Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 87. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 513  —  87. mál.




Framhaldsnefndarálit



um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 2003, sbr. lög nr. 58/2003.

Frá 2. minni hluta fjárlaganefndar.



    Frumvarp til seinni fjáraukalaga fyrir árið 2003 kemur nú til lokaafgreiðslu við 3. umræðu. Fjárlög yfirstandandi árs gerðu ráð fyrir að heildarútgjöld ríkissjóðs næmu 260,1 milljörðum kr. og heildartekjur 271,6 milljörðum kr. Tekjujöfnuður var því áætlaður um 11,5 milljarðar kr.
    Í frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2003 og með þeim breytingum sem gerðar hafa verið við 2. umræðu var gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs mundu hækka um 12,1 milljarða kr. Enn fremur liggja nú við 3. umræðu frammi breytingartillögur frá meiri hlutanum um aukin útgjöld sem nema 448 millj. kr. Áður hefur Alþingi samþykkt að auka útgjöld ríkissjóðs um samtals 4,7 milljarða kr. frá því sem ákveðið var í fjárlögum fyrir árið 2003. Alls er því gert ráð fyrir að heildarútgjöld ríkissjóðs verði um 277,4 milljarðar kr. Hér er um að ræða hækkun á útgjöldum ríkissjóðs um 17,3 milljarða kr. eða 6,7% frá samþykktum fjárlögum. Samkvæmt endurskoðaðri tekjuáætlun ríkissjóðs í nóvember er gert ráð fyrir að heildartekjur ríkissjóðs verði 280,6 milljarðar kr. en það er tæpum 9 milljörðum kr. hærri fjárhæð en gert var ráð fyrir í fjárlögum 2003. Tekjujöfnuður er því áætlaður um 3,2 milljarðar kr. Af þessum tekjuafgangi er gert ráð fyrir að sala eigna skili um 12,9 milljörðum kr. Lokagreiðslur vegna sölu bankanna hafa þó ekki enn verið inntar af hendi.
    Jafnframt er nauðsynlegt að benda á að reynslan hefur kennt okkur að þessar niðurstöðutölur munu breytast. Í því sambandi er nærtakast að nefna gjöld og tekjur ríkissjóðs árið 2002. Í fjárlögum fyrir árið 2002 voru tekjur áætlaðar 257,9 milljarðar kr. og gjöldin 239,4 milljarðar kr. og því var gert ráð fyrir að tekjujöfnuður yrði 18,5 milljarðar kr. Samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar ,,Endurskoðun ríkisreiknings fyrir árið 20022 reyndust tekjur ársins vera 259,2 milljarðar kr. og gjöldin um 267,3 milljarðar kr. Samkvæmt þessu varð ekki rekstrarafgangur upp á 18,5 milljarða kr. heldur halli upp á 8,1 milljarð kr. Tekjur ríkissjóðs höfðu því breyst um tæpa tvo milljarða kr. en gjöldin um 28 milljarða kr.
    Í V. kafla laga um fjárreiður ríkisins, nr. 88/1997, er fjallað um frumvarp til fjáraukalaga. Í 1. málsl. 1. mgr. 44. gr. laganna segir að valdi ófyrirséð atvik, kjarasamningar eða ný löggjöf því að grípa þurfi til sérstakra fjárráðstafana sem ekki var gert ráð fyrir í fjárlögum ársins skuli leitað heimilda fyrir þeim í frumvarpi til fjáraukalaga. Þetta eru þau atvik sem lögin veita heimild til að fjárheimilda sé leitað í fjáraukalögum. Við skoðun á þeim breytingartillögum meiri hlutans nú við 3. umræðu fjáraukalaga fyrir árið 2003 má setja spurningarmerki við hvort einstakar tillögur uppfylli skilyrði fjárreiðulaganna

Rammafjárlög og Alþingi.
    Í vefriti fjármálráðuneytisins frá 27. nóv. sl. er fjallað um fjárlagagerðina og reynt að réttlæta þá ákvörðun framkvæmdarvaldsins að leggjast gegn því að fulltrúar stofnana og samtaka sem fá starfsfé sitt að hluta eða öllu leyti frá ríkinu komi á fund fjárlaganefndar og geri grein fyrir starfsemi sinni, fjárhagstöðu og rekstrarþörf:
    ,,Í upphafi síðastliðins áratugar var að erlendri fyrirmynd tekið upp nýtt skipulag við undirbúning og mótun fjárlaga hér á landi sem kallað hefur verið ,,rammafjárlög“. Hugsunin að baki þeim er að ríkisstjórnin (leturbr 2. minni hluta) ákveði heildarútgjöld og skiptingu þeirra milli ólíkra málaflokka, þ.e. útgjaldarammana, en láti ráðuneytum eftir að útfæra nánar hvernig fénu er varið. Þetta miðar að því að stefnumótun ríkisstjórnar sé ráðandi þáttur í fjárlagagerðinni, að fjárlagagerðinni sé stýrt „ofanfrá“ í stað þess að fjárlögin verði einfaldlega samtala þess kostnaðar sem til fellur í ríkiskerfinu á hverjum tíma, þ.e. verði stýrt „neðanfrá“.“
    Athyglisvert er að hér er hvergi minnst á að Alþingi eða nefndir þess eigi að koma að fjárlagagerð heldur ráði rammi ríkisstjórnarinnar. Fjárlaganefnd og Alþingi kemur fjárlagagerðin ekkert við. Vissulega þarf að vera regla á fjárlagagerð eins og annarri lagasetningu og vinnu. En þessi sjálftökuréttur ráðherranna á valdi og hvernig því er beitt á stofnanir og félagasamtök í landinu er alvarleg ógnun við stöðu Alþingis, störf og verkefni þingmanna og þingnefnda og þar með ógnun við lýðræðið. Er það eitt brýnasta verkefni Alþingis og fjárlaganefndar að endurskoða alla vinnu við fjárlagagerðina, marka framkvæmdarvaldinu sinn bás í þeirri vinnu og tryggja eðlileg og lýðræðisleg vinnubrögð við fjárlagagerðina. Valdbeiting framkvæmdarvaldsins gagnvart stofnunum sínum og stríð þess við Alþingi og undirstofnanir þess sem birst hefur í bréfaskriftum ráðuneytanna til stofnana sinna nú í haust gengur einfaldlega ekki. Formaður fjárlaganefndar hefur lýst því yfir að farið verði í grundvallarendurskoðun á vinnu við fjárlagagerðina með það að markmiði að styrkja stöðu Alþingis í þeirri vinnu og styður 2. minni hluti þá ákvörðun eindregið. Þegar fjármálaráðherra hefur lagt fram frumvarp til fjárlaga á Alþingi og því hefur verið vísað til fjárlaganefndar er öll frekari vinna og afgreiðsla þess á ábyrgð þeirrar nefndar og Alþingis.

