finna leiðbeinandi reglur um hvernig fara eigi með ársreikninga sjúkrasjóða. Stéttarfélögum innan Alþýðusambandsins er þó ekki skylt að fara eftir þessum reglum enda þótt þeim sé skylt að setja sér reglugerð sem skal hljóta staðfestingu miðstjórnar sambandsins. Enn fremur kveður 44. gr. laga Alþýðusambandsins á um að endurskoðaðir reikningar sem sýna stöðu sjúkrasjóðs áritaðir af löggiltum endurskoðanda skulu sendir miðstjórn fyrir maílok ár hvert.
    Samkvæmt upplýsingum Alþýðusambands Íslands eru stjórnir sjóðanna annaðhvort kjörnar á aðalfundum viðkomandi stéttarfélags eða á sérstökum aðalfundi sjúkrasjóðsins. Jafnframt er dæmi um að í kjarasamningi sé kveðið á um að vinnuveitendum sé heimilt að tilnefna annan endurskoðanda sjóðsins, sbr. meðal annars kjarasamning milli Samtaka atvinnulífsins og Verkamannasambands Íslands (Starfsgreinasambands Íslands) vegna aðildarfélaga annarra en Eflingar – stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis.


     3.      Hvað eru margir sjúkrasjóðir starfandi?
    Samkvæmt upplýsingum Alþýðusambands Íslands eru reknir sjúkrasjóðir á vegum allra 86 aðildarfélaga þess. Í kjarasamningum vinnuveitenda og þessara aðildarfélaga eru ákvæði um sjúkrasjóði þar sem kveðið er á um greiðsluskyldu atvinnurekenda í samræmi við ákvæði 6. gr. laga um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, nr. 55/1980.
    Með samkomulagi frá árinu 2000 milli Bandalags háskólamanna, BSRB og Kennarasambands Íslands annars vegar og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs, Reykjavíkurborgar og launanefndar sveitarfélaga hins vegar um tiltekin atriði er varða réttindi starfsmanna í framangreindum samtökum var stofnaður sérstakur fjölskyldu- og styrktarsjóður en launagreiðendur greiða iðgjöld í sjóðinn.

     4.      Hvaða hlutfall af launum er greitt í sjúkrasjóði sem iðgjald?
    Samkvæmt 6. gr. laga um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, nr. 55/1980, er atvinnurekendum skylt að greiða þau iðgjöld sem aðildarsamtök vinnumarkaðarins semja um hverju sinni og samkvæmt þeim reglum sem kjarasamningar greina. Í lögum um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla, nr. 19/1979, er kveðið á um að vinnuveitendur skulu greiða 1% af útborguðu kaupi verkafólks í sjúkrasjóð viðkomandi stéttarfélags, nema um hærri greiðslur hafi verið samið í kjarasamningum, sbr. 7. gr.
    Þegar einstakir kjarasamningar eru skoðaðir virðist sem að hlutfallið sem vinnuveitandi greiðir af launum sé jafnan það sama, þ.e. 1%, enda þótt ekki sé fullyrt hér um að hlutfallið geti ekki verið hærra í einstökum samningum. Hins vegar virðist sem ekki sé fullkomið samræmi um hvers konar laun lögð eru til grundvallar. Svo dæmi séu tekin úr einstökum kjarasamningum er fjallað um „1% af útborguðu kaupi verkafólks“ í kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins annars vegar og Landssambands íslenskra verslunarmanna og Verslunarmannafélags Reykjavíkur hins vegar (10.1). Jafnframt er vísað í lög um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda og lög um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla. Í kjarasamningi milli Samtaka atvinnulífsins og Samiðnar – Sambands iðnfélaga f.h. aðildarfélaga í málmiðnaði, byggingariðnaði og skrúðgarðyrkju (10.2) er kveðið á um að greiða skuli 1% á allt kaup starfsmanna til að standa straum af veikindum og sjúkrakostnaði og renni þær greiðslur í sjúkrasjóð viðkomandi félags. Þá skulu vinnuveitendur greiða 1% af kaupi í styrktarsjóð RSÍ samkvæmt kjarasamningi milli Samtaka atvinnulífsins og Samtaka atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði annars vegar og Rafiðnaðarsambands Íslands vegna aðildarfélaga hins vegar (10.1). Að lokum má nefna að í kjarasamningi milli Póstmannafélags Íslands og Íslandspósts hf. skal launagreiðandi greiða 1% af heildarlaunum starfsmanna (13.1).

     5.      Hver var heildariðgjaldagreiðsla í sjúkrasjóði árið 2002?
     6.      Fyrir hve marga launþega var greitt í sjúkrasjóði árið 2002?

    Vísað er til svars við 2. lið.

     7.      Hvað eru margir launþegar utan sjúkrasjóða og hvers vegna?
    Ekkert opinbert eftirlit er með því hvort greitt sé af launum starfsmanna í sjúkrasjóði stéttarfélaga á íslenskum vinnumarkaði. Er félagsmálaráðuneytinu því hvorki kunnugt um hversu margir launamenn standa utan sjúkrasjóða né ástæður þess.

     8.      Hver var heildarupphæð bóta sem greiddar voru úr sjúkrasjóðum árið 2002?
     9.      Hverjar voru eignir sjúkrasjóða í árslok 2002 og hversu stór hluti þeirra var fasteignir?
    Vísað er til svars við 2. lið.

     10.      Hvaða reglur gilda almennt um upphæð bóta, lengd bótatímabils og biðtíma hjá sjúkrasjóðum?
    Í lögum er ekki kveðið á um markmið og hlutverk sjúkrasjóða heldur er það gert í kjarasamningum milli aðila vinnumarkaðarins og reglugerðum einstakra sjóða. Markmið sjúkrasjóðanna er fyrst og fremst að taka við greiðsluskyldu í veikinda- og slysatilfellum þegar veikindagreiðslur vinnuveitanda falla niður. Þegar reglur einstakra sjúkrasjóða eru skoðaðar virðist sem meginmarkmið og hlutverk séu nokkuð sambærileg óháð því hvaða stéttarfélag á í hlut.
    Hver einstakur sjóður ákveður þær reglur er gilda um réttindi félagsmanna til bóta úr sjóðnum. Enda þótt ákveðin grunnréttindi sé að finna í flestum sjóðunum til samræmis við meginmarkmið þeirra má reikna með að réttindi sjóðfélaga í sjúkrasjóðum séu mismunandi og fari eftir styrk hlutaðeigandi stéttarfélags. Eins og fram hefur komið hefur Alþýðusamband Íslands gefið út leiðbeinandi reglugerð fyrir sjúkrasjóði stéttarfélaga innan þess. Þar hefur Alþýðusambandið þó sett ákveðnar lágmarksreglur sem öllum sjúkrasjóðum aðildarfélaga þess er gert að fylgja.