Bæta þarf fjárhag sveitarfélaganna.
    Því er fagnað að lagt er til að veittar verði til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 400 millj. króna til ráðstöfunar til minni sveitarfélaga. Til þess að sveitarfélögin héldu óbreyttum tekjum hefði þessi upphæð þó þurft að vera um 1 milljarður kr. Nærþjónustan, grunnalmannaþjónustan hefur verið færð til sveitarfélaganna og þau verða að fá tekjustofna til að standa undir henni Fjárskortur þeirra og röng tekjuskipting milli ríkis og sveitarfélaga er ein alvarlegasta ógnunin við velferðarþjónustuna í landinu. Með stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum sveitarfélaganna er verið að þvinga þau til að einkavæða og selja þjónustustofnanir sínar og skera niður almannaþjónustu.
    Eitt dæmið er nú hér í fjáraukalagafrumvarpinu þar sem sveitarfélagið Dalabyggð finnur sig knúið til að selja hitaveitu sína. Ríkissjóður veitir svo kaupandanum, ríkisfyrirtækinu RARIK, 145 millj. kr. lántökuheimild til að kaupa hitaveituna. Að mati 2. minni hluta væri miklu réttara að veita Dalabyggð fjárstuðning og hagkvæm lán til að halda hitaveitu sinni. Það eru jú neytendur hitaveitu Dalabyggðar sem munu borga hitaveituna.
    Samtök sveitarfélaga mega ekki láta glepjast af þeim blekkingarleik stjórnvalda að etja fyrst sveitarfélögum saman í sameiningarviðræðum og að þeim loknum endurskoða tekjuskiptinguna. Sameining sveitarfélaga á víða rétt á sér, en verður að fara fram á forsendum íbúanna sjálfra. Ríkisvaldið á strax að leiðrétta fjárþörf sveitarfélaganna og fyrir því eiga samtök þeirra að berjast.

Lokaorð.
    Fjáraukalagafrumvarpið speglar óvönduð vinnubrögð meiri hlutans við fjárlagagerðina fyrir ári. Margar þeirra nauðsynlegu leiðréttinga sem hér eru gerðar voru fyrirsjánlegar og þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs bentu á það við umræðuna þá og lögðu fram breytingartillögur til úrbóta. Þær breytingartillögur felldi meiri hlutinn þá en kemur nú með þær í fjáraukalagafrumvarpi. Þær snúa m.a. að fjárskorti heilbrigðis- og sjúkrastofnana og framhaldsskólanna. Enn munu framhaldsskólar þó fara með halla til næstu ára.
    Háskólarnir fá engar leiðréttingar á fjárskorti sínum. Ef ekki rætist úr verður að taka á málum þeirra fyrir 3. umræðu fjárlaga fyrir 2004.
    Fleiri þætti má nefna sem augljós þörf var á að leiðrétta og mikilvægt að það verði gert fyrir 3. umræðu fjárlaga fyrir 2004.
    Annar minni hluti lýsir fullri ábyrgð á hendur ríkisstjórninni og meiri hlutanum vegna óvandaðrar vinnu við fjárlagagerðina á sl. ári og rangrar forgangsröðunar. Tekjuöflun ríkssjóðs færist í stöðugt auknum mæli í notendagjöld og hlutfallslega aukna skattheimtu almenns launafólks og lágtekjufólks. Í stað þess er skattbyrðinni létt af fjármagnseigendum, fyrirtækjum og hátekjufólki. Vinstri hreyfingin – grænt framboð berst fyrir öðrum áherslum. Vinstri hreyfingin – grænt framboð leggur áherslu á jöfnun lífskjara og velferð fyrir alla. Skattkerfinu á að beita til að afla hinu opinbera nægjanlegra tekna til að standa undir samneyslu þjóðfélagsins og öflugu velferðarkerfi. Skattastefnan á að fela í sér tekjujöfnun og að byrðunum sé dreift með sanngjörnum hætti.
    Þegar hafa verið teknar skuldbindandi ákvarðanir um meginhluta þess sem hér er verið að afgreiða. Annar minni hluti og aðrir þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs munu því sitja hjá við afgreiðslu frumvarpsins í heild.

Alþingi, 28. nóv. 2003.



Jón Bjarnason.